Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir skrifar 10. október 2026 09:32 Bleikur október er genginn í garð og í ár hvetjum við konur til að beina athyglinni að sjálfum sér undir yfirskriftinni Sjáðu þig. Við leggjum þar sérstaka áherslu á mikilvægi þess að þekkja eigin líkama og líðan og að taka eftir einkennum sem geta bent til krabbameins. Þú þarft ekki að kunna öll möguleg einkenni krabbameina utan að. Markmiðið er ekki að vera stöðugt á varðbergi eða hafa áhyggjur af hverju smáatriði, heldur að taka eftir breytingum og vita hvenær þörf er á að bregðast við þeim. Í flestum tilvikum eiga einkennin sér aðrar og saklausari skýringar en krabbamein, en það er alltaf ráðlegt að láta athuga málið ef vart verður við óvenjulegar, óútskýrðar og langvarandi breytingar á líðan, útliti eða starfsemi líkamans. Breytingar geta verið hnútur eða þykkildi sem var ekki þar áður, nýr fæðingarblettur eða breyting á bletti sem þú hefur haft lengi. Breytingar geta líka verið hósti eða hæsi sem ekki fer, viðvarandi óþægindi frá meltingarvegi eða breytingar á hægðum eða þvaglátum sem við getum ekki útskýrt. Óvenjulegar blæðingar, sár sem gróa ekki, viðvarandi verkir eða óvenjuleg og þrálát þreyta eru einnig dæmi um breytingar sem veita ætti athygli. Gefum okkur tíma til að huga að eigin heilsu Rannsókn Krabbameinsfélagsins, Áttavitinn, sýndi að 20% kvenna sem greindust með krabbamein á árunum 2015 til 2019 og höfðu fundið fyrir einkennum biðu í þrjá mánuði eða lengur með að leita til læknis og 10% biðu í sjö mánuði eða lengur. Hlutfall karla sem beið í þrjá mánuði eða lengur með að leita til læknis, þrátt fyrir að hafa fundið fyrir einkennum sem síðar reyndust tengjast krabbameini, var enn stærra eða 44%. Það er því töluverður hópur fólks sem bíður lengi með að leita aðstoðar eftir að einkenni koma fram. Því viljum við breyta. Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að við bíðum með að leita til heilbrigðisstarfsfólks eftir að einkenni koma fram. Við teljum okkur ekki hafa tíma og setjum annað í forgang, teljum að einkennin séu ekki nógu alvarleg eða bíðum eftir því að þau gangi yfir. Stundum erum við líka hrædd við að eitthvað alvarlegt gæti komið í ljós. Látum þó ekki annríki eða hræðslu stöðva okkur. Gefum okkur tíma til að huga að eigin heilsu. Tökum eftir og hlustum á líkamann. Á vef Krabbameinsfélagsins má nálgast frekari fræðslu um einkenni krabbameina. Því fyrr sem krabbamein greinist, því betri eru batahorfur. Sjáðu þig. Höfundur er næringarfræðingur og sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Krabbamein Mest lesið Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Halldór 10.10.2026 Halldór Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir skrifar Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar Skoðun Í hverju felst virðing fyrir lífinu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar Skoðun Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Bleikur október er genginn í garð og í ár hvetjum við konur til að beina athyglinni að sjálfum sér undir yfirskriftinni Sjáðu þig. Við leggjum þar sérstaka áherslu á mikilvægi þess að þekkja eigin líkama og líðan og að taka eftir einkennum sem geta bent til krabbameins. Þú þarft ekki að kunna öll möguleg einkenni krabbameina utan að. Markmiðið er ekki að vera stöðugt á varðbergi eða hafa áhyggjur af hverju smáatriði, heldur að taka eftir breytingum og vita hvenær þörf er á að bregðast við þeim. Í flestum tilvikum eiga einkennin sér aðrar og saklausari skýringar en krabbamein, en það er alltaf ráðlegt að láta athuga málið ef vart verður við óvenjulegar, óútskýrðar og langvarandi breytingar á líðan, útliti eða starfsemi líkamans. Breytingar geta verið hnútur eða þykkildi sem var ekki þar áður, nýr fæðingarblettur eða breyting á bletti sem þú hefur haft lengi. Breytingar geta líka verið hósti eða hæsi sem ekki fer, viðvarandi óþægindi frá meltingarvegi eða breytingar á hægðum eða þvaglátum sem við getum ekki útskýrt. Óvenjulegar blæðingar, sár sem gróa ekki, viðvarandi verkir eða óvenjuleg og þrálát þreyta eru einnig dæmi um breytingar sem veita ætti athygli. Gefum okkur tíma til að huga að eigin heilsu Rannsókn Krabbameinsfélagsins, Áttavitinn, sýndi að 20% kvenna sem greindust með krabbamein á árunum 2015 til 2019 og höfðu fundið fyrir einkennum biðu í þrjá mánuði eða lengur með að leita til læknis og 10% biðu í sjö mánuði eða lengur. Hlutfall karla sem beið í þrjá mánuði eða lengur með að leita til læknis, þrátt fyrir að hafa fundið fyrir einkennum sem síðar reyndust tengjast krabbameini, var enn stærra eða 44%. Það er því töluverður hópur fólks sem bíður lengi með að leita aðstoðar eftir að einkenni koma fram. Því viljum við breyta. Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að við bíðum með að leita til heilbrigðisstarfsfólks eftir að einkenni koma fram. Við teljum okkur ekki hafa tíma og setjum annað í forgang, teljum að einkennin séu ekki nógu alvarleg eða bíðum eftir því að þau gangi yfir. Stundum erum við líka hrædd við að eitthvað alvarlegt gæti komið í ljós. Látum þó ekki annríki eða hræðslu stöðva okkur. Gefum okkur tíma til að huga að eigin heilsu. Tökum eftir og hlustum á líkamann. Á vef Krabbameinsfélagsins má nálgast frekari fræðslu um einkenni krabbameina. Því fyrr sem krabbamein greinist, því betri eru batahorfur. Sjáðu þig. Höfundur er næringarfræðingur og sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu.
Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun
Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar
Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun
Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun