Skoðun

Við getum í rauninni ekki tapað

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Málið varðandi bókun 35 við EES-samninginn er komið til EFTA-dómstólsins samkvæmt ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Stofnunin hefur sagt að málið verði ekki dregið til baka nema Ísland fullnægi kröfum hennar um að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum samninginn hafi forgang á almenna löggjöf sem er innlend að uppruna.

Við Íslendingar höfum þannig val um að gefast upp strax með því að samþykkja frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra vegna málsins, sem uppfyllir áðurnefndar kröfur, eða láta reyna á það fyrir EFTA-dómstólnum. Með því væri möguleiki að dómstóllinn dæmdi okkur í hag en með samþykkt frumvarpsins yrði hann að engu gerður.

Versta mögulega staðan sem gæti komið upp ef EFTA-dómstóllinn úrskurðaði í málinu væri sú að við þyrftum að uppfylla kröfur ESA. Sem fyrr segir það sem frumvarpið felur í sér. Með öðrum orðum getum við í rauninni ekki tapað á því að málið fari fyrir dómstólinn. Niðurstaðan getur aldrei orðið verri en sem nemur frumvarpi Þorgerðar Katrínar.

Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is.




Skoðun

Sjá meira


×