Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Birgir Olgeirsson skrifar 22. október 2026 21:02 Frá framkvæmdum við Hlemm. Í maí var áætlað að vinnu í Þverholti lyki um mitt sumar en í nýrri kynningu er sagt að hún sé í fullum gangi. Vísir/Vilhelm Framkvæmdir í Þverholti við Hlemm, sem áætlað var að stæðu fram á mitt sumar, eru enn í fullum gangi. Reykjavíkurborg stefnir nú að því að ljúka þeim fyrir áramót. Á sama tíma er nýr framkvæmdaráfangi að hefjast á norðursvæði Hlemms vegna uppbyggingar Borgarlínu. Honum á að ljúka í lok árs 2027.
Þetta kemur fram þegar borin er saman tímaáætlun á framkvæmdavef borgarinnar og ný kynning á stöðu framkvæmda við Hlemm fyrir umhverfis- og skipulagsráð í gær. Í stöðuuppfærslu frá maí sagði að vinna við veitulagnir í Þverholti væri í gangi. Í framhaldinu yrði gengið frá yfirborði, aðkoma að inngöngum húsa bætt og rampar gerðir þar sem því yrði komið við. „Áætlað er að þessar framkvæmdir standi fram á mitt sumar,“ sagði í uppfærslunni. Tölvuteikning af fyrirhuguðu útliti Hlemmtorgs við Hverfisgötu. Þar verður gamla húsinu Norðurpól, sem áður stóð við Hverfisgötu 125, komið fyrir. Austan við húsið verður leikhöll, opið stálgrindarhús með leikaðstöðu fyrir alla aldurshópa og sérstöku svæði fyrir yngstu börnin á jarðhæð.Reykjavík Í nýju kynningunni er verkinu hins vegar lýst sem framkvæmd í fullum gangi og sagt að stefnt sé að verklokum fyrir áramótin 2026–2027. Ekki er þar skýrt hvers vegna tímaáætlunin hefur breyst eða hvort breytingin hafi áhrif á kostnað við verkið. Svæðið við leikhöllina klárist fyrir áramót Við Norðurpól og fyrirhugaða leikhöll er frágangur torgsvæðisins enn eftir. Samkvæmt kynningunni á að ljúka framkvæmdum við svæðið umhverfis leikhöllina fyrir áramót. Í maí taldi borgin líklegt að svæðið næst Hverfisgötu, þar sem Norðurpóll og leikhöllin verða, yrði tilbúið á haustmánuðum. Tölvuteikning af fyrirhuguðu útliti norðursvæðis Hlemms. Við mathöllina verður Borgarlínustöð með biðskýlum. Jafnframt er gert ráð fyrir hjólahúsi, torgsvæði, gróðri og aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi.reykjavík Leikhöllin verður í stálgrindarhúsi austan við Norðurpól og er ætluð öllum aldurshópum, með aðstöðu fyrir yngstu börnin á jarðhæð. Grunnurinn er kominn á sinn stað og leiktækin eru sögð á leið til landsins. Nýr áfangi stendur út næsta ár Fleiri framkvæmdir eru fram undan við Hlemm. Reykjavíkurborg tilkynnti í gær að vinna við norðursvæði Hlemms og uppbyggingu Borgarlínu hæfist á næstu dögum. Áætlað er að þeim áfanga ljúki í lok árs 2027. Samið hefur verið við Gröfu og Grjót um verkið. Endurgera á gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu og Snorrabraut frá Bríetartúni að Hverfisgötu. Jafnframt verður lögð leið fyrir Borgarlínu um torgið, komið upp stöð og lagnir endurnýjaðar. Akreinar um torgið verða eingöngu ætlaðar almenningssamgöngum og viðbragðsaðilum Göngu- og hjólaleiðir afhentar í mars Í kynningunni er jafnframt farið yfir framkvæmd Betri samgangna á Laugavegi. Þar er unnið að fyrsta fasa af þremur. Fyrirhugað hjólahús sést hægra megin á tölvuteikningunni. Það verður létt skýli með hjólarekkum á tveimur hæðum. Samkvæmt kynningu borgarinnar hefur markaðskönnun verið send út til að kanna áhuga mögulegra rekstraraðila.Reykjavík Áætlað er að göngu- og hjólaleiðir verði afhentar í mars á næsta ári og að framkvæmdinni ljúki í lok maí 2027.
Borgarstjórn Reykjavík Skipulagsmál Samgöngumál Borgarlína Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira