Íslenski boltinn

Guð­mundur greindist með hjartasjúkdóm

Aron Guðmundsson skrifar
Guðmundur hér með fyrirliðabandið í leik með Stjörnunni 
Guðmundur hér með fyrirliðabandið í leik með Stjörnunni  Vísir/Ernir

Guðmundur Kristjánsson neyddist til að leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir að hann greindist með hjartasjúkdóm í sumar. 

Eftir greininguna var Guðmundi ráðlagt að hætta í fótbolta en þetta kemur fram í viðtali við Guðmund á RÚV. 

„Ég greindist með hjartasjúkdóm í sumar sem er þykknun á hjartavöðva. Eins og læknir orðaði það við mig þá er þetta algengasta orsökin fyrir því að íþróttafólk hnígur niður á leikvelli. Mér var því ráðlagt að leggja skóna á hilluna,“ segir Guðmundur í samtali við RÚV.

Þar með lýkur farsælum feril hans bæði hér heima sem og erlendis. Guðmundur hefur spilað fyrir Stjörnuna síðustu þrjú ár en hann er uppalinn hjá Breiðablik. Hann var hluti af liði Breiðabliks sem varð bikarmeistari árið 2009 og Íslandsmeistari 2010.

Árið 2012 fór hann til Noregs í atvinnumennsku þar sem hann lék með Start í fimm ár. Þegar hann kom heim úr atvinnumennskunni árið 2018 gekk hann til FH þar sem hann var leikmaður þangað til hann gekk til liðs við Stjörnuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×