Fjármálamarkaðir munu hafa lykiláhrif á það hversu mikil lífsgæði við búum við á næstu árum og áratugum. Stór orð, en útgangspunktar Draghi skýrslunnar um samkeppnishæfi Evrópu frá árinu 2024 sýna hvers vegna þetta skiptir máli. Sem dæmi má draga fram eftirfarandi:
- Raunvöxtur ráðstöfunartekna Bandaríkjamanna hefur verið tvöfaldur á við vöxtinn hjá Evrópubúum frá árinu 2000.
- Ekkert fyrirtæki í ESB sem stofnað hefur verið frá grunni á síðustu 50 árum hefur náð markaðsvirði yfir 100 milljörðum evra, á meðan öll sex bandarísku félögin sem voru metin á yfir 1.000 (!) milljarða evra þegar Draghi skýrslan var gefin út voru stofnuð á því tímabili.
- Evrópubúar spara meira en Bandaríkjamenn, en eru samt mun eignaminni því sparnaður þeirra liggur fyrst og fremst á bankareikningi á meðan þeir bandarísku fjárfesta meira. Eignir evrópskra sparifjáreigenda hafa einungis vaxið um þriðjung þess sem eignir þeirra bandarísku hafa vaxið um, frá árinu 2009 til 2024.
Í stuttu máli eru Evrópubúar að fara á mis við tekjuvöxt, tækifæri og eignamyndun og er Ísland því miður ekki undanskilið í þessari þróun. Skýringarnar eru margar, eins og er rakið í skýrslunni, en uppbygging fjármálakerfisins ræður þar miklu. Fjármálamarkaðir skapa kannski ekki mikil verðmæti einir og sér, en það hvernig fjármagn flæðir frá þeim sem eiga sparifé og vilja ávaxta það til fyrirtækja og frumkvöðla sem standa að sjálfri verðmætasköpuninni skiptir öllu máli.
Leiðir til úrbóta
Evrópusambandið hefur áttað sig á vandanum og gripið til ýmissa úrræða til að reyna að taka á honum. Þar vil ég sérstaklega nefna tvennt sem snýr að fjármálamörkuðum. Annars vegar hina svokölluðu skráningarlöggjöf (e. Listing Act) og hins vegar Sparnaðar- og fjárfestingarbandalagið (e. Savings and Investments Union / SIU).
Hvernig fjármagn flæðir frá þeim sem eiga sparifé og vilja ávaxta það til fyrirtækja og frumkvöðla sem standa að sjálfri verðmætasköpuninni skiptir öllu máli.
Skráningarlöggjöfin hefur tekið gildi innan ESB og er þar komin til framkvæmda að verulegu leyti. Hún felur í sér miklar umbætur, sem draga úr reglubyrði skráðra félaga og gera fjármögnun með skráningu á markað að álitlegri kosti. Ísland situr eftir, ásamt hinum EES ríkjunum, og íslensk skráð félög njóta því ekki enn þeirrar einföldunar sem þegar hefur tekið gildi innan ESB.
Sparnaðar- og fjárfestingarbandalagið er síðan eins konar regnhlíf yfir fjölda úrbóta, sem er ætlað að gera fólki kleift að fá hærri ávöxtun á sparnaðinn sinn og hjálpa evrópskum fyrirtækjum að vaxa (tvö markmið sem fara vel saman). Einn liður í því er að hvetja Evrópuríki til að innleiða einhvers konar sparnaðar- og fjárfestingarreikninga til að einfalda fólki að spara með því að fjárfesta á verðbréfamarkaði. Slíkir reikningar geta einfaldað skattalega umgjörð langtímasparnaðar, aukið þátttöku almennings á verðbréfamarkaði og beint stærri hluta sparnaðar fólks til atvinnulífsins.
Fjöldi Evrópuríkja hefur þegar innleitt sparnaðar- og fjárfestingarreikninga í einhverri mynd. Fremstir í flokki eru Svíar, með Investeringssparkonto reikningana sem hafa verið við lýði í einhverri mynd frá 2012, en Norðmenn innleiddu líka Aksjesparekonto reikningana árið 2017, Danir Aktiesparekonto reikninga 2019 og Finnar Osakesäästötili reikningana árið 2020. Aftur situr Ísland eftir.
Ísland má ekki sitja eftir
Við ættum að vera leiðandi í þessum málum. Þrýsta á skjóta upptöku Evrópuregluverks eins og skráningarlöggjafarinnar í EES samninginn og innleiða hana eins fljótt og unnt er. Jafnframt ættum við að hrinda í framkvæmd okkar eigin SIU áætlun, meðal annars með innleiðingu íslenskra sparnaðar- og fjárfestingarreikninga.
Fjöldi Evrópuríkja hefur þegar innleitt sparnaðar- og fjárfestingarreikninga í einhverri mynd. Aftur situr Ísland á eftir.
Þetta er ekki spurning um að vera með eða á móti Evrópusambandinu, hvað þá aðild að því. Allir sem eru hlynntir aðild hljóta samt að vilja að við göngum í takt og nýtum það sem vel er gert innan ESB. Þeir sem eru andvígir aðild ættu sömuleiðis að vilja koma í veg fyrir að íslensk fyrirtæki búi við meira íþyngjandi regluverk en fyrirtæki innan ESB og lakara aðgengi að fjármögnun. Um þetta ætti að vera hægt að mynda víðtæka pólitíska sátt, en samt fá þessu stóru hagsmunamál nánast enga athygli.
Fjármálamarkaðurinn er gríðarlega mikilvægur innviður fyrir heimili og atvinnulífið í landinu og forsenda aukinnar verðmætasköpunar. Ef við sinnum honum ekki tapa allir.
Höfundur er framkvæmdastjóra skráninga hjá Nasdaq Iceland.

