Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar 8. október 2026 13:18 Það vill loða við að bakarar séu hengdir fyrir smiði. Í umræðunni um skráningu hlaðvarpa hjá Fjölmiðlanefnd sem geisað hefur undanfarið hefur borið á þessu. Fjölmiðlanefnd, líkt og aðrar stjórnsýslustofnanir, þarf að fara eftir þeim lögum sem gilda hverju sinni. Henni er ekki heimilt að hætta að hafa eftirlit með tilteknum ákvæðum laga nema lögunum sé breytt á Alþingi. Annað rímar illa við stjórnarskrá og grundvallarhugmyndir um réttarríkið. Alþingi setur lög, en framkvæmdavaldið fylgir þeim eftir. Ekki öll hlaðvörp fjölmiðlar Markmið laga um fjölmiðla nr. 38/2011 er tvíþætt eins og kemur fram í 1. gr. þeirra. Annars vegar að „stuðla að tjáningarfrelsi, rétti til upplýsinga, upplýsinga- og miðlalæsi, fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlun sem og að efla vernd neytenda á þeim vettvangi”. Hins vegar er markmið laganna „að koma á samræmdri löggjöf á vettvangi fjölmiðlunar óháð því miðlunarformi sem er notað”. Meðal nýmæla í lögunum var skilgreining í 2. gr. þar sem kemur fram að „[h]laðvarp kallast það þegar dagskrárliðir í heild eða að hluta í formi hljóðskráa eru boðnir almenningi til niðurhals”. Í ljósi þeirra öru tæknibreytinga sem hafa orðið á síðustu árum má fullyrða að löggjafinn hafi verið framsýnn þegar hugtakið fjölmiðill var skilgreint í fjölmiðlalögum. Aðalatriðið er að skilgreiningin á fjölmiðli var óháð tæknilegum miðlunarleiðum svo ekki skapaðist ójafnvægi með sérstökum ívilnunum tengdum miðlunarleið. Við þurfum ekki að hugsa langt aftur í tímann til þess að sjá þær gríðarlegu breytingar sem orðið hafa á miðlun upplýsinga með stafrænu byltingunni með tilheyrandi áhrifum á fjölmiðlun. Snemma á síðasta áratug var m.a. mikil umræða um skilin á milli bloggsíðu og vefmiðils. En hvers vegna skiptir máli hvort miðill telst fjölmiðill í skilningi laga? Jú, fjölmiðlar njóta réttindi umfram önnur fyrirtæki, en á þeim hvíla einnig ríkar skyldur. Fjölmiðlanefnd gaf fyrst út leiðbeiningar um skráningu hlaðvarpa árið 2021 sem hafa verið uppfærðar á þessu ári. Eins og þar kemur fram eru hlaðvörp ekki sjálfkrafa fjölmiðlar. Hlaðvarp á vegum nemendafélags í menntaskóla verður ekki frekar fjölmiðill í skilningi fjölmiðlalaga en skólablað sem nemendafélagið gefur út. Hlaðvörp sem teljast vera fjölmiðlar eru það óháð skráningu sem slík hjá Fjölmiðlanefnd. En sinni fjölmiðillinn ekki skráningarskyldu gefur nefndin fjölmörg færi á leiðréttinguog hefur sem lokaúrræði heimild til að beita stjórnvaldssektum ef miðill sinnir ekki lögbundinni skyldu sinni. Nefndin hefur ekki dagsektarheimildir í þessu samhengi. Mikilvæg réttindi og skyldur hlaðvarpa sem teljast fjölmiðlar Skoðum þetta í aðeins stærra samhengi. Sökum mikilvægis fjölmiðla í lýðræðislegri umræðu hafa þeir ákveðin réttindi og skyldur umfram önnur fyrirtæki. Ef hlaðvörp sem miðla fréttaefni teldust, svo dæmi sé tekið, ekki til fjölmiðla næði vernd heimildarmanna ekki til heimildarmanna hlaðvarpa. Afleiðingin er sú að einstaklingur sem greinir frá einhverju sem telst mikilvægt frá sjónarhóli almannahagsmuna nýtur ekki þess réttar að lögum sem heimildarmenn annars njóta ef hlaðvarp er ekki skilgreint sem fjölmiðill. Heimildarmaður getur því aðeins notið lögvarins réttar sem slíkur ef hlaðvarp er skilgreint sem fjölmiðill. Taka má annað raunhæft dæmi. Hugsum okkur að í hlaðvarpi sem nær til þúsunda hlustenda í hverri viku sé farið rangt með mikilvægar staðreyndir um fólk eða fyrirtæki. Ekki þarf að fjölyrða um að afleiðingar þess geta verið grafalvarlegar fyrir viðkomandi. Augljóst er að sá sem brotið er gegn hefur hagsmuni af því lög tryggi honum skýlausan rétt til andsvara. Þess réttar nýtur hann því aðeins ef hlaðvarp telst vera fjölmiðill. Í hnotskurn er þetta afar einfalt. Það kostar ekkert að skrá fjölmiðil. Í skráningu felst sú einfalda skylda að upplýsa um ábyrgðarmann þess efnis sem miðlað er, við hvern er hægt að hafa samband ef kvartað er undan efni á miðlinum og greina frá ritstjórnarstefnu miðilsins. Þá þarf fjölmiðill að upplýsa um eignarhald og yfirráð svo almenningur njóti þeirrar sjálfsögðu vitneskju hvort miðillinn hafi hagsmuni af tiltekinni umfjöllun eða tengsl við tiltekna viðmælendur. Fjölmiðill er ekki það sama og fréttamiðill Í umræðu undanfarið um hlaðvörp sem fjölmiðla hefur borið á umtalsverðum hugtakaruglingi. Fyrst er að nefna hugtakið ritstjórn. Ritstjórn samkvæmt lögum er ekki aðeins starfsmenn á stórum fréttastofum, heldur tekur hugtakið til allra þeirra sem taka ákvarðanir um ritstjórnarstefnu og efnistök fjölmiðla. Fjölmiðill er þannig yfirhugtak sem nær m.a. til fréttamiðla, en einnig til fjölda annarra miðla. Til fjölmiðla teljast m.a. tímarit sem fjalla um mataruppskriftir, húsbúnað og viðtöl við áhugavert fólk. Hinu sama gegnir um vefmiðla sem fjalla um íþróttir. Í fjölmiðlum má því finna fjölbreytt efni sem höfðar til almennings, t.d. skemmtiefni, kvikmyndir, sjónvarpsþætti, útvarpsleikhús, tónlist, íþróttir, fréttir og fréttatengd málefni. Ritstjórn er hugtakið sem notað er um ákvarðanir um hvers konar efni er birt, hverjir eru teknir í viðtöl og hvers eðlis fjölmiðillinn er. Hvað varðar fréttamiðla sérstaklega, þá eru þeir fjölmiðlar sem hafa það hlutverk að upplýsa almenning um það sem gerist í samfélaginu á hverjum tíma. Fréttamiðlar birta m.a. fréttir og fréttaskýringar. Þeir fjalla m.a. um stjórnmál, fréttnæma innlenda og erlenda viðburði og mál sem snerta samfélagið allt. Helstu málaflokkar fréttamiðla spanna því allt frá innlendum og erlendum fréttum yfir í samfélagsleg málefni, menningu, listir, úrslit íþróttaviðburða og veðurspár. Hverjum þeim sem eitthvað fylgist með málum líðandi stundar má ljóst vera að birtingarform fréttamiðla eru mismunandi, t.d. prentmiðlar, vefmiðlar, útvarp, sjónvarp, streymisveitur eða hlaðvörp. Í stuttu máli eru fréttamiðlar fjölmiðlar, en ekki allir fjölmiðlar eru fréttamiðlar. Kjarni málsins er að fjölmiðlar eiga það sammerkt að þeir lúta allir ritstjórn. Af hverju er skráningarskylda á hlaðvörpum? Á síðustu árum hefur Fjölmiðlanefnd borist fjöldi ábendinga og kvartana vegna hlaðvarpa, einkum vegna auglýsinga á áfengi, nikótínvörum og veðmálastarfsemi, auk þess sem kvartað er undan því að hlaðvörp séu ekki skráð. Í kvörtunum hefur einnig verið vísað til þess að mikilvægt sé að gæta jafnræðis þegar kemur að eftirliti. Engan veginn fái staðist í lýðræðisríki að ákveðnir fjölmiðlar lúti eftirliti en aðrir ekki. Það er útbreiddur misskilningur að teljist hlaðvarp ekki fjölmiðill samkvæmt fjölmiðlalögum falli þau einfaldlega utan laga og réttar. Því fer vitaskuld víðs fjarri. Svo dæmi sé tekið gildir bann við áfengis- og tóbaksauglýsingum fullum fetum um slík hlaðvörp en þá á grundvelli sérlaga þar að lútandi. Eins gilda almenn hegningarlög um brot gegn æru manna og friðhelgi einkalífs. Skráningarskylda var lögfest til að tryggja gagnsæi eignarhalds á fjölmiðlum svo almenningur gæti tekið afstöðu til ritstjórnarstefnu og efnis miðlanna út frá eignarhaldi þeirra. Eins og þekkt er voru þessar lagareglur ekki settar í pólitísku tómarúmi. Þvert á móti, tildrög ákvæðanna má rekja til einnar mestu stjórnskipunarkreppu á þessari öld. Hér er ástæða til að rifja upp, hafi menn gleymt því, að allt fór á annan endann sumarið 2004 þegar forseti Íslands synjaði svokölluðum fjölmiðlalögum staðfestingar. Var það í fyrsta sinn sem forseti beitti heimild 26. gr. stjórnarskrárinnar. Miklar deilur ríktu um frumvarp þetta og skrifuðu tugir þúsunda einstaklinga undir áskorun til forseta um að synja lögunum staðfestingar. Ríkisstjórnin ákvað í kjölfarið að fella fjölmiðlalögin úr gildi. Í kjölfarið var sett á laggirnar þverpólitísk nefnd sem taldi brýnt að tryggja gagnsæi eignarhalds á fjölmiðlum. Með setningu gildandi fjölmiðlalaga árið 2011 ákvað löggjafinn að allir fjölmiðlar skyldu vera skráningarskyldir, m.a. til að tryggja að upplýsingar um eignarhald þeirra væru ávallt aðgengilegt. Sú ákvörðun var tekin að gefnu tilefni í ljósi þeirra samfélagslegu og pólitísku átaka sem skóku íslenskt samfélag í upphafi þessarar aldar. Áskrift að íslenskum hlaðvörpum lítið minna en að fréttamiðlum Eins og þeir sem eru að nálgast miðjan aldur vita fletti fólk sem sat á biðstofum lækna og tannlækna svokölluðum glanstímaritum. Fjallað var um þjóðþekkt fólk og nýjustu fréttir af því, finna mátti gamansögur og ýmis konar viðtöl við fólk sem hafði gengið í gegnum margs konar lífreynslu. Í öðrum tímaritum var farið í heimsókn á heimili og rætt um innréttingar og arkitektúr eða mat. Í dag situr fólk á biðstofum, límt við skjáinn á snjallsímum og hlustar á hlaðvörp, les vefmiðla eða skrunar viðstöðulaust í gegnum samfélagsmiðla. Efni miðlanna er að stórum hluta það sama en miðlunarleiðirnar hafa breyst. Í könnun Maskínu fyrir Fjölmiðlanefnd og Netvís dagana 9. – 14. september sl. kom í ljós að 10,1% þeirra sem eru 18 ára og eldri greiða áskrift að íslensku hlaðvarpi. Til samanburðar greiða 13,8% sama hóps fyrir áskrift að íslenskum fréttamiðli. Það er því lítill munur á slíkum áskriftum, enda hefur áskrifendum fréttamiðla hér á landi fækkað umtalsvert á síðustu árum. Það vekur sérstaka athygli hvað munurinn er mikill þegar litið er til aldurs þeirra sem kaupa áskriftir. Í könnuninni kemur í ljós að 20% fólks á aldrinum 18-29 ára greiðir fyrir áskrift að hlaðvarpi, en aðeins 1,2% þessa hóps greiðir fyrir áskrift að íslenskum fréttamiðli. Til samanburðar greiða 37,3% fólks sem er 70 ára og eldra fyrir áskrift fréttamiðla en aðeins 2,7% að íslensku hlaðvarpi. Í könnuninni kemur einnig í ljós að mun líklegra er að fólk á aldrinum 18-49 ára sé með áskrift að hlaðvarpi en fólk á aldrinum 50 ára og eldri er líklegra til að vera með áskrift að íslenskum fréttamiðli. Niðurstöðurnar eru sláandi og sýna hversu hratt fjölmiðlanotkun breytist. Ástæðurnar eru þekktar. Meðal þeirra helstu eru tækniþróun, tilkoma samfélagsmiðla og streymisveitna. Þessu til viðbótar má nefna að Íslendingar hafa vanist því að fá fréttir ókeypis á vefmiðlum. Könnun Maskínu virðist eindregið benda til að hlutdeild hlaðvarpa fari stækkandi á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Evrópulöggjöfin hefur áhrif á Íslandi vegna EES-samningsins Í umræðu um eftirlit með hlaðvörpum hefur stundum verið vísað til þess að ekkert eftirlit sé haft í þeim ríkjum sem við berum okkur helst saman við. Af þessu tilefni skal áréttað að dæmi eru um skráningar- og tilkynningaskyldu hlaðvarpa í Evrópu. Engu að síður hefur umræðan um eftirlit með hlaðvörpum orðið háværari innan Evrópu. Er það ekki síst vegna þess að samkvæmt European Media Freedom Act (EMFA,) sem er reglugerð ESB sem tók gildi árið 2024, teljast hlaðvörp til fjölmiðla að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Reglugerðin bíður innleiðingar á grundvelli EES-samnings hér á landi, en flest ákvæðin eru nú þegar í fjölmiðlalögum, þ.m.t. ákvæðin um réttindi og skyldur hlaðvarpa. Reglugerðin tekur af allan vafa um það að um hlaðvörp þurfi að gilda réttindi og skyldur líkt og um aðra fjölmiðla. Þannig eiga hlaðvarpsstjórnendur að njóta ritstjórnarlegs sjálfstæðis og tryggja þarf að þau séu án afskipta stjórnvalda í dagskrárákvörðunum sínum. Þau eiga að njóta heimildarmannaverndar auk þess sem stóru tæknifyrirtækjunum er gert óheimilt að fjarlægja hlaðvörp og annað fjölmiðlaefni af þeirra svæðum að eigin geðþótta. Að sama skapi er hlaðvörpum skylt að upplýsa um eignarhald sitt til að almenningur geti tekið afstöðu til innihalds þeirra út frá fjármögnun og eignarhaldi. Þetta hefur reynst erfitt í mörgum Evrópuríkjum þar sem engin yfirsýn eða skráning er á hlaðvörpum. Fjölmiðlalöggjöf tekur ávallt mið af sögu, menningu og fjölmiðlalandslagi í hverju og einu ríki. Fyrir liggur að sífellt fleiri ríki ætla að breyta lögum svo þau verði tæknióháð eins og er hér á landi. Þannig er betur hægt að bregðast við örri þróun á fjölmiðlamarkaði. Örar tæknibreytingar Það færist mjög í aukana að hlaðvörp sendi út í hljóði og mynd, t.d. á Spotify, Apple Podcasts og YouTube. Slík miðlun getur fallið undir hljóð- og myndmiðlunartilskipun ESB. Af þessu leiðir að væru hlaðvörp undanskilin gildissviði fjölmiðlalaga gæti myndast lagalegt tómarúm um hlaðvörp sem eingöngu miðla hljóði. Hljóð- og myndmiðlunartilskipunin tekur af allan vafa um það að myndmiðlun eftir pöntun, sem uppfyllir ákveðin skilyrði, fellur undir gildissvið laga á grundvelli EES-samningsins. Þannig gæti myndast sú óheppilega staða að mismunandi reglur giltu fyrir annars vegar hlaðvörp sem miðla í hljóði og mynd (myndmiðlun eftir pöntun) og hins vegar hlaðvörp sem miðla einungis hljóði (hljóðmiðlun eftir pöntun). Sú hljóð- og myndmiðlunarþjónusta sem er í mestum vexti nú í nágrannaríkjum okkar kallast FAST þjónusta (e. Free Ad-Supported Streaming Television). Sú þjónusta er einnig í boði sem hljóðmiðlun (e. Audio and Talk FAST channels). Um er að ræða þematengd efni, allt frá einstökum tónleikum í beinni útsendingu yfir í frétta- eða dægurmálaþætti. Áskoranirnar verða einnig fleiri með gervigreind. Gervigreindarhlaðvörp, svokölluð „podslops“, hafa færst í aukana. Í slíkum hlaðvörpum eru gervigreindarraddir notaðar til þess að tjá gervigreindarútbúin handrit sem er jafnvel hlaðið sjálfvirkt inn á streymisveitur. Tilgangurinn er alla jafna að afla tekna, en getur einnig stuðlað að upplýsingaóreiðu. Þar sem íslensk löggjöf er tæknióháð er löggjöfin ekki sama hindrun þegar kemur að eftirliti með slíkri starfsemi eins og í sumum ríkjum Evrópu um þessar mundir. Breytingar á fjölmiðlalögum á þingmálaskrá Í þingmálaskrá fyrir veturinn 2026-2027 hafa verið boðaðar breytingar á lögum um fjölmiðla. Upplýst hefur verið að stjórnsýslueftirlit með fjölmiðlum verði endurskoðað með tilliti til þeirra breytinga sem orðið hafa á tækni, miðlunarleiðum, notkun fjölmiðla og reynslu af framkvæmd laganna. Þessu ber að fagna. Þegar löggjöf um fjölmiðla verður endurskoðuð er brýnt að horfa á heildarmyndina. Skráning hlaðvarpa er vissulega einn þáttur í þeirri mynd. Aðalatriðið er þó að fjölmiðlar eru taldir gegna lykilhlutverki í lýðræðisríkjum. Af þeim sökum hafa þeim verið tryggð réttindi að lögum, umfram önnur fyrirtæki, en jafnframt ríkar skyldur svo þeir geti sinnt hlutverki sínu sem best. Á umliðnum árum hafa fjölmiðlar átt verulega undir högg að sækja vegna þeirra samfélags- og tæknibreytinga sem allir þekkja. Við endurskoðun á löggjöf verður fyrst og fremst að hafa að leiðarljósi hagsmuni almennings af öflugum fjölmiðlum, en ekki sérhagsmuni eða hugmyndir einstakra manna af því hvernig best væri að haga lögum með tilliti til þeirra eigin hagsmuna. Höfundur er framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elfa Ýr Gylfadóttir Hlaðvörp Fjölmiðlar Mest lesið Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar