Erlent

Hótar að auka við­búnað á landa­mærunum

Samúel Karl Ólason skrifar
Kim Yo Jong, systir Kim Jong Uns, þegar hún hélt ræðu í Pyongyang árið 2022.
Kim Yo Jong, systir Kim Jong Uns, þegar hún hélt ræðu í Pyongyang árið 2022. AP/KCNA

Kim Yo Jong, áhrifamikil systir norðurkóreska einræðisherrans Kim Jong Un, segir að landamæri ríkisins og Suður-Kóreu séu „mjög óstöðug“. Vegna þessa og annarra aðgerða „glæpamanna“ í Suður-Kóreu sé meðal annars verið að skoða að auka viðbúnað þar og setja aftur upp stóra hátalara við landamærin og básúna pólitísk skilaboð yfir þau.

Ráðamenn í Pyongyang hafa þvertekið fyrir að bera ábyrgð á jarðsprengju sem særði tvo hermenn Suður-Kóreu alvarlega. Rannsókn bendir til þess að jarðsprengjunum hafi vísvitandi verið komið fyrir sunnanmegin við hlutlausa svæðið svokallaða af hermönnum frá Norður-Kóreu.

Í yfirlýsingu frá Kim sem vísað er í í fréttum KCNA, ríkisrekinnar fréttaveitu Norður-Kóreu, segir að staðan á landamærum ríkjanna sé mjög alvarleg, vegna hegðunar „glæpamannanna“ í Suður-Kóreu.

Hún sakaði Suður-Kóreumenn um að ógna hermönnum Norður-Kóreu og auka spennu ríkjanna á milli. Með því að ljúga upp á Norður-Kóreu varðandi áðurnefndar landsprengjur hefðu ráðamenn í Suður-Kóreu farið yfir „rauðar línur“ Norður-Kóreu.

Sjá einnig: Kim fjölgar her­skipum sínum

Þá hélt Kim því fram að frá 1. ágúst til 17. október hefðu Suður-Kóreumenn skotið 201 viðvörunarskoti sem ætlað var hermanni Norður-Kóreu og básúnað áróður yfir landamærin 2.870 sinnum, eins og fram kemur í frétt Yonhap.

Þess vegna segir hún að verið sé að skoða að auka viðbúnað við landamærin og að hefja aftur útsendingu áróðurs frá Norður-Kóreu til suðurs. Kim sagði önnur viðbrögð til skoðunar en fór ekki nánar út í hvað hún átti þar við.

Þá hótaði hún Suður-Kóreu öllu illu ef ráðamenn þar myndu ögra Norður-Kóreu.

Kim Yo Jong hefur lengi þótt áhrifamikil í Norður-Kóreu en Kim Jong Un veitti henni árið 2020 frekari völd varðandi stjórn einræðisríkisins. Um tíma var talið að hún gæti orðið erfingi bróður síns.

Þá hefur hún einnig tekið að sér að stýra samskiptum Norður-Kóreu við Suður-Kóreu.

Við þau störf hefur hún ítrekað verið mjög harðorð í garð ráðamanna í Suður-Kóreu. Hún kallaði fyrrverandi forseta Suður-Kóreu til að mynda „einfaldan“ og sagði honum að halda kjafti. Seinna meir kallaði hún sama forseta fávita.

Þessi samskipti hafa versnað til muna á undanförnum árum. Norður-Kóreumenn hafa komið fyrir fleiri jarðsprengjum, gaddavír og skriðdrekatálmum sín megin við landamærin að undanförnu en þeir hafa þá yfirlýstu stefnu að rjúfa alfarið tengslin við Suður-Kóreu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×