Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar 24. október 2026 09:01 Þrátt fyrir þá staðreynd að á hverju ári hverfum við sjónum hvors annars þegar myrkrið heimtar stærri og stærri skerf af sólhringnum, þá ganga enn um götur og torg einstaklingar sem enginn sér. Þetta eru hvorki framliðið fólk né óprúttnir aðilar sem vilja fela sig í myrkrinu, heldur bara venjulegt fólksem hefur gleymt að huga að sýnileika sínum, með því að setja á útifötin sín lítið merki eða límmiða sem endurvarpar ljósi svo ökumenn sjái það í myrkrinu. Undir lok október er sólarupprás um 9 á morgnanna og sólin sest um kvöldmatarleytið. Þeir sem eru á leið til skóla og vinnu á þessum tíma gera það því í myrkri og sama gildir um útihreyfingu eftir kvöldmat, hvort sem farið er út að skokka eða ganga með hundinn. Sem betur fer er götulýsing víða góð en á hana er ekki alltaf að treysta í dembu eða dimmum éljum. Í dökkum fötum verðum við nær ósýnileg við þessar aðstæður og það skapar mikla slysahættu. Ef við erum ekki með endurskinsmerki sjá ökumenn okkur í um 20-30 metra fjarlægð, en með endurskinsmerki fimmföldum við þessa vegalengd hið minnsta í 150 metra. Í beinni sjónlínu og stilltu veðri getur endurskinsmerki sést í 300 metra fjarlægð í myrkrinu. Staðsetning endurskinsmerkja Staðsetjum endurskin á ökkla, úlnlið, hné eða pedala reiðhjóls, því bílstjórar greina þá hreyfingu sem þeir tengja við mannslíkamann. Hugur okkar þekkir göngulag og handahreyfingar og tengir takt endurskinsmerkis sem staðsett er á þessum liðamótum strax við manneskju. Mörg okkar treysta á eitt lítið endurskinsmerki hangandi á jakkanum, en rannsóknir og reynsla sýna að sýnileikinn verður mestur þegar endurskin er staðsett neðarlega á líkamanum þar sem hreyfingin er mest. Endurskin á ökklum og úlnliðum getur skipt sköpum þegar ökumaður þarf að átta sig á því að einstaklingur sé að fara yfir götu eða ganga meðfram vegi. Einnig er mikilvægt að muna að endurskin nýtist aðeins þegar ljós fellur á það. Því meira sem endurskin sést frá mismunandi sjónarhornum, því fyrr tekur ökumaður eftir þér. Endurskinsvesti, armbönd eða endurskinsræmur á fatnaði geta því aukið öryggi verulega. Ert þú með endurskinsmerki á? Á vetrarjakkanum? Á skólatöskunni? Á hundinum? Á hlaupafatnaðinum? Á hjólinu? Á hestinum? Viðvörunarþríhyrning í bílnum? Fyrir unglinga og ungmenni með djúpa tískuvitund er hægt að kaupa endurskinslímmiða sem má klippa út í því formi sem uppfyllir tískustaðla þeirra eða klippa út einfaldar og látlausar ræmur sem lítið þarf að fara fyrir. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að allir séu sýnilegir í myrkrinu. Við sjáum okkur oft sem sýnilegri en við erum í raun. Þó þú sjáir bílinn þýðir það ekki endilega að ökumaðurinn sjái þig. Með einföldum aðgerðum eins og góðu endurskini verðum við sýnileg úr mun meiri fjarlægð og gefum ökumönnum þann tíma sem þeir þurfa til að bregðast við. Sjáumst í vetur. Höfundur er sérfræðingur í forvörnum hjá Verði tryggingum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ágúst Mogensen Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar