Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar 19. október 2026 12:02 Við búum í landi þar sem skattaumhverfið er skaðlegt. Ísland er í 34. sæti af 38 OECD-ríkjum í vísitölu Tax Foundation um samkeppnishæfni skattkerfa árið 2026. Aðeins fjögur ríki standa verr. Þetta er áfellisdómur yfir þeirri skattastefnu sem stjórnvöld bera ábyrgð á og viðvörun um undirstöður lífskjara landsmanna. Viðbrögðin ættu að vera einföld: að gera landsmönnum auðveldara að skapa verðmæti með hagstæðara skattaumhverfi. Samt er fyrsta viðbragð vinstrisins við nánast hverjum vanda að leita að einhverju fleiru til að skattleggja. Vinstrimenn eru sannarlega ekki með skattahræðslu. Eiga reyndar mjög auðvelt með að sækja fé til annarra. Síðan er látið eins og reikningurinn hverfi inn í fyrirtækin. Hann gerir það ekki. Hann getur komið út í færri fjárfestingum, lakari samkeppnisstöðu og störfum sem verða aldrei til. Hann getur líka valdið atvinnuleysi, skert lífsgæði og aukið verðbólgu, svona eins og við sjáum núna. Þegar skattkerfið dregur úr arðsemi nýrrar framleiðslu minnkar viljinn til að leggja fé í hana. Rannsóknir OECD staðfesta að skattlagning fyrirtækja og reglur um frádrátt fjárfestingarkostnaðar hafa áhrif á fjárfestingu. Þetta vita meira að segja hagfræðingar vinstrisins. Þetta snertir launafólk beint. Ný tæki, betri tækni og öflugri fyrirtæki gera okkur kleift að skapa meiri verðmæti á hverri vinnustund. Það er grunnurinn að varanlegum launahækkunum og auknum kaupmætti. Veikjum við þann grunn drögum við úr framtíðarlífsgæðum landsmanna. Engin pólitísk ræða getur afnumið það samhengi. Hér liggur grundvallarmunurinn á hægri og vinstri. Við hægrimenn viljum að fólk og fyrirtæki hafi aukið svigrúm til að vinna, fjárfesta og byggja upp. Vinstrið vill að afrakstur þessara verka renni að ráðandi hluta til hins opinbera. Þar er ríkissjóður of oft gerður að upphafi og endapunkti allrar efnahagsumræðu. Auðvitað þarf að fjármagna skóla, heilbrigðisþjónustu og innviði. Einmitt þess vegna er svo hættulegt að veikja atvinnulífið sem stendur undir fjármögnuninni. Sá sem hamlar verðmætasköpun í nafni velferðar er að grafa undan velferð almennings. Við þurfum einfaldara skattkerfi, fyrirsjáanlegar reglur og sterkari hvata til fjárfestinga. Við þurfum stjórnmálamenn sem gera sömu kröfu um ráðdeild til sjálfra sín og þau gera um greiðslugetu almennings. Það er nefnilega auðvelt að lofa betri lífskjörum fyrir annarra manna fé. Erfiðara er að skapa skilyrðin sem gera þau möguleg. Vinstrið má kalla skattahækkanir réttlæti eins oft og það vill. Færri tækifæri, aukið atvinnuleysi, minni kaupmáttur og lakari lífskjör verða ekki réttlátari við það. Höfundur er bæjarstjóri í Ölfusi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elliði Vignisson Mest lesið Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Sjá meira
Við búum í landi þar sem skattaumhverfið er skaðlegt. Ísland er í 34. sæti af 38 OECD-ríkjum í vísitölu Tax Foundation um samkeppnishæfni skattkerfa árið 2026. Aðeins fjögur ríki standa verr. Þetta er áfellisdómur yfir þeirri skattastefnu sem stjórnvöld bera ábyrgð á og viðvörun um undirstöður lífskjara landsmanna. Viðbrögðin ættu að vera einföld: að gera landsmönnum auðveldara að skapa verðmæti með hagstæðara skattaumhverfi. Samt er fyrsta viðbragð vinstrisins við nánast hverjum vanda að leita að einhverju fleiru til að skattleggja. Vinstrimenn eru sannarlega ekki með skattahræðslu. Eiga reyndar mjög auðvelt með að sækja fé til annarra. Síðan er látið eins og reikningurinn hverfi inn í fyrirtækin. Hann gerir það ekki. Hann getur komið út í færri fjárfestingum, lakari samkeppnisstöðu og störfum sem verða aldrei til. Hann getur líka valdið atvinnuleysi, skert lífsgæði og aukið verðbólgu, svona eins og við sjáum núna. Þegar skattkerfið dregur úr arðsemi nýrrar framleiðslu minnkar viljinn til að leggja fé í hana. Rannsóknir OECD staðfesta að skattlagning fyrirtækja og reglur um frádrátt fjárfestingarkostnaðar hafa áhrif á fjárfestingu. Þetta vita meira að segja hagfræðingar vinstrisins. Þetta snertir launafólk beint. Ný tæki, betri tækni og öflugri fyrirtæki gera okkur kleift að skapa meiri verðmæti á hverri vinnustund. Það er grunnurinn að varanlegum launahækkunum og auknum kaupmætti. Veikjum við þann grunn drögum við úr framtíðarlífsgæðum landsmanna. Engin pólitísk ræða getur afnumið það samhengi. Hér liggur grundvallarmunurinn á hægri og vinstri. Við hægrimenn viljum að fólk og fyrirtæki hafi aukið svigrúm til að vinna, fjárfesta og byggja upp. Vinstrið vill að afrakstur þessara verka renni að ráðandi hluta til hins opinbera. Þar er ríkissjóður of oft gerður að upphafi og endapunkti allrar efnahagsumræðu. Auðvitað þarf að fjármagna skóla, heilbrigðisþjónustu og innviði. Einmitt þess vegna er svo hættulegt að veikja atvinnulífið sem stendur undir fjármögnuninni. Sá sem hamlar verðmætasköpun í nafni velferðar er að grafa undan velferð almennings. Við þurfum einfaldara skattkerfi, fyrirsjáanlegar reglur og sterkari hvata til fjárfestinga. Við þurfum stjórnmálamenn sem gera sömu kröfu um ráðdeild til sjálfra sín og þau gera um greiðslugetu almennings. Það er nefnilega auðvelt að lofa betri lífskjörum fyrir annarra manna fé. Erfiðara er að skapa skilyrðin sem gera þau möguleg. Vinstrið má kalla skattahækkanir réttlæti eins oft og það vill. Færri tækifæri, aukið atvinnuleysi, minni kaupmáttur og lakari lífskjör verða ekki réttlátari við það. Höfundur er bæjarstjóri í Ölfusi.
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun