Handbolti

Elvar marka­hæstur en Donni fagnaði sigri

Sindri Sverrisson skrifar
Donni skoraði fimm mörk í sigrinum í dag.
Donni skoraði fimm mörk í sigrinum í dag. sa-h.dk

Íslendingarnir voru áberandi í leik Ribe-Esbjerg og SAH í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag en það voru gestirnir í SAH sem fögnuðu sigri, 32-29.

SAH var fimm mörkum yfir í hálfleik, 19-14, og átti Kristján Örn Kristjánsson, eða Donni, sinn þátt í sigrinum en hann var næstmarkahæstur í liðinu með fimm mörk.

Markahæsti maður vallarins var hins vegar annar Íslendingur, Elvar Ásgeirsson, sem skoraði sjö mörk fyrir heimamenn en það dugði skammt að þessu sinni.

Sterkur útisigur hjá SAH sem nú er með 12 stig í 6. sæti. Þetta var aðeins annað tap Ribe-Esbjerg sem er með 15 stig í 2. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði GOG sem á leik til góða sem nú stendur yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×