Donald Trump hefur gert Vladimír Pútín mikla greiða á undanförnum dögum, með því að grafa undan vörnum Úkraínumanna og samstöðu meðal bakhjarla Úkraínu. Þá hefur forsetinn gagnrýnt Vólódímír Selenskí harðlega og sakað hann, en ekki Pútín, um að standa í vegi friðar með því að verða ekki við kröfum Rússa, sem fela í sér lítið annað en uppgjöf. Þetta er ákveðið ástand sem virðist hafa komið upp reglulega frá því Trump varð aftur forseti. Hann hefur flakkað á milli þess að vera gagnrýninn á Rússa og Úkraínumenn en augljóslega hefur hann heilt yfir verið mun gagnrýnari á þá síðarnefndu. Eins og frægt er sprakk samband Trumps og Selenskís í háaloft þegar forsetinn úkraínski heimsótti Hvíta húsið í fyrra og var þar skammaður fyrir að sýna ekki nægjanlegt þakklæti. Þá sagði Trump sérstaklega að Selenskí hefði engin spil á hendi til að spila gegn Rússum. Nú er Trump reiður út í Selenskí fyrir að spila þeim spilum sem hann hefur og þá helst fyrir árásir Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Úkraínumenn hafa staðið í vel heppnuðum árásum á þessa innviði, sem eru notaðir til að fjármagna stríðsrekstur Rússa. Þessum árásum hefur Trump kennt ranglega um hátt eldsneytisverð og hefur hann farið hörðum orðum um Selenskí. Trump hefur meðal annars kallað eftir kosningum í Úkraínu og sagt að það sé Selenskí sem standi í vegi friðar en ekki Vladimír Pútín í Rússlandi. Selenskí hefur lýst því yfir að Úkraínumenn séu viljugir til að hætta árásum á olíuvinnslur í Rússlandi, ef Rússar hætti árásum á orkuinnviði í Úkraínu. Úkraínumenn gerðu ekki árásir á rússneskar olíuvinnslur í þrjá daga eftir að Trump lýsti einhliða yfir vopnahléi en Rússar létu sprengjum rigna yfir Úkraínu og á úkraínsk orkuver á þeim þremur dögum. Sjá einnig: Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Þrátt fyrir stórar yfirlýsingar er lítið sem Trump hefur gert til að reyna að stilla til friðar, annað en að reyna að þvinga Úkraínumenn til að verða við kröfum Rússa. Litlar hreyfingar á víglínunni Rússum vegnar enn lítið á víglínunni í Úkraínu. Útlit er fyrir að rússneskir hermenn hafi lítið sem ekkert sótt fram á undanförnum vikum en þess í stað hafi úkraínskir hermenn rekið þá á brott frá umtalsverðu svæði. Rússar hafa sett mun meiri kraft í langdrægar árásir sínar á borgir og bæi Úkraínu og glíma Úkraínumenn enn á sama tíma við skort á flugskeytum í loftvarnarkerfi sín. Árásir Rússa á orkuinnviði í Úkraínu og hita- og vatnsveitur hafa þegar valdið miklum skaða og er veturinn ekki byrjaður enn. Hér að neðan má lesa síðustu rýningu sem skrifuð var í ágúst. Þá var meðal annars farið yfir breytingar á yfirstjórn herafla Úkraínu, mögulega herkvaðningu í Rússlandi og það að fyrrverandi yfirhagfræðingur í stórum rússneskum banka hafi verið rekinn vegna fregna af viðvörun hans um að Rússar gætu ekki unnið stríðið. Sjá einnig: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Eins og undanfarna mánuði leggja Rússar langmesta áherslu á að ná tökum á öllu Donbas-svæðinu svokallaða, sem myndað er af Lúhansk og Dónetskhéruðum. Rússar stjórna mestöllu Lúhansk og stærstum hluta Dónetsk en ekki svæði sem Úkraínumenn kalla „virkisbeltið“. Það svæði er um fimmtungur Dónetsk, og inniheldur nokkrar mjög víggirtar borgir. Rússum hefur ítrekað reynst erfitt að taka úkraínskar borgir án gífurlegrar fyrirhafnar og mikils mannfalls og binda Úkraínumenn vonir við að geta stöðvað Rússa á þessu virkisbelti. Helstu borgirnar í virkisbeltinu eru Kostíantínívka, Kramatorsk og Slóvíansk. Helstu breytingarnar sem hafa orðið á víglínunni á undanförnum vikum og jafnvel mánuðum hafa orðið vegna gagnsóknar Úkraínumanna gegn Rússum í Dónetsk, þar sem Úkraínumenn hafa rekið hermenn Rússa sem reyndu að umkringja virkisbeltið af nokkuð stóru svæði. Gagnsókn þessi hefur borið titilinn „Vivaldi“. MORE: Ukraine’s Operation Vivaldi continues to generate cascading effects on neighboring sectors immediately north and south of the Lyman area. Biletskyi reported that Ukrainian counterattacks forced the command of the Russian Western Grouping of Forces (GoF) to redeploy elements of the Russian 1st Guards Tank Army (GTA, Moscow Military District [MMD]) from the Kupyansk direction to the Lyman direction, easing the pressure on Kupyansk-Vuzlovyi (southeast of Kupyansk) — as ISW recently forecasted. ISW has also observed evidence that Ukraine’s successes during Operation Vivaldi are creating cascading effects for Russian operations north of Lyman in the Borova direction while also hampering Russian efforts to advance toward Slovyansk and Kramatorsk from the east. The Russian Southern GoF has slowed its offensive tempo toward Slovyansk from the east, potentially to regroup its forces. The Russian military command likely intended for offensive operations east of Slovyansk to synergize with the Russian Western GoF’s efforts against Slovyansk from the northeast — the effort that Ukrainian forces thwarted during Operation Vivaldi. Ukrainian forces have also been counterattacking east of Slovyansk, which, combined with the defeat of Russian forces north of the Siverskyi Donets River, could further halt the Russian drive toward Slovyansk from the east entirely.— Institute for the Study of War (@TheStudyofWar) October 15, 2026 Hún hefur staðið yfir í nokkra mánuði en Úkraínumenn hafa haldið spilunum mjög þétt að sér þegar kemur að sókninni og látið seint vita af landvinningum sínum. Sjá einnig: Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Tilkynningar um Vivaldi hafa komið í bylgjum, sem þriðja stórdeild (Corps) Úkraínuhers hefur kallað „þáttaraðir“. Í síðustu og fjórðu þáttaröð segjast Úkraínumenn hafa rekið Rússa frá um 101 ferkílómetra landsvæði í norðurhluta Dónetskhéraðs. Herforinginn Andriy Biletsky, sem stýrir stórdeildinni, tilkynnti þetta í myndbandi í vikunni. Það má sjá hér að neðan með enskri talsetningu. Í myndbandinu segir Biletsky að Vivaldi hafi tryggt að Rússar muni ekki ná tökum á Donbassvæðinu í sjáanlegri framtíð. Hér að neðan á kortum frá bandarísku hugveitunni Institute for the Study of War má sjá hvar helst hefur verið barist að undanförnu. Ítarlegra yfirlit yfir stöðuna á víglínunni má finna á vef sem kallast Deepstate en þar má flakka milli daga til að sjá breytingar á víglínunni. NEW: Ukrainian forces reportedly regained unrestricted access to Starshield on October 15, following in-motion speed restrictions on SpaceX’s Starshield communications network over Ukraine. Other Key Takeaways: High-ranking Kremlin officials continue to emphasize that there is and was no energy ceasefire agreement, rejecting any meaningful concept of a ceasefire proposal. Ukrainian forces struck six Russian Su-34M fighter-bombers at the Borisoglebsk Military Airfield in Voronezh Oblast overnight on October 14 to 15. Likely Russian drones struck four civilian vessels in the Black Sea, including two commercial tankers in Romanian territorial waters on October 14 and 15. Ukrainian forces likely struck the Ryazan Oil Refinery in Ryazan Oblast overnight on October 14 to 15. Russia launched two Kh-59 cruise missiles and 580 drones against Ukraine overnight on October 14 to 15 and 138 drones during the day on October 15. Ukrainian forces recently advanced north of Kupyansk and southwest of Orikhiv.— Institute for the Study of War (@TheStudyofWar) October 16, 2026 Hér verður meðal annars farið yfir helstu vendingar síðustu daga, hvernig samband Bandaríkjanna og Úkraínu hefur beðið mikla hnekki á skömmum tíma, takmarkanir á aðstoð Bandaríkjamanna við Úkraínumenn og annað. Sérstaklega verður farið yfir það hvernig Trump hefur ætlað sér að koma á friði, viðskiptaviðræður erindreka hans við Rússa og hvort hann hafi yfir höfuð verið jákvætt afl þegar kemur að því að binda enda á stríðið. Deilur byrjuðu á fundi í september Enn eina ferðina hleypir Trump öllu í háaloft meðal bakhjarla Úkraínu. Þetta hefur gerst reglulega síðan hann tók aftur við embætti forseta en að þessu sinni vill Trump meina að það sé Úkraínumönnum að kenna að eldsneytisverð sé hátt. Það sé ekki stríði hans gegn Íran og meðfylgjandi takmörkunum á flæði olíu og olíuafurða frá Mið-Austurlöndum að kenna. Verðlagið í Bandaríkjunum er líklegt til að koma verulega niður á frammistöðu Repúblikana í þingkosningum vestanhafs þann 3. nóvember, ef marka má kannanir. Deilurnar milli Trumps og Selenskís eru sagðar hafa byrjað í september. Þá fór Selenskí á fund Trumps í Washington DC og taldi sig í góðri stöðu. Úkraínumenn höfðu komið í veg fyrir mikla landvinninga Rússa yfir sumarið og þeir höfðu átt nokkra góða fundi á undanförnum mánuðum. Á þessum fundi virtist Trump þó pirraður í garð Selenskís og spurði hann ítrekað út í það af hverju Úkraínumenn væru að gera árásir á rússneskar olíuvinnslur. Eftir að þeir delidu í Hvíta húsinu í fyrra hefur Selenskí átt nokkra góða fundi með Trump og hafði hann litla ástæðu til að eigia von á öðru á síðasta fundi þeirra í september.EPA/AARON SCHWARTZ Hótuðu að hætta aðstoð Síðan þá hafa bandarískir embættismenn ítrekað beðið Úkraínumenn um að hætta þessum árásum en eins og áður segir hafa þær verið vel heppnaðar og beinast gegn helstu tekjulind rússneska ríkisins sem notuð er til að fjármagna stríðsreksturinn gegn Úkraínu. Svo gerðist það í upphafi október að Bandaríkjamenn hótuðu því að hætta að aðstoða Úkraínu og að stöðva vopnakaup Evrópu handa Úkraínumönnum. Það kom fram á fundi úkraínskra og evrópskra erindreka á fundi með Jared Kushner og Steve Witkoff, sérstökum erindrekum Trumps. Þá sögðu þeir einnig frá því að Trump ætlaði að gera samkomulag við Pútín um díselolíu, sem Trump opinberaði á samfélagsmiðlum skömmu síðar, eftir að hann hafði talað við Pútín í um níutíu mínútur í síma. Samkomulagið á að fela í sér að Bandaríkjamenn og aðrir geti keypt díselolíu frá Rússlandi og á það að lækka verð. Samkvæmt heimildum Wall Street Journal hringdu nokkrir þingmenn Repúblikanaflokksins reiðir í Hvíta húsið í kjölfarið og gagnrýndu þetta samkomulag. Meðal annars sögðu þeir að Rússar væru að fá ákveðinn sigur á fati, án þess að þurfa að gefa nokkuð eftir í staðinn. Þá bönnuðu lög frá 2022 Bandaríkjunum að kaupa Díselolíu frá Rússlandi. Takmarkanir á Starlink Í vikunni stóðu Úkraínumenn skyndilega frammi fyrir því að búið var að setja töluverðar takmarkanir á notkun þeirra á Starlink-móttökustöðvum, sem tengjast við gervihnattanet SpaceX. Móttökustöðvarnar tilheyra sérstaklega hluta netsins sem kallaður er Starshield og er notaður í hernaði og er honum stýrt af yfirvöldum í Bandaríkjunum. Þessa nettengingu nota Úkraínumenn meðal annars til samskipta sín á milli og til að stýra allskonar drónum. Drónana nota þeir til árása gegn Rússum í Úkraínu og á sérstaka dróna sem hannaðir eru til að granda rússneskum sjálfsprengidrónum. Sjá einnig: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Með því að setja móttökustöðvar á dróna er hægt að stýra þeim í rauntíma og með mun betri gæðum en annars. Þar að auki er erfiðara fyrir Rússa að stöðva slíka dróna með rafrænum truflunum. Drónar eins og Sting eru sérstaklega hannaðir til að granda rússneskum sjálfsprengidrónum og Úkraínumenn oft við Starlink til að stýra þeim.AP/Efrem Lukatsky Hraðatakmarkanir höfðu verið settar á móttökustöðvarnar svo flugmenn dróna í Úkraínu misstu sambandið við þá á flugi. Selenskí segir að þessi ákvörðun hafi kostað mannslíf, þar sem hún hafi komið mikið niður á drónavörnum Úkraínumanna. Elon Musk, eigandi SpaceX, sagði að þetta kæmi sér í raun lítið við og benti fingrinum á Trump. A supermarket is on fire near Odesa after a Shahed drone strike Many people may have been inside at the time of the attack.— NEXTA (@nexta_tv) October 15, 2026 Einnig lentu rússneskar skotflaugar án viðvörunar í Kænugarði og fóru margir að spyrja hvort Bandaríkjamenn hefðu alfarið hætt að deila viðvörunum um eldflaugaskot Rússa með Úkraínumönnum. Óljóst er hvort svo sé, þar sem það hefur gerst áður að skammdrægar skotflaugar, það er að segja skotflaugar sem skotið er af jörðu niðri skammt frá landamærum Úkraínu, hafi ratað í gegnum viðvörunarkerfi Bandaríkjamanna áður. There were a number of cases over the summer when Russian ground-launched ballistic missiles struck Kyiv before the air alarm went off. There is less warning than with air-launched missiles. It doesn't necessarily indicate that US intelligence has been stopped.— Rob Lee (@RALee85) October 12, 2026 Hvíta húsið hefur enn ekki sagt neitt um takmarkanirnar sem settar voru á Úkraínumenn, þegar þetta er skrifað á fimmtudegi, hvorki opinberlega né við Úkraínumenn, samkvæmt fjölmiðlum ytra. Reuters hefur þó eftir heimildarmönnum sínum í Washington DC að skipunin um að setja takmarkanirnar á hafi komið frá Hvíta húsinu. Í yfirlýsingu sem Wall Street Journal vísar í sagði eingöngu að Trump væri enn í mun að spila uppbyggjandi hlutverk í að binda enda á stríðið og að hann væri vongóður um að það tækist. Úkraínumenn nota ekki Starlink/Starshield-móttökustöðvar á dróna eða eldflaugar sem notaðar eru til að gera árásir í Rússlandi. Notkun Starlink er bönnuð í Rússlandi vegna refsiaðgerða og missa móttökustöðvar sem fara yfir landamærin sambandið. Rare footage shows Ukraine’s Sichen long-range strike UAV attacking Russian targets. The Ukrainian-made drone has a stated range of up to 1,400 km and carries a 40 kg warhead, with a maximum speed of 200 km/h and flight altitude of 1,500 meters. Sichen is designed to strike high-value targets, critical infrastructure and concentrations of enemy forces, while operating day or night under active electronic warfare conditions. Its maximum takeoff weight is 140 kg. #Ukraine— NOELREPORTS 🇪🇺 🇺🇦 (@NOELreports) October 15, 2026 Ráðamenn í Úkraínu hafa um nokku skeið beðið Bandaríkjamenn um að heimila notkun Starlink í Rússlandi, með skráðum móttökustöðvum, til árása í Rússlandi og þá sérstaklega gegn hreyfanlegum skotpöllum Rússa fyrir áðurnefndar skammdrægar skotflaugar. Fella niður refsiaðgerðir Það er ekki bara svo að Trump segi að Bandaríkin muni kaupa díselolíu, heldur felldi hann einnig niður refsiaðgerðir gegn díselsölu Rússa. Það felur í sér að hver sem er getur nú keypt hana af Rússum án þess að hafa áhyggjur af refsiaðgerðum. Bandaríkjamenn eru einnig að skoða, samkvæmt heimildum Reuters, það að fella niður refsiaðgerðir gegn „skuggaflotanum“ svokallaða, sem Rússar, Íranir og aðrir hafa notað til að komast hjá refsiaðgerðum. Það vonast þeir til að gæti dregið úr kostnaði við skipaflutninga, sem hefur hækkað verulega í kjölfar stríðs Bandaríkjanna gegn Íran. Skuggaflotinn inniheldur mörg hundruð skip sem eru oftar en ekki mjög gömul, illa farin og í mörgum tilfellum ótryggð. Þeim er reglulega siglt án þess að þau sendi út staðsetningarupplýsingar eða sendar eru út falskar upplýsingar um staðsetningu þeirra. Sjá einnig: Svona virkar „skuggaflotinn“ Það að fella niður refsiaðgerðir gegn þessum „flota“ gæti gert Rússum auðveldara að selja olíuafurðir og fjármagna þannig stríðsreksturinn. Það gæti einnig auðveldað þeim flutning hergagna og íhluta í þau. Evrópa kaupir enn orku af Rússum Embættismenn í Bandaríkjunum hafa brugðist við gagnrýninni með því að benda á að ríki í Evrópu hafi keypt mikið magn af olíu og jarðgasi af Rússum frá því þeir hófu innrásina í Úkraínu. Það er rétt en rétt er að setja kaupin í ákveðið samhengi. Samkvæmt Euronews, sem vísa í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, hafa ríki innan sambandsins keypt olíuafurðir fyrir um 197 milljarða evra frá mars 2022 til júlí 2026. Það samsvarar um 27 billjónum króna (tólf núll). Evrópa var á þessum tíma mjög háð Rússlandi þegar kemur að orku en gripið hefur verið til umfangsmikilla aðgerða til að breyta því. Um 42 til 45 prósent af orkueyðslu Evrópu fór til Rússlands en hún er nú komin í tólf prósent og stendur til að draga enn frekar úr þessum kaupum. Talsmaður framkvæmdastjórnarinnar sagði við miðilinn að ef ekki hefði verið gripið til aðgerða til að draga úr þessum kaupum hefði upphæðin á tímabilinu verið nær 475 milljörðum evra. Þau ríki sem hafa keypt hvað mest af olíuafurðum frá Rússlandi eru Ungverjaland og Slóvakía, sem hafa haft fáa aðra kosti. Önnur ríki sem höfðu áður gert langtímasamninga við Rússa fengu einnig undanþágur. Reiður yfir gagnrýni Selenskís Selenskí brást ókvæða við fregnum af samkomulagi Trumps og Pútíns og gagnrýndi kollega sinn í Bandaríkjunum fyrir linkind og sagði hann ætla að fjármagna dráp á Úkraínumönnum. Því brást Trump ekki vel við. Trump lýsti því óvænt yfir á dögunum að ráðamenn í Rússlandi og Úkraínu hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars. Ekkert slíkt samkomulag lá fyrir en þetta var ekki í fyrsta sinn sem Trump segir ósatt um að þess konar takmarkað vopnahlé liggi fyrir. Selenskí sagðist tilbúinn til að samþykkja svona vopnahlé og héldu Úkraínumenn að sér höndum þegar kemur að árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Þrátt fyrir það gerðu Rússar umfangsmiklar árásir á orkuinnviði og aðra innviði í Úkraínu. Yfirlýst markmið Rússa er að auka á þjáningar úkraínskra borgara í vetur. Þegar Trump var bent á það, gaf hann til kynna að ástandið væri Selenskí að kenna og það væri hann sem stæði í vegi friðar og vildi ekki semja. Pútín vildi semja. Trump hefur einnig kallað eftir því að Úkraínumenn haldi kosningar og finni sér nýjan forseta. Í febrúar í fyrra kallaði Trump Selenskí „einræðisherra“ og varpaði fram fjölda ósanninda um Úkraínu. Sjá einnig: Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Í viðtali við Newsmax sem birt var í gærkvöldi fór Trump hörðum orðum um Selenskí og gaf til kynna að stríðið væri Barack Obama að kenna, því hann á að hafa þvingað Úkraínumenn til að gefa Rússum eftir Krímskaga. Hann hernumu Rússar og innlimuðu ólöglega árið 2014, á sama tíma og þeir studdu uppreisnarmenn í austurhluta landsins. Þá sagði hann að Selenskí hefði framlengt stríðið með því að neita að semja við Rússa. Hann kenndi ekki Pútín um stríðið. Trump: "Zelenskyy is not a good guy for us to deal with ... I'm not a big fan of Zelenskyy. They've destroyed that country." (Note that Trump also blames Obama for the war, but never Putin!) https://t.co/dv53bkzJd8— Aaron Rupar (@atrupar) October 16, 2026 Í viðtalinu básúnaði Trump ýmis ósannindi um Úkraínu og hélt hann því meðal annars fram að skortur Bandaríkjamanna á ýmsum vopnum væri ekki vegna stríðsins í Íran heldur vegna þess að Joe Biden, forveri hans, hefði sent svo mikið af Tomahawk-stýriflaugum til Úkraínu. Biden sendi ekki eina slíka stýriflaug til Úkraínu. Hvað varðar kosningar í Úkraínu, þá eru þær bannaðar á meðan herlög eru í gildi, samkvæmt stjórnarskrá Úkraínu. Þá yrði erfitt að framkvæma kosningar þar sem stór hluti þjóðarinnar hefur flúið land, annar hluti býr á hernumdum svæðum og fjölmargir hermenn ættu erfitt með að greiða atkvæði, svo eitthvað sé nefnt. Vinna að umfangsmiklum samningum við Rússa Auk þess að fella niður refsiaðgerðir gegn Rússum eru Bandaríkjamenn að vinna að umfangsmiklum viðskiptasamningum við Rússa. Þeir Jarded Kushner og Steve Witkoff, tengdasonur Trumps og vinur hans, hafa ítrekað ferðast til Moskvu og rætt við rússneska erindreka á undanförnum tveimur árum. Samkvæmt grein New York Times hafa þeir á þessum fundum reynt að tæla Rússa til samninga með því að heita þeim umfangsmiklum viðskiptatækifærum að stríðinu loknu. Rússar hafa ekkert komið til móts við þá Kushner og Witkoff, sem hafa lengi verið harðlega gagnrýndir af öðrum bakhjörlum Úkraínu, og þeim hefur ekkert orðið ágengt í því að koma á friði. Undanfarið hafa borist fregnir af því að Bandaríkjamenn hafi breytt um stefnu og ætli sér að bjóða Rússum viðskiptasamninga, án þess að þeir þurfi fyrst að binda enda á stríðið. Með þessu vilja Trump-liðar sefa meintar áhyggjur Rússa af því að þeim sé ekki alvara með viðskiptasamningum. Sjá einnig: Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Einnig hafa borist fregnir af því að Bandaríkjamenn vilji veita Rússum aftur aðgang að eigum þeirra sem hafa verið frystar í Bandaríkjunum og í Evrópu. Þetta eiga þeir Kushner og Witkoff að hafa lagt til við ráðamenn í Evrópu en mestallar eignirnar sem um ræðir eru í evrópskum bönkum. Ráðamenn í Evrópu eru sagðir hafa tekið illa í þessar hugmyndir þeirra. European delegates rebuffed the plan, which was pitched by US special envoy Steve Witkoff and Trump’s son-in-law Jared Kushner. But it has startled European capitals and Kyiv, raising questions about the US’s intentions and its starkly different approach to pressing Moscow to end its invasion of Ukraine. 👇— Christopher Miller (@ChristopherJM) October 15, 2026 Witkoff og Kushner hafa áður farið fram á að fá umsjón yfir þessum frystu eigum Rússa í Evrópu. Það var á sama tíma og mikil umræða fór fram í Evrópu um að nota þessar eigur til að fjármagna lán til Úkraínu. Sú umræða skilaði á endanum ekki niðurstöðu en á meðan þær fóru fram lögðu Bandaríkjamenn fram tillögu um að eigurnar færu í sérstakan sjóð sem nota ætti til uppbyggingar og fjárfestinga í Úkraínu. Ríki Evrópu áttu einnig að setja hundrað milljarða dala í sjóðinn en Bandaríkjamenn ætluðu að taka helming hagnaðarins. Þær hugleiðingar fengu ekki heldur góðan hljómgrunn þá. Semja um kaup viðskiptafélaga á eigum rússnesks félags Einn af þeim samningum sem hafa verið til umræðu milli Bandaríkjamanna og Rússa snýst um kaup hóps fjárfesta frá Mið-Austurlöndum, sem hafa sumir átt í viðskiptum við bæði Kushner og Witkoff, sérstaka erindreka Trumps, á erlendum eignum rússneska orkufyrirtækisins Lukoil. Þar á meðal eru olíuvinnslur í Austur-Evrópu. Bandaríska ríkið myndi einnig eignast um fimmtán prósent í þessum eigum en fjárfestahópurinn er leiddur af bandaríska auðjöfrinum Todd Boehly, sem hefur gefið að minnsta kosti tvær milljónir dala í sjóði Trumps á undanförnum árum. Hann myndi eignast smáan hlut í eigunum. Fjárfestarnir frá Mið-Austurlöndum myndu eignast meira en helminginn, samkvæmt frétt New York Times. Þar á meðal eru félög í eigu konungsfjölskyldu Sameinuðu arabísku furstadæmanna og tveir bræður frá Katar sem hafa átt í töluverðum viðskiptum við Kushner og Ivönku Trump, eiginkonu hans og dóttur Trumps. Þá er sjeikinn Tahnoon bin Zayed Al Nahyan einnig einn af fjárfestunum. Hann tilheyrir áðurnefndri konungsfjölskyldu og á fyrir í viðskiptum við bæði Kushner og Witkoff, auk þess að eiga í viðskiptum við syni Donalds Trump. Samkvæmt heimildum NYT yrðu eigur Lukoil keyptar á töluverðum afslætti, eða á um tíu milljarða dala. Virði þeirra myndi líklega hækka töluvert eftir kaupin, þar sem reksturinn yrði ekki lengur undir áhrifum vegna refsiaðgerða gegn Rússlandi. Hefur frekar staðið í vegi friðar en ekki Trump hefur lengi verið stóryrtur um áhrif hans á innrás Rússa og varnir Úkraínumanna og hefur hann meðal annars haldið því fram að ef ekki væri fyrir hann, hefðu Rússar lagt alla Úkraínu undir sig. Það er í einföldu máli ekki satt. Hægt er að færa rök fyrir því að Trump hafi í raun staðið í vegi friðar í Úkraínu. Það að hann virðist alltaf tilbúinn til að beita Úkraínumenn og Evrópu meiri þrýstingi en hann virðist til í að beita Rússa, gefi Pútín þá sýn að hann geti borið sigur úr býtum. Eftir að Trump tók við embætti forseta Bandaríkjanna á nýjan leik dró hann verulega úr aðstoð Bandaríkjanna handa Úkraínumönnum. Sú aðstoð er nú að mestu bundin við upplýsingar um væntanleg eldflaugaskot Rússa, möguleg skotmörk í Rússlandi og flutninga rússneskra hermanna, svo eitthvað sé nefnt. Frá frægum fundi í Hvíta húsinu í febrúar 2025, þegar Trump-liðar skömmuðu Selenskí meðal annars fyrir meint vanþakklæti og fyrir það að vera ekki í jakkafötum.EPA/JIM LO SCALZO Þá hafa Bandaríkjamenn haldið áfram að selja Úkraínu og bakhjörlum í Evrópu bandarísk hergögn sem notuð hafa verið á víglínunni í Úkraínu en sérstaklega flugskeyti í loftvarnarkerfi sem eru einu varnir Úkraínumanna gegn rússneskum skotflaugum. Trump hefur margsinnis hótað því að beita Rússa hertum refsiaðgerðum en hefur sjaldan staðið við þær hótanir. Hann herti refsiaðgerðir gegn tveimur rússneskum olíufyrirtækjum í október í fyrra. Þá skrifaði hann nýlega undir ný lög sem gera honum kleift að herða ólar Rússa verulega, til dæmis með því að beita ríki sem versla við Rússa tollum. Hann hefur þó ekki beitt þeim heimildum sem lögin gera honum kleift að beita og þykir varla líklegur til þess, miðað við það að hann samdi nýverið við Pútín um að Bandaríkin séu að verða eitt af þeim ríkjum sem versla við Rússa. Þá hefur Trump ítrekað í gegnum árin hótað því að þvo hendur sínar alfarið af Úkraínu og Evrópu í heild, sem er blautur draumur Pútíns. Þegar Trump hefur reynt að þvinga Úkraínumenn til að verða við kröfum Rússa er bersýnilegt að áróðursvélar Rússa hafa farið á yfirsnúning við að halda því fram að það séu ráðamenn í Evrópu sem beri ábyrgð á því að ekki hafi tekist að semja. Þetta hafa bæði utanríkisráðherra Rússlands og talsmaður Pútíns ítrekað sagt á undanförnum árum. Jákvæðar væntingar Pútíns Í þessari stöðu hefur Pútín ekki mikið tilefni til að semja um frið. Hann horfir upp á mikla óeiningu innan NATO og meðal Vesturlanda og jafnvel beinan fjandskap. Þá sér hann uppgang og sífellt aukin áhrif evrópskra stjórnmálaafla sem þykja hliðholl Rússlandi, eins og AfD í Þýskalandi og Marine Le Pen í Frakklandi, þar á meðal eru öfl sem Bandaríkjamenn hafa stutt. Ukraine has “already lost” the war against Russia, says @Alice_Weidel, co-leader of the Alternative for Germany party, which is leading German opinion polls. She told @zannymb, that Germany should pull the plug on support for Ukraine against Vladimir Putin’s invasion. Watch the full interview at 6pm London time (1pm in New York): https://t.co/cuNLE8BDBu— The Economist (@TheEconomist) October 15, 2026 Það má vel trúa því að Pútín telji sig geta haldið stríðinu áfram lengur en Úkraínumenn og bakhjarlar þeirra ráða við á meðan sviðsmyndin sem hann sér lítur svona út. Stríð Trumps gegn Íran hefur komið sér einstaklega vel fyrir Pútín. Í byrjun árs gekk Rússum illa á víglínunni í Úkraínu, en þannig hefur ástandið verið um þó nokkuð skeið, og olíuverð þótti mjög lágt, eða um sextíu dalir á tunnu. Sala á olíuafurðum er langstærsta tekjulind rússneska ríkisins. Eftir að stríðið gegn Íran hófst hefur olíutunnan farið yfir hundrað dali og er ekkert útlit fyrir að verðið muni lækka á næstunni. Umfangsmikil notkun Bandaríkjamanna og annarra á flugskeytum í Patriot-kerfi, til að verjast drónum og eldflaugum sem hefur meðal annars verið skotið á skotmörk valin með upplýsingum frá Rússum, hefur leitt til skorts á þessum mikilvægu hergögnum. Sá skortur hefur komið verulega niður á loftvörnum Úkraínumanna sem eiga sífellt erfiðara með að verjast rússneskum skotflaugum. Samkvæmt heimildum CNN eru Úkraínumenn uppiskroppa með flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi og því enn berskjaldaðri gagnvart rússneskum skotflaugum. Rússar hafa þar að auki tekið upp notkun nýrra sjálfsprengidróna sem búnir eru þotuhreyflum og er mun erfiðara að skjóta þá niður en eldri dróna Rússa. Reuters sagði frá því í vikunni að Rússar hefðu á einungis sex vikum reist stóra herstöð nærri Úkraínu, sem er sérstaklega hönnuð til að hýsa þessa nýju sjálfsprengidróna og skjóta þeim af stað til Úkraínu. Trump tók einnig á móti Pútín í Alaska í fyrra, fyrstur vestrænna þjóðarleiðtoga. Nú nýverið tók hann á móti rússneskum ráðherrum á G20-fundum í Norður-Karólínu og í Wisconsin á árinu og ætlar sér að bjóða Pútín á leiðtogafund G20 í Miami í desember. Á engum tímapunkti hefur Pútín komið með nokkrum hætti til móts við Trump eða dregið úr kröfum sínum gagnvart Úkraínu. Selenskí var á dögunum spurður út í það af hverju Trump og aðrir væru að kenna honum um stríðið en ekki Pútín. Það sagði forsetinn vera vegna þess að þeir fyndu enga leið til að stöðva Pútín. Það væri mun auðveldara að kenna Úkraínumönnum um og fá þá til að gefast upp en að þvinga Pútín til að láta af stríðinu. Ukrainian President Zelenskyy rejects the notion that high consumer prices are connected to the war in Ukraine. “It's more simple to speak about the prices and connect it with Ukraine. Everybody in the world understands because of the war in [the] Middle East, the prices are rising.” https://t.co/RFZYh2aPct— This Week (@ThisWeekABC) October 11, 2026 Talaði um „söguleg svæði“ Rússa í Evrópu Vladimír Pútín hélt í upphafi mánaðarins ávarp á öryggisráðstefnu í Moskvu. Þá fór hann hörðum orðum um ráðamenn í Evrópu og aðra leiðtoga Vesturlanda, sem hann sagði bera alla ábyrgðina á stöðu samskiptanna þeirra á milli. Þá hélt hann því fram að innrásin í Úkraínu hefði verið nauðsynleg, vegna Vesturlanda, og ítrekaði að hann hefði ekki áhuga á vopnahléi. Forsetinn virtist borubrattur um að ný heimsmynd væri að myndast, sem hann hefur talað um áður, en kvartaði í senn yfir aukinni ólgu og óreiðu í heiminum. Draga myndi þó úr henni samhliða hnignun Vesturlanda. Þá varði hann töluverðum tíma í ræðu sinni í að syrgja fall Sovétríkjanna sálugu. Hann sakaði ráðamenn í Evrópu um að ætla sér í stríð við Rússland á komandi árum en hélt því fram að Rússar hefðu engan áhuga á að ráðast á önnur ríki. Í sama mund talaði hann um það að NATO væri búið að hreiðra um sig á „sögulegum svæðum“ Rússa. Virðist sem hann hafi þar átt við Austur-Evrópu. Fyrir innrásina í Úkraínu í febrúar 2022 lagði Pútín fram þá kröfu að NATO hyrfi alfarið frá ríkjum Austur-Evrópu, eða öllum þeim ríkjum sem gengu til liðs við bandalagið eftir 1991. Hvernig stríðið endar skiptir máli Ef Úkraínumenn myndu gefa eftir Donbas-svæðið og virkisbeltið yrðu varnir þeirra gegn mögulegri annarri innrás Rússa seinna meir, veikari en ekki. Þar að auki er lítið sem bendir til þess að Rússar hafi yfir höfuð burði til að hernema svæðið, miðað við gang hersveita þeirra undanfarna mánuði og jafnvel ár. Úkraínumenn standa enn frammi fyrir þeim sama vanda að þurfa einhvers konar öryggistryggingar eigi þeir að semja um frið við Rússa. Það er að segja, einhverjar tryggingar fyrir því að Rússar ákveði ekki aftur að gera innrás. Þar að auki búa milljónir Úkraínumanna á hernumdum svæðum í Úkraínu og berast reglulega fréttir af því að hræðilega sé komið fram við þetta fólk. Frá dyrum Úkraínumanna séð dugar ekki eitthvað plagg um óskilgreindan stuðning, eins og gert var árið 1994. Þá gerðu Úkraínumenn svokallaðan „Búdapest-sáttmála“ við Rússa, Bandaríkjamenn og Breta. Úkraínumenn létu þá af höndum þau kjarnorkuvopn og sprengjuflugvélar sem voru í landinu eftir fall Sovétríkjanna, sprengjuflugvélar sem eru nú notaðar til árása í Úkraínu. Það var í skiptum fyrir loforð Rússa um að virða landamæri Úkraínu og loforð frá Bretum og Bandaríkjamönnum um að koma þeim til aðstoðar ef Rússar sviku loforðið. Rýnt í stöðuna í Úkraínu Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Vladimír Pútín Bandaríkin Donald Trump Hernaður Fréttaskýringar Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent