Innlent

Ríkis­stjórnin sam­þykkir frum­varp ráð­herra um herta inn­flytj­endalöggjöf

Kjartan Kjartansson skrifar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra úr flokki Viðreisnar hefur ráðist í ýmsar aðgerðir til þess að herða innflytjendalöggjöfina. Nú hefur hún fengið frumvarp sem takmarkar veitingu dvalarleyfa samþykkt í ríkisstjórn.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra úr flokki Viðreisnar hefur ráðist í ýmsar aðgerðir til þess að herða innflytjendalöggjöfina. Nú hefur hún fengið frumvarp sem takmarkar veitingu dvalarleyfa samþykkt í ríkisstjórn. Vísir/Einar

Frumvarp Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra, sem setur aukin skilyrði fyrir því að útlendingar fái dvalarleyfi á landinu var afgreitt úr ríkisstjórn í morgun. Meðal annars er þrengt að fjölskyldusameiningum með frumvarpinu.

Frumvarpið er sagt fela í sér viðamestu breytingar sem gerðar hafa verið á dvalarleyfiskafla útlendingalag í áratug í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Því sé ætlað að „samræma“ íslenskar reglur við löggjöf Norðurlanda.

Verði frumvarpið að lögum þurfa umsækjendur um dvalarleyfi á forsendum fjölskyldusameiningar að hafa búið saman í tvö ár í stað eins árs áður. Báðir þurfa jafnframt að hafa náð 24 ára aldri þegar leyfið er veitt. Umsækjandi þarf einnig að hafa íbúðarhúsnæði sem rúmar allar fjölskylduna til umráða þegar hann sækir um.

Almennur búsetutími sem þarf til þess að öðlast ótímabundið dvalarleyfi lengdist einnig úr fjórum árum í sex með samþykkt frumvarpsins. Frumvarpið felur í sér viðbótarkröfu um að umsækjendur um ótímabundin dvalarleyfi séu skuldlausir við ríkið.

Einna mesta athygli hefur ákvæði frumvarpsins sem fellir niður heimild fyrir dvalarleyfum vegna vistráðningar fólks utan EES fengið. Notendur au pair-þjónustu hafa meðal annars mótmælt þeirri breytingu.

Markmiðið með því að fella úr gildi dvalarleyfi vegna vistráðningar er sagt að draga úr hættu á að „misneytingu fólks“ sem hafi dvalarrétt sem sé bundinn við eina fjölskyldu og hafi takmarkaða möguleika til að leita réttar síns.

Með samþykkt frumvarpsins fengju fórnarlömb mansals og brota á vinnumarkaði allt að tólf mánaða dvalarleyfi til þess að leita réttar síns og finna annað starf án þess að missa dvalarrétt sinn. Slík leyfi yrðu þó að uppfylltum ýmsum skilyrðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×