Erlent

Opin­beruðu lög­brot í kjúklingabúi með falinni mynda­vél

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Myndefnið úr földu myndavélinni sýnir bágborið ástand dýranna í danska búinu.
Myndefnið úr földu myndavélinni sýnir bágborið ástand dýranna í danska búinu. EPA/CJ GUNTHER

Eitt stærsta kjúklingabú Danmerkur brýtur reglur er varða hvíldartíma dýra til þess að hraða framleiðslu á kjúklingakjöti. Þetta sýnir umfjöllun danska miðilsins TV2 sem nýtti faldar myndavélar til þess að opinbera að dýrin fá einungis þrjár klukkustundir af myrkri á dag en dönsk lög kveða á um að klukkustundirnar verði að vera sex. Danskur ráðherra vill banna framleiðslu þess sem kallað er „túrbókjúklingur“ í dönskum miðlum.

Umfjöllun miðilsins snýst um starfsemi kjúklingabús í Norður-Jótlandi sem er í eigu danska bóndans Christian Tvergaard. TV2 setti falda myndavél á starfsmann búsins sem starfaði þar frá 19. maí 2025 til 8. júlí sama ár. Bóndinn segir á myndbandsupptöku TV2 að hann nýti skemmri birtutíma til þess að fá dýrin til þess að borða meira svo þau bæti hraðar á sig þyngd. Þá segir miðillinn að upptökurnar sýni einnig bágborið ástand þó nokkurra fugla í búi bóndans.

Vísir hafði eftir dönskum miðlum árið 2023 að hinn svokallaði „túrbókjúklingur“ væri frekar keyptur í Danmörku heldur en venjulegur kjúklingur. Kjúklingurinn er ræktaður til þess að stækka hraðar en venjulegur kjúklingur og er dýrið orðið tvö kíló að þyngd 33 dögum eftir að þeir koma í heiminn. Til samanburðar eru venjulegar hænur um 46 til 63 daga að stækka svo þær séu tilbúnar til slátrunar.

Fram kemur í umfjöllun danska miðilsins Berlingske að bann við slíkri ræktun njóti æ meira fylgis á danska þinginu og að svo virðist vera sem pólitískur meirihluti sé við það að myndast. TV2 hefur eftir Christian Rabjerg Madsen, ráðherra náttúru- og dýravelferðar, að hann vilji vinna að banni á framleiðslu „túrbókjúklings“. Kanna þurfi málið til hlýtar.

„Ég er reiður út af þessu myndefni og við sjáum að þessari ræktun fylgja vandamál varðandi velferð kjúklinganna, því þeir vaxa einfaldlega of hratt til þess að líkaminn geti fylgt þeim eftir,“ segir ráðherrann við TV2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×