Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum Smári Jökull Jónsson skrifar 21. október 2026 13:00 Nóg hefur verið að gera á dekkjaverkstæðum í morgun enda vetrarfærð víða um land. Vísir/Vilhelm Víða var hálka á vegum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og víða á Vesturlandi í morgun eftir kólnandi veður í nótt. Vegagerðin hvetur ökumenn til varkárni. Að sögn yfirlögregluþjóns var þó lítið um umferðaróhöpp í morgun en nóg var hins vegar að gera á dekkjaverkstæðum.
Hálka tók á móti íbúum höfuðborgarsvæðisins eftir næturfrost á suðvesturhorninu í nótt. Þurftu margir að grípa til sköfunnar áður en haldið var af stað út í umferðina sem gekk hægt í morgun að sögn Árna Friðleifssonar yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Morguninn hafi þó verið rólegur og þegar fréttastofa náði tali af Árna á ellefta tímanum hafði engin tilkynning borist um umferðaróhöpp. Meira að gera en á sama tíma í fyrra Hins vegar var nóg að gera á dekkjaverkstæðum og morguninn sá stærsti í dekkjaskiptum á þessu hausti að sögn Reynis Stefánssonar framkvæmdastjóra Dekkjahallarinnar. „Það hefur verið mikið að gera og í raun og veru bara mikið álag. Við gerum allt sem við getum til að taka hratt og vel á móti viðskiptavinunum en þegar veturinn bankar upp þá vilja náttúrulega allir koma á sama tíma,“ sagði Reynir í hádegisfréttum Bylgjunnar. Ökumenn séu bæði að setja ónegld og negld vetrardekk undir bílana, þau negldu henti betur við erfiðar aðstæður utanbæjar á ísilögðum vegum. Þá virðist sem fólk sé betur meðvitað um vetrarkomuna nú en áður. „Ég held það sé ekki spurning, á sama tíma í fyrra þá er búið að vera miklu meira að gera heldur en til að mynda á sama tíma fyrir ári síðan. Þannig að það er bara mjög gott að fólk sé að kveikja aðeins á hlutunum og bregðast hraðar við,“ bætir Reynir við. Varað við hálku víða um land Á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is, er varað við hálku eða hálkublettum á Reykjanesbraut og Mosfellsheiði en Hellisheiði er greiðfær. Hálkublettir eru norðan af Borgarnesi og á Holtavörðuheiði og hálka á hringveginum um Mývatns- og Möðrudalsöræfi sem og á flestum vegum á Vestfjörðum en síður á Austurlandi. Þá eru hálkublettir á hringveginum um Síðu, Eldhraun og Mýrdalssand og víða á Suðurlandi.
Veður Færð á vegum Umferð Umferðaröryggi Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk Sjá meira