Skoðun

Smekk­vísi er ekki samnings­bundin

Ásgeir Guðmundsson skrifar

Í Kveik í síðustu viku var dregin upp mynd af íslenskum veitingamönnum sem viljalausum verkfærum vondra drykkjarvöruframleiðenda; mönnum sem eru bundnir á klafa samninga og láta smáa letrið ráða því hvað ratar í glösin. Ég rek Skreið, Röntgen og Austurbæjarbíó og Ölgerðin er minn stærsti birgi. Ég kannast ekki við þessa mynd.

Ég felli ekki dóm um það sem Samkeppniseftirlitið hefur til rannsóknar. Um starf veitingamannsins get ég hins vegar talað, og þar tek ég undir með þeim kollegum mínum sem hafa stigið fram og klórað sér í kollinum yfir þeirri mynd sem Kveikur dró upp af starfsemi Ölgerðarinnar.

Hver sem hefur komið á staðina mína sér að ég er ekki bundinn einum birgja. Ég kaupi raunar vörur af 14 drykkjarvörubirgjum og nota dælur og búnað frá Ölgerðinni undir vörur frá keppinautum fyrirtækisins. Á Röntgen er Peroni og náttúruvín á dælu, og þar er ein dæla alltaf frátekin fyrir smábrugghús. Á Skreið er Estrella á dælu og þar er hægt að kaupa bæði kók og pepsi max. Red Bull er á boðstólnum á öllum mínum skemmtistöðum. Enginn hefur haft í hótunum við mig vegna þessa.

Sölufólk Ölgerðarinnar er metnaðarfullt og stundum aðgangshart. Það er kostur en ekki galli, því þar er fólki annt um árangurinn. Ég þekki alla þar sem sinna mér með nafni. Þau þrífa dælur sem standa undir vörum keppinauta þeirra og sinna viðhaldi á kælum sem geyma líka önnur vörumerki. Það kalla ég ekki yfirgang, heldur þjónustu.

Ég kaupi mest af Ölgerðinni vegna þess að vöruúrvalið er framúrskarandi og fólkið þar kann sitt fag. Þegar þau eiga ekki það sem ég leita að, fer ég annað. Í því felst öll einokunin.

Ég á í frábærum samskiptum við aðra birgja, sem margir bjóða spennandi vörur og persónulega þjónustu sem setur mark sitt á staðina mína. Fjölbreytnin á markaðnum er styrkur íslenskrar veitingamenningar og ég nýti mér hana óspart.

Veitingamenn eiga að standa í fæturna. Við sýnum birgjum okkar tryggð, en æðsta tryggð okkar er við gestina sem ganga inn um dyrnar á hverju kvöldi. Og þar fara hagsmunir mínir og Ölgerðarinnar saman. Ölgerðinni gengur vel þegar veitingamönnum gengur vel; þegar staðirnir eru fullir, gestirnir glaðir og við sjálf stolt af því sem við berum fram.

Ölgerðin sinnir mér eins og ég sé hluti af fjölskyldunni. Og eins og við aðra í fjölskyldunni get ég sagt nei við þau. Metnaður sölumanna er ekki glæpur. Og smekkvísi veitingamanna er ekki samningsbundin, mín er hið minnsta ekki föl.

Höfundur er veitingamaður.




Skoðun

Sjá meira


×