Fótbolti

Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah

Valur Páll Eiríksson skrifar
Mikael Egill lagði upp en fór svo meiddur út af.
Mikael Egill lagði upp en fór svo meiddur út af. vísir/Anton

Mikael Egill Ellertsson lagði upp í 2-1 sigri Genoa á Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Logi Tómasson átti erfiðari dag í Tyrklandi.

Vinstri bakverðirnir tveir í íslenska landsliðinu voru báðir í eldlínunni. Mikael Egill byrjaði að venju hjá Genoa sem byrjaði vel gegn Fiorentina í dag.

Mikael lagði upp mark fyrir Milutin Osmajic eftir sjö mínútna leik og aðeins korter var liðið þegar Junior Messias tvöfaldaði forystuna. Staðan var 2-0 þar til Johan Vasquez skoraði sjálfsmark en það dugði skammt fyrir Flórensbúa.

Mikael Egill fór hins vegar meiddur af velli þegar tæpar 10 mínútur voru eftir en Genoa vann þó 2-1.

Logi Tómasson fékk gult spjald í 3-0 tapi Samsunspor fyrir Trabzonspor á heimavelli þar sem hans menn voru þó manni fleiri allan síðari hálfleikinn. Loga tókst þó að halda Mohamed Salah frá því að skora fyrir Trabzonliða í leiknum.

Trabzonspor er með 13 stig í þriðja sæti en Samsunspor fer agalega af stað á leiktíðinni og er með fjögur stig í 16. sæti sem jafnframt er fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×