„Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. október 2026 20:50 Eva Pandóra segir kynfræðslu vera svarið við hugmyndum ungu kynslóðarinnar um kynlíf. Margrét Rúnarsdóttir Sambands- og kynlífsráðgjafi segir krakka fá kynfræðslu allt of seint, hún skipti sköpum þegar þeim sé kennt um mörk í kynlífi. Hugmyndir ungu kynslóðarinnar um kynlíf mótist of mikið af klámi. Dæmi séu um að foreldrar hafi tekið börn sín úr kynfræðslu en Evavill að aldursviðeigandi kynfræðsla sem felist í fræðslu um mörk hefjist í leikskóla.
Rætt var við Evu Pandóru Baldursdóttur sambands- og kynlífsráðgjafa í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Tilefnið eru fréttir af því að mun algengara sé að yngri konur en eldri séu beittar kyrkingartaki í kynlífi án samþykkis og orð kennara sem segir sláandi hve útbreidd sú skoðun sé orðin að ofbeldi sé eðlilegur fylgifiskur kynlífs. „Það er eitthvað trend þarna hjá einhverjum aldursflokki og við þurfum að ræða hvernig hugmyndir okkar um kynlíf eru að mótast. Erum við að fá þær úr klámi, á samfélagsmiðlum? Við erum kannski ekki að fá fræðslu um samþykki, um mörk, við verðum að kenna ungu fólki þessa hluti áður en það fer út í samfélagið að stunda þetta og prófa þetta,“ segir Eva. Hún segir skaðlegt unglingum að horfa á klám, það sé allt annað þegar fullorðið fólk sé um að ræða. Ofbeldi sé mjög algengt í klámi sem og kvenfyrirlitning. „Og ef það er þetta sem unga fólkið okkar er að horfa á....það er með mjög greiðan aðgang að þessu, það er auðveldara að komast í þetta heldur en að labba út í sjoppu. Ef þetta er það eina en ekki fræðsla um mörk, um samþykki, kynfræðsla þarf að vera meira heldur en bara hvernig er komið í veg fyrir getnað eða kynsjúkdóma. Það þarf að fræða um samþykki. Það hafa margir lært að nei þýði nei, en fólki er ekki kennt: Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Eva segir öfluga kynfræðslu vera það eina sem virki. Aldursviðeigandi kynfræðslu sé þörf á öllum skólastigum. En hefur hún ekki verið stóraukin síðustu árin, áratugina? „Það hefur verið aukið en við sjáum það alveg í samfélaginu að það er fólk sem er á móti því, það er fólk sem tekur börnin sín úr skóla þegar það er kynfræðsla í gangi því þau eru hrædd um að þessi kynfræðsla eigi eftir að skaða börnin þeirra. Það eru alveg eðlilegar áhyggjur, það vill enginn kynlífsvæða börnin en þetta er aldursviðeigandi kynfræðsla eins og er bara gert í mörgum skólum. Þarna eru börnin að læra um samþykki og börn og ýmislegt.“ Er verið að kenna þeim um kyrkingartak? „Nei, ég er ekki viss um það. Það er ekki verið að kenna þeim kynlífstengda hluti. Það er ekki verið að kenna þeim hvað þau geti gert í kynlífi, það er verið að kenna þeim um mörk og samskipti og hvernig þau eiga að bera sig að í þessum samskiptum. Réttinn til að segja nei og ábyrgðina sem fylgir því að fylgjast með því að það sé já.“ Eva, tölum íslensku hérna, krakkar eru að horfa á klám, er kynfræðslan ekki bara að koma allt of seint? „Ég held það sko, mér finnst að kynfræðsla ætti að koma bara mjög snemma.“ Hversu snemma? „Mér finnst hún ætti að vera bara frá því í leikskóla, en bara aldursviðeigandi.“ Frá leikskóla? „Já, í leikskóla þá áttu að kenna börnum að þú þurfir að biðja um leyfi til þess að knúsa einhvern annan. Þetta er kynfræðsla. Þetta er fræðsla í því hvernig við högum okkur, mörk, samþykki. Ég kenni leikskólabarninu mínu að það eigi ekki að vera að knúsa án þess að biðja um leyfi, svona fræðsla, þetta er þessi „kynfræðsla“ innan gæsalappa sem allir eru svo hræddir við að börnin okkar fái, þetta er gott.“
Kynferðisofbeldi Grunnskólar Leikskólar Reykjavík síðdegis Kynlíf Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira