Skoðun

Utan­ríkis­ráð­herra hefur ekki slíkan rétt

Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar

Það er óásættanlegt að utanríkisráðherra breyti ímynd íslensku þjóðarinnar út á við og þvert á sjálfsímynd hennar upp á sitt eindæmi.

Kynslóðir Íslendinga hafa hingað til litið á sig sem litla, herlausa og vopnlausa þjóð, sem byggir stöðu sína í alþjóðasamfélaginu á friði, alþjóðalögum og friðsamlegum samskiptum. Þetta er ekki hugmynd sem varð til með yfirlýsingu eins stjórnmálamanns, heldur sjálfsmynd sem kynslóðir Íslendinga hafa alist upp við og sem á sér djúpar rætur í sögu þjóðarinnar.

Bjarni Benediktsson lýsti þessari sérstöðu Íslands í umræðum um aðild landsins að Atlantshafsbandalaginu. Sú grundvallarhugmynd að Ísland skyldi ekki stofna eigin her og að herleysi landsins væri viðurkenndur þáttur í stöðu þess. Hún hefur jafnframt haldist í opinberri umræðu og stefnumótun langt fram á þessa öld, eins og yfirlýsingar og stefnumótunarskjöl frá árunum 2007 og 2010 bera vitni um.

Þegar íslensk stjórnvöld taka nú skref í átt að beinni þátttöku í fjármögnun vopnakaupa fyrir erlenda þjóð verður því ekki litið á það sem einangraða léttvæga fjárhagslega ákvörðun. Hér er um að ræða grundvallarspurningu um utanríkisstefnu Íslands og þá sjálfsmynd sem þjóðin hefur byggt á í áratugi og jafnvel aldir.

Það er óþolandi að utanríkisráðherra geti einn og sér, án þess að fyrir liggi skýr og ótvíræð samþykkt Alþingis, tekið ákvarðanir sem fela í sér slíka grundvallarbreytingu á stefnu Íslands og sjálfsmynd þjóðarinnar. Hvað þá að slík breyting sé gerð án þess að þjóðin hafi fengið tækifæri til að ræða hana og taka afstöðu til hennar.

Þetta snýst ekki aðeins um afstöðu til Úkraínu eða um það hvernig Íslendingar vilja bregðast við stríðinu þar. Það snýst einnig um lýðræðislega ábyrgð, valdmörk stjórnvalda og rétt þjóðarinnar til að hafa áhrif á grundvallarstefnu landsins. Stuðningur við sjálfstæði og öryggi annarra þjóða þarf ekki sjálfkrafa að fela í sér breytingu á þeirri sjálfsmynd sem Ísland þjóðin hefur byggt á sem herlaus og vopnlaus þjóð.

Slík grundvallarbreyting verður ekki réttlætt sem venjuleg ákvörðun utanríkisráðherra. Hún kallar á skýra umræðu, afstöðu Alþingis og lýðræðislegt umboð. Áður en stigið er slíkt skref verður að liggja fyrir hvort Alþingi samþykki breytinguna — og þjóðin verður að fá raunverulegt tækifæri til að segja sitt álit. Utanríkisráðherra er kominn langt út fyrir þau mörk sem bjóðandi eru og að því er virðist eðlilega ákvarðanatöku. Sjálfsvirðingu og grundvallarhugmyndum Íslendinga er boðin birgin af einni manneskju byggt á umboði sem ekki virðist að hún hafi. Færi best á því að hún hyrfi úr því embætti sem hefur gert henni kleyft að leika lausum hala í óþökk þjóðarinnar og jafnvel skaða hana.

Höfundur er fjármálahagfræðingur.




Skoðun

Skoðun

Barn fyrir bíl

Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar

Sjá meira


×