Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Fréttamiðlum hefur fækkað og blaðamannastéttinn minnkað á undanförnum árum.

Ef til vill er það ein ástæða þess að ekki hefur birst nein greining á því sem er að gerast hjá SÁÁ

Almenningur skilur því hvorki upp né niður í fréttum um átök á milli stjórnar SÁÁ og lækna og sálfræðinga.

Reynsla mín af SÁÁ er aðallega sú að hafa notið þjónustu starfsfólksins á Vogi í ágúst 1988 og svo viðtalstímar hjá SÁÁ að lokinni 10 daga dvöl sem opnuðu augu mín fyrir því að það væri til lausn. Viðtölin voru við ráðgjafa eins og Gretti og Oddnýju. Síðan tóku við nokkuð tíðir AA fundir fyrstu árin. Ég hef ekki þurft að drekka áfengi síðan, í 38 ár.

SÁÁ voru stofnuð af alkóhólistum sem höfðu farið í meðferð í Bandaríkjunum og það voru

Mest alkóhólistar sem störfuðu á Vogi og öðrum meðferðarstöðum, þar með talinn yfirlæknirinn.

Ég hef ekki fylgst náið með þeirri þróun og breytinum sem hafa orðið á meðferðinni undanfarna áratugi, en af fréttum að dæma virðist meðferðin nú vera leidd af sálfræðingum og læknum.

Átökin nú virðast snúast um það hvort þessar heilbrigiðsstéttir eigi að ráða öllu og aðferðir Bills og Bob sem þeir kynntu í AA bókinni og annarra slíkra upphafsmanna hafi verið látnar róa.

Það vantar allar upplýsingar um þessi átök og um hvað þau snúast í grunninn.

Ég hef heldur ekki séð birtar tölur um árangur meðferðarinnar. Veit enginn hver árangurinn er ? Það þyrfti að birta einfalda tölfræði fyrir almenning um hversu margir útskrifast frá SÁÁ og við hvaða vanda þau voru að glíma (misnotkun á áfengi, lyfjum, eiturlyfjum osfrv.) og hutfall þeirra sem losnuðu undan fíkninni eftir meðferð SÁÁ.

Og svo vantar samanburð á árangri upphaflegarar meðferðar sem alkóhólistar stóðu að og svo þessari sem er stunduð í dag.

Höfundur er óvirkur alki og klínískur dáleiðandi.




Skoðun

Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Sjá meira


×