Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Heitirpottar.is 6. október 2026 10:15 Saltvatnspottar njóta útrúlegra vinsælda meðal landsmanna. Hjá Heitirpottar.is fást þeir í ólíkum stærðum og gerðum og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Saltvatnspottar virðast vera að vinna hug og hjörtu Íslendinga þessa dagana. Hjá Heitirpottar.is hefur salan aukist jafnt og þétt undanfarin ár og sífellt stærra hlutfall viðskiptavina velur saltvatnspott fram yfir hefðbundna hitaveitu- eða rafmagnspotta.
Ari Steinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Heitirpottar.is, segir þróunina hafa verið hraða og að ánægðir eigendur saltvatnspotta séu líklega besta auglýsingin. „Viðskiptavinir sem eru með saltvatnspotta mæla svo mikið með þeim. Það smitast síðan yfir til annarra. Þegar fólk kemur í búðina til okkar vill það þess vegna oft bara skoða saltvatnspotta,“ segir Ari. Ari Steinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Heitirpottar.is á góðri stundum með dóttur inni, að sjálfsögðu í heitum potti. Pabbi þurfti sjö ár til að sannfærast En hvað er saltvatnspottur eiginlega? Ari segir mikilvægt að byrja á því að leiðrétta algengan misskilning. Saltvatnspottur er ekki pottur fullur af sjó heldur rafmagnspottur með sérstökum saltvatns- og hreinsibúnaði. Potturinn er fylltur með venjulegu köldu kranavatni og sérstakri saltblöndu er bætt út í. Hreinsikerfið framleiðir síðan klór úr saltinu eftir þörfum og viðheldur vatnsgæðunum. Saltmagnið er lítið og því finnur fólk hvorki saltbragð í munni né sviða í augum eins og margir ímynda sér þegar þeir heyra orðið saltvatnspottur. „Kerfið í flottustu saltvatnspottunum í dag sér í raun um vatnsgæðin fyrir mann. Maður fyllir einfaldlega pottinn af vatni og hann mallar og framleiðir klór úr saltinu eftir þörfum. Þess vegna er mjög lítið viðhald.“ Ari segir að samkvæmt leiðbeiningum þurfi aðeins að skipta um vatn um það bil einu sinni á ári, sé rétt staðið að umhirðu þess. „Það hljómar kannski ógeðslega, en vatnið er hreinna og betra fyrir húðina en glænýtt hitaveituvatn. Það er það ótrúlegasta við þessa potta.“ Reyndar hljómaði hugmyndin svo vel að faðir Ara, sem stofnaði fyrirtækið á sínum tíma, var lengi vel ekki tilbúinn að kaupa hana. „Það tók pabba sjö ár að ákveða að panta þessa potta inn. Hann trúði þessu ekki. Honum fannst þetta vera „too good to be true“, einfaldlega of gott til að vera satt.“ Minna viðhald og mýkri húð Ari segir þægindin við saltvatnskerfið eiga stóran þátt í vinsældunum. Auk þess finni margir notendur mun á húðinni eftir að hafa setið í pottinum. „Saltið hjálpar til við að næra húðina og bindur vatnið við húðina. Þannig færðu bæði hreinna vatn og pott sem er þægilegra að sjá um, en um leið verður húðin mýkri eftir notkun.“ Saltvatnspottarnir frá Arctic Spas eru með sjálfvirkt SPABOY-hreinsikerfi sem fylgist með vatnsgæðunum og lætur eigandann vita ef grípa þarf inn í. Einnig er hægt að fylgjast með pottinum í gegnum hugbúnað og meðal annars sjá upplýsingar um orkunotkun. Þótt heitir saltvatnspottar séu langalgengastir segir Ari tæknina alls ekki bundna við heita potta. „Það er hægt að fá þá kalda líka. Þetta er því að taka yfir markaðinn á báðum sviðum.“ Frá tveimur upp í tuttugu manns Pottarnir eru sömuleiðis fáanlegir í fjölbreyttum stærðum. Ari segir þá fást allt frá litlum tveggja manna pottum upp í stóra potta fyrir allt að tuttugu manns. „Það er líka hægt að fá mismunandi útfærslur og liti, velja hvort maður vill legusæti, nudd eða hljóðkerfi. Það eru alls konar viðbætur sem hægt er að bæta við þannig að maður getur í raun hannað pott sem hentar manni fullkomlega.“ Pottarnir fara bæði á heimili og í sumarbústaði og salan virðist ekki lengur bundin við ákveðinn árstíma. „Saltvatnspottarnir seljast jafnt og þétt allt árið. Miðað við tölurnar síðustu tvö til þrjú árin finnum við bara fyrir aukningu. Við erum alltaf að toppa okkur. Í raun erum við að toppa fyrri tölur í hverjum mánuði fyrir sig.“ Það sem vekur sérstaka athygli er að sögn Ara hversu hratt saltvatnspottarnir sækja í sig veðrið á kostnað annarra tegunda. „Það er ekki bara þannig að saltvatnspottar séu almennt að verða vinsælli heldur er fólk líka í auknum mæli að velja saltvatnspott fram yfir hitaveitupott eða hefðbundinn rafmagnspott. Hlutfall saltvatnspotta er að aukast mjög hratt.“ Íslenski potturinn fæddist í Kanada Vaxandi eftirspurn hefur orðið til þess að Heitirpottar.is ætlar að auka úrvalið enn frekar. Þar ber hæst nýr pottur sem Ari og Kristján faðir hans hafa hannað í samstarfi við kanadíska framleiðandann Arctic Spas sérstaklega fyrir íslenskan markað. „Við erum búnir að fá grænt ljós á pottinn frá framleiðandanum og hann er nú þegar kominn í framleiðslu.“ Ari segir óvenjulegt að söluaðili komi með þessum hætti beint að hönnun nýs potts fyrir sinn heimamarkað. Og hvað einkennir íslenska pottinn? Svarið liggur að einhverju leyti í sundlaugarmenningu þjóðarinnar. „Við finnum fyrir því að margir á Íslandi eru ekkert sérstaklega mikið að hugsa um nudd. Fólk vill einfaldan pott. Þessi pottur er því með einföld sæti og er opinn í laginu þannig að hægt er að koma mörgum fyrir í honum.“ Hönnunin sækir þannig innblástur í heitu pottana sem Íslendingar þekkja úr sundlaugunum. „Þegar þú ferð í heitan pott í sundi er hann yfirleitt frekar létt mótaður og hægt að koma mörgum fyrir. Áherslan í pottinum sem við hönnuðum var því á léttmótað form, gott fótapláss og ekki mikla áherslu á nudd.“ Þess í stað var lögð áhersla á þrjú atriði sem skipta miklu máli við íslenskar aðstæður: góða hitaeinangrun, lágan rekstrarkostnað og öflugt hreinsikerfi. Drottningin mætir næsta vor Nýi potturinn hefur fengið nafnið Queen og verður að sögn Ara aðalfjölskyldupottur fyrirtækisins næsta vor. Hann er í hefðbundinni sex manna stærð og rúmar um fimm til sjö manns. Framleiðsla á fyrstu 50 pottunum er þegar hafin og eiga að berast í vetur. Ari býst við að þeir geti selst upp fyrir árslok og önnur sending kemur síðan næsta vor. „Við mælum því með því að fólk bregðist skjótt við ef það vill tryggja sér eintak. Pottarnir eru framleiddir í ákveðnum hollum í verksmiðjunni og þess vegna er sniðugt að tryggja sér pott fyrirfram.“ Arctic Spas framleiðir pottana í Kanada og segir Ari þá sérstaklega vel henta íslenskum aðstæðum. Pottarnir séu hannaðir með mikið frost, hvassviðri og erfið veðurskilyrði í huga, enda þurfi þeir að standast kanadískan vetur. Pottþjóðin vill líka stærri potta Íslendingar þurfa líklega litla hvatningu til að setjast ofan í heitt vatn en Ari segir Íslendinga vera öflugustu pottþjóð heims miðað við höfðatölu. Þar spili saman fjöldi potta við heimili og sumarbústaði, fjöldi potta í líkamsræktarstöðvum og baðlónum og hin rótgróna íslenska sundlaugarmenning. „Við erum bæði með fleiri potta og fleiri sundlaugar. Þetta er bara stór hluti af menningunni okkar.“ Og pottamenningin heldur áfram að þróast. Samhliða aukinni sölu saltvatnspotta hefur Heitirpottar.is fundið fyrir ört vaxandi áhuga á svokölluðum sundlaugarpottum. Þeir eru nokkurs konar millivegur milli hefðbundins heits potts og lítillar sundlaugar og geta rúmað allt að tuttugu manns. Eftirspurnin er slík að fyrirtækið hyggst tífalda pöntun sína á þessum pottum fyrir næsta vor. „Þeir eru hugsaðir fyrir fjölskylduna. Það er hægt að sitja í þeim en þetta eru líka frábærir leikpottar fyrir krakkana.“ Hitastigið má stilla eftir tilefni, allt frá sundlaugarhita upp í hefðbundinn hita í heitum potti. Þannig getur sami potturinn verið busllaug fyrir börnin, sundpottur eða staður fyrir fullorðna til að slaka á. „Það er hægt að synda í honum en líka hægt að slappa af. Svo er hægt að stilla hann á sundlaugarhitastig, hitastig eins og í heitum potti eða einhvern milliveg þar á milli.“ Ef marka má söluþróun síðustu ára virðist því fátt benda til þess að pottáhugi Íslendinga sé að kólna. Þvert á móti eru pottarnir að verða fjölbreyttari, tæknivæddari og stærri og saltvatnið virðist vera að sækja hratt í sig veðrið.
Heilsa Mest lesið „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Lífið samstarf Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Tárin féllu þegar Ambika og Hafdís hittust loksins Lífið Fleiri fréttir Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Sjá meira