Erlent

Fær auka­dag til stjórnar­myndunar

Áróra L Davíðsdóttir og Smári Jökull Jónsson skrifa
Vinstriblokkin á sænska þinginu, undir forystu Magdalenu Andersson, fékk meirihluta þingsæta í kosningunum þann 13. september síðastliðinn og felldi með því ríkisstjórn hægri flokkanna sem setið hafði síðan árið 2022.
Vinstriblokkin á sænska þinginu, undir forystu Magdalenu Andersson, fékk meirihluta þingsæta í kosningunum þann 13. september síðastliðinn og felldi með því ríkisstjórn hægri flokkanna sem setið hafði síðan árið 2022. EPA/Stefan Jerrevang

Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð, fær einn aukadag til stjórnarmyndunarviðræðna en hún átti upphaflega að skila skýrslu til forseta þingsins á morgun.

Þetta tilkynnti þingforsetinn Andreas Norlén, fulltrúi Moderaterna, eftir hádegið en hann mun hitta Andersson á þriðjudagsmorgun þar sem hún getur annaðhvort óskað eftir lengri tíma eða skilað lokaskýrslu um árangur viðræðnanna. 

Andersson fer fyrir vinstriblokkinni svokölluðu sem vann hreinan meirihluta í þingkosningunum sem fóru fram fyrir rúmum mánuði. Hún skilaði stjórnarmyndunarumboðinu 28. september síðastliðinn og sagðist þá hafa gefist upp á því að reyna að mynda stjórn. 

Niðurstöður þingkosninga
þegar 100% atkvæða hafa verið talin

Hún fékk síðan stjórnarmyndunarumboð á ný fjórum dögum seinna, á föstudaginn síðastliðinn, og stóð til að hún fengi viku frá mánudegi til að reyna að mynda starfhæfa ríkisstjórn. 

Eftir fund Andersson og Norlén á þriðjudag munu hann og varaþingforsetar ræða málin og næstu skref, segir í tilkynningu á vef sænska þingsins. Ef Andersson tilkynnir á þriðjudaginn næstkomandi að stjórnarmyndun sé lokið er möguleiki á að kosið verði um hana sem forsætisráðherra tveimur dögum síðar.

Forseti þingsins getur í mesta lagi lagt fram fjórar tillögur að forsætisráðherra til atkvæðagreiðslu í þingsalnum; verði þær allar felldar skal boða til nýrra kosninga.


Tengdar fréttir

Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund

Andreas Norlén, þingmaður hægriflokksins Moderaterna, var í gær endurkjörinn sem forseti sænska þingsins. Norlén fundar á morgun með formönnum flokka til að afhenda nýjum leiðtoga stjórnarmyndunarumboðið. 

Vill fara með Svíþjóð í nýja átt

Magdalena Andersson, leiðtogi sænskra jafnaðarmanna, segist vilja fara með Svíþjóð í nýja átt sem kjósendur völdu í kosningum um helgina. Hún leggur áherslu á loftslags-, mennta-, heilbrigðis- og öldrunarmál.

Stríðs­yfir­lýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga

Óhætt er að segja að allt sé í upplausn í sænskum stjórnmálum. Spár stjórnmálafræðinga um að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn virðast vera að ganga eftir og allt stefnir í aðra stjórnarkreppuna í Svíþjóð á aðeins átta árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×