Eldfimt 50+: Tengdamömmusögur Rakel Sveinsdóttir skrifar 11. október 2026 20:01 Nei við erum ekki að fara að tala um tengdamömmuna þína eða jafnvel þaðan af eldri sögur. Í dag beinum við sjónina að tengdamömmunni 2026 sem ert þú! Og já, viðurkenndu það bara, stundum sýður á þér eins og kjötsúpu... Vísir/Getty Við erum mögulega að stíga inn á mjög hættulegt svæði. Eldfimt. Óþægilegt. Jafnvel svo viðkvæmt umræðuefni að 50+ pör eiga erfitt með umræðuna. Við erum að tala um tengdamömmusögurnar! Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem hún átti það til að veita ykkur hér áður fyrr. Nei; í þetta sinn snýst málið um tengdamömmuna 2026. Sem í fullri hreinskilni er hlutverk sem krefst meiri sjálfstjórnar en strangasti megrunarkúr. Sko… rýnum aðeins í málin. Í fyrsta lagi: Hversu oft heyrir fólk góðan brandara um tengdapabba? ... En brandara um tengdamömmur? Nákvæmlega. Svarið er það sama hjá öllum. Því svo virðist sem tengdapabbi fái nokkurn veginn að sitja í friði, dreypa á kaffinu, ræða færðina á vegum og yfirhöfuð að teljast stórkostlegur fjölskyldufaðir bara fyrir það eitt að mæta. En um leið og orðið tengdamamma fellur spennast axlirnar í herberginu. Rannsóknir sálfræðinga sýna að yfir 60% kvenna lýsa sambandinu við tengdamóður sína sem spennuþrungnu. Skýringin er hvorki sú að konur séu vondar né afbrýðisamar – heldur mætast þarna tvær framkvæmdastjórnir á sama heimilissviðinu. Tengdamæður eiga erfitt með að fara á eftirlaun sem yfirmenn heimilishalds og barnauppeldis, á meðan tengdadætur upplifa hvert einasta „saklausa ráð“ sem dulbúna falleinkunn. Lokaðu munninum og… En hér kemur kaldi veruleikinn fyrir okkur sem erum komin yfir fimmtugt: Áður en við vitum af erum VIÐ orðin tengdamamman úr sögunum. Við munum öll hvernig okkur fannst gamla settið dæma gardínurnar eða uppeldisaðferðirnar okkar. En bíddu bara þangað til sonurinn eða dóttirin mætir með nýja makann í sunnudagsmat. Þá finnurðu setningarnar byrja að krauma innra með þér eins og sjóðandi kjötsúpa: „Nú, ætlar hún ekkert að smakka kjötið?“ „Eigið þið virkilega ekki almennilega ryksugu?“ „Bara... svona mikill skjátími?“ „Raðar hún virkilega hnífapörunum svona í uppþvottavélina?!“ Gullna reglan fyrir okkur 50+ er sáraeinföld, en svakalega erfið í framkvæmd: Lokaðu munninum, opnaðu veskið og hrósaðu matnum. Ef þau biðja ekki beinlínis um ráð – bíttu þá í tunguna þar til blóðbragðið finnst. Ef þér líkar ekki hvernig þau elda, vertu fegin/n að þurfa ekki að vaska upp. Það eina sem tengdamamman 2026 þarf í raun að muna er að börnin okkar eiga fullan rétt á að gera sín eigin mistök, alveg eins og við gerðum hér sjálf í den. 50+ Tengdar fréttir 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Það er loksins komið að því að fara út að borða með góðum vinum. Tilhlökkunin er mikil, búið að panta borð, farða sig og jafnvel strauja skyrtu. Nýr veitingastaður sem þú hefur einmitt heyrt af, séð á Instagram og hlakkar til að prófa. 4. október 2026 20:02 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Þú situr í heimsókn, horfir út um gluggann, slærð skyndilega báðum lófum fast á lærin á þér, stynur lágt og segir upphátt: „Jæja… ætli maður fari ekki að koma sér.“ 27. september 2026 20:02 50+: Svefnherbergisskilnaður Er uppskriftin að hamingjusömu hjónabandi mögulega sitt hvort rúmið í sitt hvoru herberginu? 13. september 2026 20:01 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Við ætlum að segja það upphátt: Já, við ætlum að ræða nokkuð sem margir kannast við sem þó nokkurn létti. Svona í leyni. 6. september 2026 17:02 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Stundum rifjum við upp í gríni þegar foreldrar okkar voru rúmlega þrítugir eða fertugir og okkur fannst þau svo svaka fullorðin. Eða hversu amma og afi voru orðin gömul – jafnvel eldgömul – en þó bara á sjötugsaldri. 14. júní 2026 14:34 Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Fleiri fréttir Eldfimt 50+: Tengdamömmusögur Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verkefnum? 50+: Svefnherbergisskilnaður Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Sjá meira
Við erum að tala um tengdamömmusögurnar! Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem hún átti það til að veita ykkur hér áður fyrr. Nei; í þetta sinn snýst málið um tengdamömmuna 2026. Sem í fullri hreinskilni er hlutverk sem krefst meiri sjálfstjórnar en strangasti megrunarkúr. Sko… rýnum aðeins í málin. Í fyrsta lagi: Hversu oft heyrir fólk góðan brandara um tengdapabba? ... En brandara um tengdamömmur? Nákvæmlega. Svarið er það sama hjá öllum. Því svo virðist sem tengdapabbi fái nokkurn veginn að sitja í friði, dreypa á kaffinu, ræða færðina á vegum og yfirhöfuð að teljast stórkostlegur fjölskyldufaðir bara fyrir það eitt að mæta. En um leið og orðið tengdamamma fellur spennast axlirnar í herberginu. Rannsóknir sálfræðinga sýna að yfir 60% kvenna lýsa sambandinu við tengdamóður sína sem spennuþrungnu. Skýringin er hvorki sú að konur séu vondar né afbrýðisamar – heldur mætast þarna tvær framkvæmdastjórnir á sama heimilissviðinu. Tengdamæður eiga erfitt með að fara á eftirlaun sem yfirmenn heimilishalds og barnauppeldis, á meðan tengdadætur upplifa hvert einasta „saklausa ráð“ sem dulbúna falleinkunn. Lokaðu munninum og… En hér kemur kaldi veruleikinn fyrir okkur sem erum komin yfir fimmtugt: Áður en við vitum af erum VIÐ orðin tengdamamman úr sögunum. Við munum öll hvernig okkur fannst gamla settið dæma gardínurnar eða uppeldisaðferðirnar okkar. En bíddu bara þangað til sonurinn eða dóttirin mætir með nýja makann í sunnudagsmat. Þá finnurðu setningarnar byrja að krauma innra með þér eins og sjóðandi kjötsúpa: „Nú, ætlar hún ekkert að smakka kjötið?“ „Eigið þið virkilega ekki almennilega ryksugu?“ „Bara... svona mikill skjátími?“ „Raðar hún virkilega hnífapörunum svona í uppþvottavélina?!“ Gullna reglan fyrir okkur 50+ er sáraeinföld, en svakalega erfið í framkvæmd: Lokaðu munninum, opnaðu veskið og hrósaðu matnum. Ef þau biðja ekki beinlínis um ráð – bíttu þá í tunguna þar til blóðbragðið finnst. Ef þér líkar ekki hvernig þau elda, vertu fegin/n að þurfa ekki að vaska upp. Það eina sem tengdamamman 2026 þarf í raun að muna er að börnin okkar eiga fullan rétt á að gera sín eigin mistök, alveg eins og við gerðum hér sjálf í den.
Rannsóknir sálfræðinga sýna að yfir 60% kvenna lýsa sambandinu við tengdamóður sína sem spennuþrungnu. Skýringin er hvorki sú að konur séu vondar né afbrýðisamar – heldur mætast þarna tvær framkvæmdastjórnir á sama heimilissviðinu. Tengdamæður eiga erfitt með að fara á eftirlaun sem yfirmenn heimilishalds og barnauppeldis, á meðan tengdadætur upplifa hvert einasta „saklausa ráð“ sem dulbúna falleinkunn.
50+ Tengdar fréttir 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Það er loksins komið að því að fara út að borða með góðum vinum. Tilhlökkunin er mikil, búið að panta borð, farða sig og jafnvel strauja skyrtu. Nýr veitingastaður sem þú hefur einmitt heyrt af, séð á Instagram og hlakkar til að prófa. 4. október 2026 20:02 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Þú situr í heimsókn, horfir út um gluggann, slærð skyndilega báðum lófum fast á lærin á þér, stynur lágt og segir upphátt: „Jæja… ætli maður fari ekki að koma sér.“ 27. september 2026 20:02 50+: Svefnherbergisskilnaður Er uppskriftin að hamingjusömu hjónabandi mögulega sitt hvort rúmið í sitt hvoru herberginu? 13. september 2026 20:01 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Við ætlum að segja það upphátt: Já, við ætlum að ræða nokkuð sem margir kannast við sem þó nokkurn létti. Svona í leyni. 6. september 2026 17:02 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Stundum rifjum við upp í gríni þegar foreldrar okkar voru rúmlega þrítugir eða fertugir og okkur fannst þau svo svaka fullorðin. Eða hversu amma og afi voru orðin gömul – jafnvel eldgömul – en þó bara á sjötugsaldri. 14. júní 2026 14:34 Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Fleiri fréttir Eldfimt 50+: Tengdamömmusögur Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verkefnum? 50+: Svefnherbergisskilnaður Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Sjá meira
50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Það er loksins komið að því að fara út að borða með góðum vinum. Tilhlökkunin er mikil, búið að panta borð, farða sig og jafnvel strauja skyrtu. Nýr veitingastaður sem þú hefur einmitt heyrt af, séð á Instagram og hlakkar til að prófa. 4. október 2026 20:02
50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Þú situr í heimsókn, horfir út um gluggann, slærð skyndilega báðum lófum fast á lærin á þér, stynur lágt og segir upphátt: „Jæja… ætli maður fari ekki að koma sér.“ 27. september 2026 20:02
50+: Svefnherbergisskilnaður Er uppskriftin að hamingjusömu hjónabandi mögulega sitt hvort rúmið í sitt hvoru herberginu? 13. september 2026 20:01
50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Við ætlum að segja það upphátt: Já, við ætlum að ræða nokkuð sem margir kannast við sem þó nokkurn létti. Svona í leyni. 6. september 2026 17:02
50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Stundum rifjum við upp í gríni þegar foreldrar okkar voru rúmlega þrítugir eða fertugir og okkur fannst þau svo svaka fullorðin. Eða hversu amma og afi voru orðin gömul – jafnvel eldgömul – en þó bara á sjötugsaldri. 14. júní 2026 14:34