Sport

Utan vallar: Fólk með ADHD má spila í­þróttir

Valur Páll Eiríksson skrifar
Veigar Páll Alexandersson féll á lyfjaprófi í vor og er í banni fram í maí á næsta ári. Bann hans þýðir aftur á móti ekki að allir sem taki inn ADHD-lyf eigi á hættu á leikbanni.
Veigar Páll Alexandersson féll á lyfjaprófi í vor og er í banni fram í maí á næsta ári. Bann hans þýðir aftur á móti ekki að allir sem taki inn ADHD-lyf eigi á hættu á leikbanni. vísir/Guðmundur

Borið hefur á misskilningi í umræðu um leikbann Veigars Páls Alexanderssonar, leikmanns Njarðvíkur í körfubolta, vegna brots hans á lyfjareglum. Veigar Páll tók inn ADHD-lyf sem urðu til þess að hann var sendur í bann.

Sú staðreynd að Veigar hafi farið í bann fyrir notkun ADHD-lyfja þýðir ekki að allir þeir sem eru með ADHD fái bann fyrir slíkt. Veigar tók inn lyf án þess að vera með greiningu og án þess að hafa undanþágu frá Lyfjaeftirliti Íslands.

Raunar eru fjölmargir íþróttamenn á Íslandi, og víða um heim, með ADHD-greiningu og taka inn lyf sem innihalda efni á bannlista lyfjastofnunarinnar WADA (World Anti-Doping Agency). Flestöll ADHD-lyf teljast til stimúlanta sem almennt eru bannaðir sökum þess að þeir bæti frammistöðu í íþróttum.

Efnin methylphenidate (sem er í ADHD-lyfjunum Ritalin, Concerta og Daytrana), amfetamín og dextroamphetamine (sem eru í Adderall og Dexedrine) og lisdexamfetamine (sem er í Vyvanse) eru allt dæmi um efni á bannlista WADA sem eru í ADHD-lyfjum sem fjölmargir víða um heim taka inn dagsdaglega.

Íþróttamenn sem taka þau efni inn þurfa að skila inn læknisvottorði og fá sér til gerða undanþágu frá Lyfjaeftirliti Íslands og færu því ekki í bann ef viðkomandi efni finnst í sýni þeirra, innan þeirra marka sem undanþágan segir til um.

Önnur dæmi um slíkar undanþágur gætu verið íþróttamenn sem glíma við blóðþrýstingsvandamál, eða æða- eða hjartasjúkdóm og þurfa að taka inn beta-blockera sem lækka blóðþrýsting og hægja á hjartslætti. Slík lyf eru einnig á bannlista WADA en íþróttamenn geta tekið inn ef þeir hafa til þess undanþágu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×