Tónlist

Ís­land ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Euro­vision

Lovísa Arnardóttir skrifar
Dara frá Búlgaríu með bikarinn þegar lá fyrir að hún hefði sigrað keppnina í fyrra.
Dara frá Búlgaríu með bikarinn þegar lá fyrir að hún hefði sigrað keppnina í fyrra. Vísir/EPA

Alls taka 36 lönd þátt í Eurovision á næsta ári. Kanada tekur þátt í fyrsta sinn og Norður-Makedónía snýr aftur eftir fjögurra ára hlé. Spánn og Slóvenía hafa frest þar til í desember til að tilkynna um þátttöku. Ísland er ekki á lista en stjórn RÚV hefur gefið út að þau myndu ekki vilja að Ísland tæki þátt nema Ísrael yrði meinuð þátttaka. Sem hefur ekki verið gert. 

Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) hefur staðfest lista yfir sjónvarpsstöðvar sem senda keppanda fyrir sína hönd í Eurovision-söngvakeppninni 2027 í maí á næsta ári. 

Í tilkynningu frá EBU kemur fram að 36 sjónvarpsstöðvar, sem ná til nærri 600 milljóna manna, muni senda lög og listamenn til Burgas í Búlgaríu. Keppnin fer fram dagana 11. til 15. maí 2027 og verður haldin af búlgarska ríkissjónvarpinu (BNT) í Arena Burgas.

Kanada tekur þátt í keppninni í fyrsta sinn eftir að hafa orðið fullgildur aðili að EBU í júlí 2026, og Norður-Makedónía snýr aftur í keppnina eftir fjögurra ára fjarveru.

Í tilkynningu segir að RTVE (Spánn) og RTVSLO (Slóvenía) hafi ekki enn ákveðið hvort þær taki þátt í Eurovision-söngvakeppninni 2027. Í ljósi þess hve flókið málið er hefur EBU samþykkt að veita báðum stöðvunum frest til desember til að staðfesta þátttöku. Greint var frá því í gær að Hollendingar taki ekki þátt. Áður hefur verið greint frá því að Írar taki heldur ekki þátt. 

Greint var frá því í lok síðasta mánaðar að meirihluti stjórnarmanna Ríkisútvarpsins vildi að Ísland tæki ekki þátt í Eurovision árið 2027 nema Ísrael yrði meinuð þátttaka í keppninni. Líkt og frægt er orðið tók Ísland ekki þátt í keppninni í ár vegna þátttöku Ísraels í keppninni og þá var heldur engin Söngvakeppni haldin, í fyrsta sinn um árabil.

Sex af níu stjórnarmönnum beindu því til útvarpsstjóra á fundi í september að tilkynna Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, að RÚV tæki ekki þátt í Eurovision 2027 nema Ísrael yrði meinuð þátttaka. Ingvar Smári Birgisson er einn þeirra þriggja stjórnarmanna sem andmæltu ákvörðuninni. 

Nýjar reglur um þátttöku og sigur tóku gildi í sumar. Nýjar reglur kveða til dæmis á um að  flytjendur þurfi að vera eldri en átján ára og að sigurþjóðir geti misst rétt á að halda keppnina ef vopnuð átök eiga sér stað í landinu.

Sama snið og áður

Líkt og fyrri ár verða tvö undanúrslitakvöld og munu dómnefndir og áhorfendur í sameiningu kjósa um það hvaða tíu lög komast áfram af fyrra undanúrslitakvöldinu þriðjudaginn 11. maí og hvaða tíu lög komast áfram af seinna undanúrslitakvöldinu fimmtudaginn 13. maí.

Þessi tuttugu lög bætast við framlög gestgjafanna í Búlgaríu, og framlög Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Bretlands, sem eiga sjálfkrafa sæti í úrslitunum á úrslitakvöldinu laugardaginn 15. maí.

Haft er eftir Martin Green CBE, framkvæmdastjóri Eurovision-söngvakeppninnar, í tilkynningu að Eurovision sé meira en „bara keppni“ og hafi alltaf verið það.

„Hún hefur komið ferli nýrra listamanna af stað og kynnt hundruð nýrra laga á hverju ári. Í heimi sem getur virst sífellt sundraðri sameinar hún áhorfendur í gegnum tónlist, þvert á landamæri, tungumál og menningu, og það skiptir meira máli nú en nokkru sinni fyrr.“

Himinlifandi að fá Kanada

Hann segir EBU himinlifandi með að bjóða Kanada til keppni í fyrsta sinn og að Norður-Makedónía snúi aftur.

„Búlgaría hlakkar mikið til að taka á móti keppendunum og öllum aðdáendunum sem koma sérstaklega til að fylgjast með flutningnum í beinni. Við vinnum að því að skapa ógleymanlega upplifun fyrir áhorfendur heima í stofu, gesti í salnum og alla gesti í hinni fallegu Burgas,“ segir Milena Milotinova, útvarpsstjóri gestgjafastöðvarinnar BNT, í tilkynningunni.

„Eurovision-söngvakeppnin er ekki bara sjónvarpsþáttur heldur alþjóðlegur viðburður sem í gegnum tónlistina hvetur fólk til að uppgötva nýja staði og eignast nýja vini. Við trúum því að ekki aðeins í Burgas, heldur einnig í hverju öðru horni Búlgaríu sem gestir okkar heimsækja, muni þeir finna hlýju, fegurð og ástæðu til að snúa aftur til Búlgaríu. Við hlökkum til að sjá ykkur.“

Núverandi listi yfir þær sjónvarpsstöðvar sem taka þátt í 71. Eurovision-söngvakeppninni er eftirfarandi:

  1. RTSH (Albanía)
  2. AMPTV (Armenía)
  3. SBS (Ástralía)
  4. ORF (Austurríki)
  5. İctimai (Aserbaísjan)
  6. VRT (Belgía)
  7. BNT (Búlgaría)
  8. CBC/Radio-Canada (Kanada)
  9. HRT (Króatía)
  10. CyBC (Kýpur)
  11. DR (Danmörk)
  12. ERR (Eistland)
  13. YLE (Finnland)
  14. FT (Frakkland)
  15. GPB (Georgía)
  16. ARD/SWR (Þýskaland)
  17. ERT (Grikkland)
  18. KAN (Ísrael)
  19. Rai (Ítalía)
  20. LSM (Lettland)
  21. LRT (Litháen)
  22. RTL (Lúxemborg)
  23. PBS (Malta)
  24. TRM (Moldóva)
  25. RTCG (Svartfjallaland)
  26. MRT (Norður-Makedónía)
  27. NRK (Noregur)
  28. TVP (Pólland)
  29. RTP (Portúgal)
  30. TVR (Rúmenía)
  31. SMRTV (San Marínó)
  32. RTS (Serbía)
  33. SVT (Svíþjóð)
  34. SRG SSR (Sviss)
  35. Suspilne (Úkraína)
  36. BBC (Bretland)

Tengdar fréttir

Sendum Möggu Stínu í Eurovision

Friðrik Ómar Hjörleifsson tónlistarmaður á frækinn feril að baki. Þegar hann var að koma úr skápnum 25 ára gamall var faðir hans heitinn síðasta fyrirstaðan í veginum; grjótharður stuðningsmaður Miðflokksins og Trumps. Friðrik ræðir tónlistarbransann í ítarlegu viðtali, jólin og Eurovision, en hann vill helst senda Möggu Stínu til að keppa næst fyrir Íslands hönd.

Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu

Hollendingar snúa aftur í Eurovision árið 2027 eftir að hafa sniðgengið síðustu keppni vegna þátttöku Ísraela. Írska ríkisútvarpið heldur sniðgöngu sinni áfram en Rúv hefur enn ekki ákveðið hvort Íslendingar muni taka þátt.

Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð

Írska ríkissjónvarpið, RTÉ, hefur staðfest að Írland muni ekki taka þátt í Eurovision í ár og að þau muni heldur ekki sýna keppnina á sjónvarpsstöð sinni. Írar tóku ekki þátt í Eurovision í fyrra eins og Ísland, Holland og Spánn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.