Sport

Dag­skráin: Meistara­deildin og Körfu­bolta­kvöld kvenna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stjörnur Real Madrid, Kylian Mbappe, Vinicius Junior og Jude Bellingham fagna marki í vetur.
Stjörnur Real Madrid, Kylian Mbappe, Vinicius Junior og Jude Bellingham fagna marki í vetur. Getty/M Gracia Jimenez/

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á miðvikudögum og það er mikið um að vera þetta kvöldið enda er fjórða umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta einnig að klárast.

Meistaradeildin heldur áfram í kvöld og það verður fullt af leikjum í beinni auk þess sem Meistaradeildarmessan fylgist með öllum leikjum kvöldsins í beinni og gerir síðan kvöldið upp í Meistaradeildarmörkunum.

Meðal liða sem eru í sviðsljósinu í Meistaradeildinni eru Manchester United, Real Madrid, Lille og Inter en stórleikur kvöldsins er á milli Bayern München og Arsenal.

Tveir leikir verða sýndir beint úr Bónus deild kvenna í körfubolta þar sem nágrannarnir Grindavík og Keflavík mætast í stórleik kvöldsins.

Eftir leikina mun Bónus körfuboltakvöld kvenna fara yfir alla fjórðu umferðina sem hófst í gærkvöldi.

Í nótt hefjast síðan tvö golfmót sem verða í beinni útsendingu út helgina.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Grindavíkur og Keflavíkur í Bónus deild kvenna í körfubolta.

Klukkan 21.35 hefst þáttur af Bónus körfuboltakvöldi kvenna þar sem fjórða umferð Bónus deildar kvenna verður gerð upp.

Sýn Sport Ísland 2

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik KR og Ármanns í Bónus deild kvenna í körfubolta.

Sýn Sport

Klukkan 18.30 hefst Meistaradeildarmessan þar sem Gummi Ben og félagar fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í einu.

Klukkan 21.00 hefst Meistaradeildarmörkin þar sem verða sýnd öll mörkin og helstu atvikin úr Meistaradeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 2

Klukkan 16.35 hefst bein útsending frá leik Como og Manchester United í Meistaradeildinni í fótbolta.

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Bayern München og Arsenal í Meistaradeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 3

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Inter og Shakhtar í Meistaradeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 4

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Real Betis og Feyenoord í Meistaradeildinni í fótbolta.

Klukkan 03.00 hefst bein útsending frá Genesis Championship-golfmótinu á DP World Tour.

Sýn Sport 5

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Porto og PSV í Meistaradeildinni í fótbolta.

Klukkan 02.00 hefst bein útsending frá BMW Ladies Championship-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

Sýn Sport Viaplay

Klukkan 16.35 hefst bein útsending frá leik Lille og Galatasaray í Meistaradeildinni í fótbolta.

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Real Madrid og Leipzig í Meistaradeildinni í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×