Sport

Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum

Andri Broddason skrifar
Guðmundur Lúther var fullur af þakklæti þegar hann ákvað að hætta í Bakgarðshlaupinu.
Guðmundur Lúther var fullur af þakklæti þegar hann ákvað að hætta í Bakgarðshlaupinu. Vísir/Viktor Freyr

Eftir að Íslandsmetið var bætt í Bakgarðshlaupinu í nótt var Guðmundur Lúther Hallgrímsson himinlifandi. Hann fór út í næsta hring en snéri fljótlega við og hætti hlaupinu.

„Ég er ótrúlega þakklátur og stoltur. Ég bara trúi þessu ekki miðað við hvernig helgin var með veðrið, stuðninginn og allt. Maður er bara orðlaus. En ég er allur í blöðrum, ég get ekki einu sinni farið úr sokkunum því ég labba bara á blöðrum,“ sagði Guðmundur Lúther og voru fæturnir hans greinilega búnir að finna fyrir öllum hlaupunum.

Klippa: Guðmundur Lúther eftir Íslandsmetið

Þeir Guðmundur Lúther, Guðjón Sigurðsson og Gunnar Lárus Karlsson mynduðu ákveðið þríeyki og hlupu þeir lengst af öllum Íslendingunum. Guðmundur Lúther var virkilega sáttur að hlaupa með þeim: „Markmiðið mitt var að setja Íslandsmet með góðum félögum og það tókst áðan.“

Stuðningurinn sem strákarnir fengu var gríðarlega mikill og kom þeim í gegnum mikið erfiði í hlaupinu.

„Allt fólkið sem mætti, vá, takk fyrir okkur. Maður var að hlaupa í gegnum göng af fólki sem var að sturlast. Í hvaða lífi er maður að gera það? Að sjá stákana Guðjón og Gunnar, þeir eru enn þá að og ég er bara þakklátur fyrir að geta farið svona langt með þeim.“

Veðurspáin var ekki góð fyrir byrjun hlaupsins en gular veðurviðvaranir voru þegar hlaupið hófst á laugardaginn. Við það minnkuðu væntingar hlauparanna en þrátt fyrir vonskuveður náði hópurinn að bæta Íslandsmetið.

„Við vorum öll að tala um veðurspána alla vikuna fyrir og við hugsuðum að ef við næðum sólarhring þá værum við sátt. Svo kláruðum við yfir 400 kílómetra, þetta er ótrúlegt.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×