Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar 8. október 2026 10:00 Nýlega var greint frá því að upplýsingar um nöfn, ofnæmi og sérfæði skólabarna í Hafnarfirði hefðu verið aðgengilegar í gegnum vef mötuneytisþjónustu. Foreldri benti á veikleikann, fyrirtækið lokaði vefnum samstundis og tilkynnti málið til Persónuverndar. Það eru rétt viðbrögð og ástæðulaust að gera eitt fyrirtæki að blóraböggli. Vandinn er nefnilega ekki bundinn við Hafnarfjörð. Vandinn er kerfislægur Foreldrar og forráðamenn barna með fæðuofnæmi þekkja þetta vel. Á hverju hausti fylla þeir út sömu upplýsingarnar á nýjan leik: fyrir skólann, mötuneytið, frístundina, íþróttafélagið og aðrar tómstundir. Upplýsingarnar enda í umsóknarkerfum, tölvupóstum, útprentuðum listum á eldhúsveggjum og skjölum sem enginn veit lengur hver hefur aðgang að. Hvert afrit er nýr staður þar sem eitthvað getur farið úrskeiðis, og hvert afrit úreldist um leið og ofnæmi barnsins breytist. Upplýsingar um ofnæmi eru heilsufarsupplýsingar og teljast viðkvæmar persónuupplýsingar samkvæmt persónuverndarlögum. Þegar börn eiga í hlut ætti krafan að vera enn ríkari. Samt er iðulega farið með þessar upplýsingar eins og hvern annan nafnalista. Tvöföld áhætta Persónuverndin er önnur hliðin. Hin er öryggi barnsins. Listi sem er úreltur, ófullnægjandi eða skilar sér ekki til afleysingafólks í eldhúsinu getur haft alvarlegar afleiðingar. Kerfi sem verndar gögnin illa er oftast líka kerfi sem miðlar þeim illa. Þrjár spurningar til sveitarfélaga á Íslandi 1. Hvar eru ofnæmisupplýsingar barna geymdar í dag, í hversu mörgum afritum, og hver hefur aðgang? 2. Liggja fyrir vinnslusamningar og mat á áhrifum á persónuvernd gagnvart öllum þjónustuaðilum sem fá þessar upplýsingar? 3. Geta foreldrar séð, uppfært og afturkallað upplýsingarnar sjálfir, á einum stað? Snúum dæminu við Í stað þess að hver stofnun geymi sinn eigin lista fyrir hvert barn, ættu foreldrar og forráðamenn að eiga upplýsingarnar og stýra þeim sjálfir. Þeir veita þeim aðgang sem þurfa á honum að halda, eldhúsi, kennara eða þjálfara, og geta breytt honum og tekið til baka eftir þörfum. Þá er engin miðlæg skrá með nöfnum og ofnæmi barna í heilu bæjarfélagi, og þar með engin slík skrá sem getur lekið. Undirritaður er ekki hlutlaus í þessu máli. Ég þróa AllergyID, íslenskt app sem byggir á þessari hugsun. En meginreglan skiptir meira máli en einstök lausn: viðkvæmustu upplýsingarnar um börnin okkar eiga að vera á forræði foreldra eða forráðamanna, ekki í skjölum víðs vegar í kerfinu. Atvikið í Hafnarfirði fór vel að þessu sinni, þökk sé athugulu foreldri og skjótum viðbrögðum. Notum tækifærið og bætum utanumhald um þessar viðkvæmu upplýsingar áður en næsta atvik fer verr. Höfundur er stofnandi AllergyID. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar