Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar 8. október 2026 11:02 Fjöldahreyfingar lifa á tengslum við grasrótina. Þær sækja styrk sinn í fólkið, reynslu þess, kröfur og samtakamátt. Um leið og fjöldahreyfing verður of upptekin af eigin formi, verkferlum og stofnanalegu skipulagi er hætta á að hún fjarlægist þann veruleika sem hún á að spretta úr. Formfesta er mikilvæg upp að vissu marki; hún skapar nauðsynlega umgjörð og ferla. Formfestan má hins vegar aldrei verða svo fyrirferðarmikil að hún kæfi frumkvæði eða geri leiðina frá grasrót til forystu of langa. Þekking sem verður til með samvinnu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) er vettvangur þar sem 44 stéttarfélög, með fleiri en 140.000 félaga, koma saman til að móta sameiginlega stefnu um grundvallaratriði vinnumarkaðar og samfélags. Í nýlegri grein minni fjallaði ég um mikilvægi öflugrar hagsmunabaráttu fyrir hönd launafólks og þar kom ég einnig inn á mikilvægi þess að ASÍ nýti betur þann þekkingarbrunn sem er til staðar innan hreyfingarinnar. Aðildarfélögin þekkja raunveruleikann á vinnustöðunum, sjá breytingarnar oft fyrst og vita hvar skórinn kreppir. Hlutverk ASÍ er að safna þeirri reynslu saman, greina hana og umbreyta henni í sameiginlegan slagkraft. Samband aðildarfélaganna og skrifstofu ASÍ á að vera tvístefnugata. Innan skrifstofu ASÍ býr verðmæt og fágæt þekking og færni sem þarf að nýtast aðildarfélögunum og félagsfólki þeirra í daglegri baráttu þeirra. Þar sækja félögin greiningar, gögn, sérfræðiráðgjöf og stuðning við stefnumótun og undirbúning krafna. Að sama skapi þarf reynsla og þekking úr starfi félaganna að skila sér inn í greiningar, stefnumótun og hagsmunagæslu ASÍ. Samtal í báðar áttir Í samtölum mínum við formenn stéttarfélaga um land allt undanfarið hef ég heyrt og skynjað sterkt ákall um meira og reglulegra samtal. Félögin vilja að forseti sambandsins sé aðgengilegur og sýnilegur, að boðleiðir séu styttri og að tengsl skrifstofunnar við daglegt starf félaganna séu sterkari. Slíkt gerist ekki af sjálfu sér. Í aðdraganda 47. þings ASÍ hef ég talað við formenn allra aðildarfélaga ASÍ og heimsótt mörg þeirra þvert um landið. Hljóti ég kjör til forseta mun ég gera það að forgangsmáli mínu að halda þessu samtali áfram og láta það ekki slitna. Ég býð mig fram til forseta ASÍ vegna þess að ég tel mig hafa þann kraft sem þarf til að hreyfa við hlutunum. Ég ber mikla virðingu fyrir sögu og sigrum verkalýðshreyfingarinnar. Á þeim grunni eigum við að byggja en við þurfum líka að hafa þor og áræðni til að uppfæra baráttuaðferðirnar. Höfundur gefur kost á sér til embættis forseta ASÍ á 47. þingi sambandsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein ASÍ Arnaldur Grétarsson Mest lesið Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Sjá meira
Fjöldahreyfingar lifa á tengslum við grasrótina. Þær sækja styrk sinn í fólkið, reynslu þess, kröfur og samtakamátt. Um leið og fjöldahreyfing verður of upptekin af eigin formi, verkferlum og stofnanalegu skipulagi er hætta á að hún fjarlægist þann veruleika sem hún á að spretta úr. Formfesta er mikilvæg upp að vissu marki; hún skapar nauðsynlega umgjörð og ferla. Formfestan má hins vegar aldrei verða svo fyrirferðarmikil að hún kæfi frumkvæði eða geri leiðina frá grasrót til forystu of langa. Þekking sem verður til með samvinnu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) er vettvangur þar sem 44 stéttarfélög, með fleiri en 140.000 félaga, koma saman til að móta sameiginlega stefnu um grundvallaratriði vinnumarkaðar og samfélags. Í nýlegri grein minni fjallaði ég um mikilvægi öflugrar hagsmunabaráttu fyrir hönd launafólks og þar kom ég einnig inn á mikilvægi þess að ASÍ nýti betur þann þekkingarbrunn sem er til staðar innan hreyfingarinnar. Aðildarfélögin þekkja raunveruleikann á vinnustöðunum, sjá breytingarnar oft fyrst og vita hvar skórinn kreppir. Hlutverk ASÍ er að safna þeirri reynslu saman, greina hana og umbreyta henni í sameiginlegan slagkraft. Samband aðildarfélaganna og skrifstofu ASÍ á að vera tvístefnugata. Innan skrifstofu ASÍ býr verðmæt og fágæt þekking og færni sem þarf að nýtast aðildarfélögunum og félagsfólki þeirra í daglegri baráttu þeirra. Þar sækja félögin greiningar, gögn, sérfræðiráðgjöf og stuðning við stefnumótun og undirbúning krafna. Að sama skapi þarf reynsla og þekking úr starfi félaganna að skila sér inn í greiningar, stefnumótun og hagsmunagæslu ASÍ. Samtal í báðar áttir Í samtölum mínum við formenn stéttarfélaga um land allt undanfarið hef ég heyrt og skynjað sterkt ákall um meira og reglulegra samtal. Félögin vilja að forseti sambandsins sé aðgengilegur og sýnilegur, að boðleiðir séu styttri og að tengsl skrifstofunnar við daglegt starf félaganna séu sterkari. Slíkt gerist ekki af sjálfu sér. Í aðdraganda 47. þings ASÍ hef ég talað við formenn allra aðildarfélaga ASÍ og heimsótt mörg þeirra þvert um landið. Hljóti ég kjör til forseta mun ég gera það að forgangsmáli mínu að halda þessu samtali áfram og láta það ekki slitna. Ég býð mig fram til forseta ASÍ vegna þess að ég tel mig hafa þann kraft sem þarf til að hreyfa við hlutunum. Ég ber mikla virðingu fyrir sögu og sigrum verkalýðshreyfingarinnar. Á þeim grunni eigum við að byggja en við þurfum líka að hafa þor og áræðni til að uppfæra baráttuaðferðirnar. Höfundur gefur kost á sér til embættis forseta ASÍ á 47. þingi sambandsins.
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun