Innlent

Hafa lagt sig fram við að eyða ó­vissunni

Bjarki Sigurðsson skrifar
Magnús Kristjánsson er forstjóri Stofnunar atvinnuveganna.
Magnús Kristjánsson er forstjóri Stofnunar atvinnuveganna. Stjórnarráðið/Sigurjón Ragnar

Enn er ekki búið að ráða alla þá heilbrigðisfulltrúa sem sagt var upp um mánaðamótin í ný störf hjá ríkinu. Forstjóri Stofnunar atvinnuvega vonast til að lágmarka allt hökt þegar stofnunin tekur til starfa og hefur lagt mikið upp úr mannauðsmálum frá því að hann hóf störf.

Rúmar þrjár vikur eru síðan öllum heilbrigðisfulltrúum landsins var sagt upp vegna tilfærslu verkefna heilbrigðiseftirlits frá sveitarfélögum til ríkisins. Þegar tilfærslan var ákveðin var tilkynnt að stefnt væri að því að búið yrði að bjóða öllum fulltrúunum starf hjá ríkinu þegar kæmi til uppsagna. Það gekk ekki eftir og sagði einn fulltrúi í samtali við fréttastofu að uggur væri innan stéttarinnar vegna þessa.

Verkefnum fulltrúanna er skipt á milli Umhverfis- og orkustofnunar og nýrrar Stofnunar atvinnuvega sem tekur til starfa um áramótin. Magnús Kristjánsson, forstjóri stofnunarinnar, telur stofnunina vel í stakk búna við að taka við verkefnunum.

„Ég hóf störf 1. október síðastliðinn og hef forgangsraðað öllum mínum tíma í mannauðsmálin og í að tryggja að óvissu starfsmanna sem hafa tækifæri á að starfa hjá Stofnun atvinnuveganna verði eytt sem fyrst. Við munum síðar í dag senda þessum starfsmönnum upplýsingar um hvernig þeir geta sótt um störf hjá stofnuninni. Við gerum ráð fyrir að taka við um tuttugu starfsmönnum,“ segir Magnús. 

Hann vonast til að lágmarka allt hökt þegar stofnunin tekur til starfa. Hann skynji að fólk sé áhyggjufullt.

„Það er uggandi yfir framtíðinni. Þess vegna höfum við lagt okkur fram við að vinna þetta eins hratt og hægt er til að eyða þessari óvissu. Annars held ég að fólk sé eins jákvætt og hægt er miðað við þá stöðu sem er uppi,“ segir Magnús. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×