Erlent

Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám

Freyja Þórisdóttir skrifar
Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á kjörseðlinum sé í raun spurt hvort kjósendur telji hann bera ábyrgð á því að ekki hefði tekist að afstýra árás Hamas 7. október 2023.
Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á kjörseðlinum sé í raun spurt hvort kjósendur telji hann bera ábyrgð á því að ekki hefði tekist að afstýra árás Hamas 7. október 2023. Getty

Metfjöldi Ísraela gekk að kjörborðinu í dag en reiknað var með því að ríflega sjö milljónir manns greiddu atkvæði. Miðað við fyrstu útgönguspár mun hvorki fylking Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra né stjórnarandstaðan ná þeim 61 þingsætum sem þarf til að mynda meirihluta á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti.

Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun katörsku fréttaveitunnar Al Jazeera en þar segir einnig að samkvæmt ísraelsku sjónvarpsstöðinni Channel 12 sé stjórnarandstöðunni spáð 52 þingsætum en fylkingu Netanyahus fimmtíu þingsætum. Flokkum araba sé samanlagt spáð 18 þingsætum.

Metkjörsókn 

Talið er að um 70 þúsund Ísraelar, búsettir erlendis, hafi komið heim til að kjósa og um hálf milljón manna mun greiða atkvæði sitt í fyrsta sinn. Þá var kjörsókn komin upp í sem nam um 74 prósentum, sem er met, tveimur klukkstundum áður en kjörstaðir lokuðu, eftir því sem fram kemur í umfjöllun Al Jazeera.

Helsti áskorandi og andstæðingur Netanjahú er Gadi Eisenkot, fyrrverandi yfirmaður ísraelska hersins. Nýr miðjuflokkur hans, Yashar, fær 22 sæti miðað við útgönguspárnar en Likud, flokkur Netanjahú, tveimur fleiri eða 24 sæti. Síðustu kannanir sem birtar voru fyrir kosningar voru mjög samstíga. Þær bentu allar til þess að Yashar-flokkur Eisenkot myndi naumlega hafa betur.

Leikur á hnífsegg

Skortur á skýrum sigurvegara er einnig í samræmi við kannanir síðustu vikna sem spáðu því að ótvíræð niðurstaða væri ólíkleg. Þessar fyrstu spár benda til þess að á næstu dögum og vikum muni flokkar og leiðtogar þeirra semja sín á milli í tilraun til að tjasla saman nægum stuðningi til að mynda ríkisstjórn, mögulega með stuðningi flokka undir forystu Araba, sem hafa almennt ekki átt aðild að stjórnarsamstarfi.

Bæði Netanjahú og Eisenkot gætu lýst yfir sigri og biðlað til Isaacs Herzog forseta um að fá fyrsta tækifærið til stjórnarmyndunar, er fram kemur í umfjöllun The Times of Israel um málið.

Það skilji jafnframt eftir þann möguleika að hvorki Netanjahú né andstæðingum hans takist að mynda stjórn. Í því tilviki gæti Ísrael þurft að kjósa aftur og Netanjahú sæti þá áfram sem starfandi forsætisráðherra. Það yrði endurtekning á árunum 2019 til 2022, þegar fimm kosningar voru haldnar í landinu.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×