Heitur HM draumur og mega ekki slaka á: „Getur allt farið til fjandans“ Aron Guðmundsson skrifar 12. október 2026 11:30 Guðrún í leik með íslenska landsliðinu hér heima. Vísir/ Pawel Guðrún Arnardóttir, landsliðskona í fótbolta, segir íslenska liðið ekki mega slaka á þrátt fyrir að vera með góða forystu fyrir seinni leik í undanúrslitum umspils fyrir HM næsta árs gegn Króötum. Liðin mætast öðru sinni á morgun.
Stelpurnar okkar unnu sannfærandi 4-0 sigur gegn Króötum á útivelli á föstudaginn síðastliðinn og eru komnar með annan fótinn inn í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári. „Mér fannst við vera með stjórn allan leikinn en þær samt fengu þarna tvö hættuleg færi og það er eitthvað sem við þurfum að skerpa á,“ segir Guðrún í samtali við Val Pál Eiríksson en hún var í hjarta íslensku varnarinnar ásamt Glódísi Perlu Viggósdóttur. „Völlurinn var smá erfiður þannig að við vorum stundum svolítið hægar í þáttum eins og að skipta á milli kanta og fara fram á við sem ég vona að við náum að gera ennþá betur þá á góða Laugardalsvellinum okkar. Þannig að, en heilt yfir fannst mér við vera sannfærandi.“ Klippa: Heitur HM draumur ljóslifandi Þið sýnduð það í þessum leik úti að þið eruð töluvert sterkari en þetta króatíska lið, ekki satt? „Jú, ég held að við getum alveg verið hreinskilin með það að við erum sterkari en þær en það þýðir samt sem áður að við þurfum að hérna, halda okkar gæðastigi. Við vitum hvernig fótbolti er, ef maður ætlar eitthvað að slaka á eða taka einhverju sem gefnu þá getur allt farið til fjandans. Þannig að við þurfum virkilega að halda okkar gæðastigi og hækka það frá því í síðasta leik. Við erum að reyna að koma okkur á HM og þar, ef við náum því markmiði, eru náttúrulega stórir leikir þar. Við viljum vera á okkar gæðastigi, hækka það með hverjum leik og undirbúið okkur þannig á sama tíma fyrir HM.“ Þið hafið nokkrum sinnum komist nálægt því að fara á HM. Hversu heitur er þessi HM-draumur? „Hann er rosalega heitur og ég held að, þú veist, við erum allar sem vorum hérna í síðasta umspili fyrir HM. Þú veist, það sveið alveg rosalega og sveið mikið og lengi og hérna, og það kannski gefur okkur svona kannski extra eld í hjartað að hérna, að hafa þennan séns aftur og virkilega að vinna fyrir því að komast þangað.“ Ísland tekur á móti Króatíu í seinni leik liðanna í HM umspilinu á Laugardalsvelli á morgun klukkan hálf sex. Leiknum verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Fótbolti Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira