Skoðun

Þjóðar­á­tak í upp­byggingu hjúkrunarheimila

Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar

Það er fagnaðarefni að nú stendur yfir mesta uppbygging hjúkrunarrýma í sögu þjóðarinnar. Eftir áralanga stöðnun og aðgerðaleysi er loksins farið að sjá til lands með það markmið að fjöldi hjúkrunarrýma anni eftirspurn. Í ljósi þessa árangurs vekur furðu að nokkrir fulltrúar fyrrverandi ríkisstjórnar reyni nú að eigna sér heiðurinn af þessari þróun.

En raunveruleikinn er sá að undir stjórn fyrri ríkisstjórnar var uppbygging hjúkrunarheimila í hnút. Sveitarfélögum var gert að bera 15 prósent af stofnkostnaði sem mörg þeirra gátu einfaldlega ekki staðið undir. Þetta leiddi til þess að fjöldi verkefna komst ekki lengra en á teikniborðið. Skýrasta dæmið um þetta aðgerðaleysi fyrri stjórnvalda var til að mynda staðan í Norðurþingi. Þar lágu framkvæmdir niðri og í fjögur ár blasti ekkert annað við en stór hola í jörðinni. Frá 2019 og út síðasta kjörtímabil fjölgaði hjúkrunarrýmum einungis um 69.

Viðsnúningur í uppbyggingu

Alger vendipunkturinn varð í þessum málum vorið 2025 eftir að núverandi ríkisstjórn tók við völdum. Með Ingu Sæland þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra í broddi fylkingar, tók ríkið alfarið á sig ábyrgð á fjármögnun hjúkrunarheimila og felldi niður 15 prósenta kröfu á sveitarfélögin. Eða eins og Inga orðaði það á sínum tíma: „Verkstjórn er tekin við sem hefur svo sannarlega spýtt í lófana.“

Hjólin fóru strax að snúast í upphafi síðasta árs. Skóflustunga var tekin að nýju heimili í Hveragerði, hafist var handa við breytingar á húsnæði við Nauthólsveg í Reykjavík og skrifað var undir samninga fyrir Þursaholt á Akureyri. Síðast en ekki síst var gengið frá samningum sem tryggðu að loksins var byrjað að byggja í fjögurra ára gamalli holu í Norðurþingi.

Til að tryggja að framkvæmdir færu raunverulega af stað án tafa setti Inga Sæland á laggirnar stýrihóp um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Það er flókið ferli að reisa og koma hjúkrunarheimili í rekstur og krefst náinnar samhæfingar milli ólíkra ráðuneyta, sveitarfélaga, framkvæmdaaðila og verðandi rekstraraðila. Ef ekki er tekið skipulega á stórum jafnt sem smáum úrlausnarefnum af festu getur framgangur uppbyggingar tafist í marga mánuði eða mörg ár eins og dæmin sanna.

Stýrihópurinn hefur höggvið á hnúta, rutt flöskuhálsum úr vegi og tryggt að stjórnsýslan vinni með framkvæmdunum en ekki fyrir utan þær. Þannig hefur tekist að halda uppi ótrúlegum hraða í þessu mikla uppbyggingarstarfi.

Árangurinn talar sínu máli

Einungis rúmu hálfu ári eftir útgáfu nýrrar framkvæmdaáætlunar 2026–2030 eru 85 prósent af verkefnum áætlunarinnar nú þegar komin í ferli. Áætlunin gerir ráð fyrir 1.507 rýmum (þar af 1.355 nýjum rýmum), sem jafngildir 44 prósenta fjölgun hjúkrunarrýma á aðeins fimm árum. Nú þegar hafa yfir 200 ný og endurnýjuð rými verið tekin í notkun á þessu ári og um 500 rými eru á framkvæmdastigi. Vegna frumkvæðis ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að biðlistum eftir almennum hjúkrunarrýmum verði eytt eins og kostur er í árslok 2030.

Það er auðvelt að teikna upp áætlanir og lofa uppbyggingu til framtíðar. Það krefst hins vegar öruggrar forystu að ná fram nauðsynlegum lagabreytingum, semja við sveitarfélög og hefja raunverulegar byggingarframkvæmdir. Það er nákvæmlega það sem núverandi ríkisstjórn undir forystu Ingu Sæland hefur gert.

Höfundur er þingmaður Flokks fólksins.




Skoðun

Sjá meira


×