Lífið

Fun­heit í fimm ára af­mæli

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Jón Davíð athafnamaður, Helga Sigrún eigandi Dóttir skin, Birgitta Líf framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs World Class og Lauga Spa, Villi Vill stjörnulögmaður og Sindri Jensson athafnamaður voru í miklum fíling í afmæli Auto.
Jón Davíð athafnamaður, Helga Sigrún eigandi Dóttir skin, Birgitta Líf framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs World Class og Lauga Spa, Villi Vill stjörnulögmaður og Sindri Jensson athafnamaður voru í miklum fíling í afmæli Auto. Þóra Ólafs

Reykjavíkurborg iðaði af lífi sem aldrei fyrr um helgina og djammþyrstir partýpinnar biðu þolinmóðir í röð sem náði þvert yfir Lækjargötuna til þess að komast inn á klúbbinn. Tilefnið var fimm ára afmæli skemmtistaðarins Auto og öllu var til tjaldað fyrir fögnuðinn. 

Allar helstu poppstjörnur landsins tróðu upp, allt frá rísandi stjörnunni Alösku og ungstirnunum Maroni Birni og Elvari Orra yfir í reynsluboltana JóaPé og Króla. 

Gestir voru í funheitum fíling og mikið stjörnufans var á klúbbnum. Framkvæmdastjórinn og áhrifavaldurinn Birgitta Líf, stjörnulögmaðurinn Villi Vill, raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime og húðdrottningin Helga Sigrún voru meðal þeirra sem létu sig ekki vanta. 

Rapparinn og rísandi stjarnan Elvar Orri mætti í bol sem á stóð „Ég hélt líka fram hjá Elvari“ en honum var stefnt fyrir að hafa notað hljóðbút í upphafi lagsins „Miklu betri einn“ þar sem heyra má í tveimur stelpum sem rífast hástöfum og þessi fleyga lína er sögð.  

Hér má sjá vel valdar myndir frá afmælinu: 

Daði Ómars og Logi Snær þeyttu skífum.Þóra Ólafs
JóiPé og Króli trylltu lýðinn.Þóra Ólafs
Kolfreyja Sól Bogadóttir, betur þekkt sem Alaska, Lúkas Björn og Ester Celin.Þóra Ólafs
Stjörnuparið Helga Sigrún og Jón Davíð.Þóra Ólafs
Alaska og Tatjana Dís tróðu upp.Þóra Ólafs
Sumartíminn sló í gegn.Þóra Ólafs
Ólafur Alexander og Siggi Stebbi tóku púlsinn á röðinni. Þóra Ólafs
Alaska smart í svörtu og blúndum.Þóra Ólafs
Elvar í Ég hélt líka framhjá Elvari bolnum.Þóra Ólafs
Alaska í fíling.Þóra Ólafs
Alltaf stund fyrir sjómann.Þóra Ólafs
Sturla Atlas kom fram með 101 boysunum.Þóra Ólafs
Skvísulæti!Aðsend
Alaska skín skært á sviðinu.Þóra Ólafs
Fannar Ingi Hipsumhaps steig á stokk.Þóra Ólafs
Flóni skemmti gestum.Þóra Ólafs
Orkufull skvís.Þóra Ólafs
Stemmari!Þóra Ólafs
Birgta Líf, Tatjana Dís og fleiri partýpinnar í góðum gír.Þóra Ólafs
Dagur Þórhalls, Fannari Ingi og Arnar Ingi.Þóra Ólafs
Ungir og ferskir.Þóra Ólafs
Pæjur á klúbbnum.Þóra Ólafs
Svakaleg röð en fólk í stuði.Þóra Ólafs
Elvar og öryggisgæslan.Þóra Ólafs
Villi Vill er lögmaður Elvars.Þóra Ólafs
Maron Birnir og reykvélin.Þóra Ólafs
Elvar Orri og Logi Pedro hafa gefið út nokkur lög saman.Þóra Ólafs
Rauð ljós á klúbbnum.Þóra Ólafs
Maron Birnir og Elvar Orri. Þóra Ólafs
Ólafur Alexander hjá Auto glæsilegur.Þóra Ólafs
Siggi Stebbi og Elvar Orri slá á létta strengi.Þóra Ólafs
Siggi Stebbi og Óli Alexander.Þóra Ólafs
Strákar í stuði sem boða frið.Þóra Ólafs
Orri Hreiðarsson, Egill Ploder og Páll Orri.Þóra Ólafs
Arnór snapchat-stjarna.Þóra Ólafs
Glæsiparið Solveig María og Arnar Ingi.Þóra Ólafs
Helga Sigrún og Birgitta Líf alltaf miklar tískuskvísur. Þóra Ólafs
Egill Ploder, Patrekur Jaime og Andri Björnsson.Þóra Ólafs





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.