Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar 5. október 2026 07:31 Almenningi hefur reynst erfitt að átta sig á deilunum innan SÁÁ og um hvað þær snúast. Þær birtast fólki sem átök um stjórnendur, stjórnarhætti, fjárhag og traust en erfitt getur verið fyrir fólk sem ekki þekkir vel til hugmyndafræðilegrar sögu samtakanna að átta sig á hvað er að gerast. Ég hef áður fjallað um aðhald, gagnsæi og ábyrgð ríkisins þegar milljörðum úr ríkissjóði er varið til þjónustu SÁÁ. En það skýrir ekki hvers vegna alvarleg átök verða aftur og aftur innan samtakanna og má segja að það stangist á við mikilvægi þess að skapa frið og traust til slíkrar þjónustu við fólk sem er í erfiðri stöðu. SÁÁ varð ekki til sem hefðbundin heilbrigðisstofnun. Minnesota-módelið, eða 12 spora meðferðin, var flutt hingað frá Bandaríkjunum á áttunda áratug síðustu aldar. Ekki aðeins sem nýtt meðferðarform heldur sem ákveðinn skilningur á vímuefnavanda og lausninni við honum: sjúkdómshugmynd, algert bindindi, 12 sporin og sterk tenging við AA-samtökin. SÁÁ náði gríðarlega sterkri stöðu á skömmum tíma. Hildigunnur Ólafsdóttir hefur lýst því hvernig samtökin urðu stór þjónustuaðili ríkisins og höfðu mikil áhrif á faglega og pólitíska nálgun Íslands á áfengis- og vímuefnavanda. Með tímanum varð þessi leið í hugum margra einfaldlega „meðferðin“ og hefur haft mikil áhrif á hugsun og orðræðu um vímuefnanotkun og meðferð við honum á Íslandi. Þessi saga skiptir máli vegna þess að SÁÁ eru félagasamtök með ákveðna sögu og batahefð og rekstraraðili heilbrigðisþjónustu fyrir opinbert fé. Í dag sjáum við árekstur þessara tveggja kerfa. AA og önnur 12 spora samtök eru frjáls félagasamtök sem fólk velur sjálft að taka þátt í: fara á fundi, vinna sporin eða byggir bata sinn á tengingu við æðri mátt. Fjöldi fólks hefur nýtt sér þann stuðning sem þar er í boði og enginn efast um rétt fólk til að mynda félög og taka þátt í starfi þeirra. Öðru máli gegnir um heilbrigðisþjónustu sem ríkið greiðir fyrir. Hún þarf að lúta faglegum kröfum, styðjast við bestu fáanlegu þekkingu, virða sjálfræði sjúklinga og mannréttindi þeirra. Meðferðin þarf líka að geta lagað sig að fólkinu sem notar hana en ekki gera ráð fyrir að allir passi inn í sama prógrammið. Þetta er ein helsta gagnrýnin í úttekt heilbrigðisráðuneytisins á íslenska meðferðarkerfinu frá 2024. Þar er kerfinu lýst sem of kerfismiðuðu: einstaklingar séu gjarnan færðir inn í fyrirfram mótaða meðferð, meðal annars 12 spora líkanið, í stað þess að meðferð sé hönnuð út frá þörfum, markmiðum og aðstæðum hvers og eins. Vímuefnavandi þróast við ólíkar aðstæður. Hann getur tengst geðrænum vanda, áföllum, ofbeldi, fátækt, húsnæðisleysi, líkamlegum veikindum eða allt öðrum aðstæðum. Það er því ekki þannig að sama skilgreining á vandanum og sama lausnin henti öllum. Sú togstreita sem reglulega hefur komið upp á yfirborðið innan SÁÁ undanfarin 10 ár tengist, að minnsta kosti að hluta til, því að meðferðin hefur verið að þróast í átt frá Minnesota-módelinu sem Íslendingar hafa verið mjög trúaðir á. Meðferðin hefur þróast í átt að hefðbundnari heilbrigðisþjónustu, bænir og AA-fundir eru nú ekki lengur hluti af meðferðarstarfinu og ekki er ætlast til að starfsfólk taki þátt í 12 spora starfi, eins og var lengi krafa samtakanna. Fleiri fagstéttir hafa komið inn, meiri áhersla hefur verið lögð á gæði og fjölbreyttari faglegar aðferðir. En jafnframt er sterk hefð fyrir því að 12 spora „andinn“ sé miðlægur í starfinu og margir harma það að hann sé á undanhaldi. Fyrir fólk sem telur að þessi leið hafi bjargað lífi þess er skiljanlegt að hún hafi mikið vægi. En reynsla einstaklings af því sem hjálpaði honum getur ekki ein og sér ráðið því hvernig heilbrigðisþjónusta við fjölbreyttan hóp fólks er skipulögð. Gjarnan er vísað til Cochrane-samantektarinnar frá 2020 sem sönnunar fyrir góðum árangri AA og svokallaðrar Twelve-Step Facilitation, TSF, sérstaklega hvað varðar samfelld bindindi. Þessar niðurstöður þarf þó að túlka rétt. Nick Heather hefur bent á að forskotið hafi fyrst og fremst birst á samfelldu bindindi en ekki með sama hætti á öðrum mælikvörðum, svo sem drykkjuþunga eða afleiðingum áfengisneyslu. Engin rannsóknanna mældi heldur lífsgæði eða sálræna velferð. Þá voru sterkustu niðurstöðurnar úr handbókarstýrðri TSF-meðferð sem þjálfað fagfólk veitti. Það er ekki það sama og að sýna fram á að 12 spora menning eigi að vera umgjörð heillar heilbrigðisstofnunar. Lance Dodes hefur bent á annan mikilvægan vanda: hverjir eru taldir þegar árangur er metinn? Ef mikið er horft til þeirra sem haldast inni í AA eða 12 spora starfi en minna til þeirra sem hætta vegna þess að nálgunin hentar þeim ekki getur myndin af árangri orðið skökk. Sú spurning verður sérstaklega mikilvæg þegar eitt kerfi er ráðandi og valkostirnir fáir. En vísindalegur árangur er aðeins annar hluti málsins. Hinn er mannréttindalegur. TSF byggist á 12 spora hugmyndafræðinni. Hún var þróuð til að leiða fólk inn í 12 spora starf og þar eru grunnhugmyndir um vanmátt, uppgjöf og æðri mátt ríkjandi. Fólki er frjálst að velja slíka leið, en hún á þó ekki að vera kostuð af hinu opinbera. Meðferð sem byggir á trúarlegri innrætingu stangast á við réttinn til trúfrelsis, réttinn til að aðhyllast enga trú og að vera laus við trúarlega eða andlega innrætingu. Opinber heilbrigðisþjónusta verður því að bjóða fólki meðferð sem felur ekki í sér að það þurfi að gangast undir hugmyndir um æðri mátt eða andlega uppgjöf. Ágreiningurinn innan SÁÁ endurspeglast í togstreitu sem myndast þegar samtök sem hafa í tæp fimmtíu ár mótast af 12 spora hugmyndafræði reka heilbrigðisþjónustu. Þau hafa gert samning við ríkið um að reka hana í samræmi við nútíma gæðakröfur í heilbrigðisþjónustu. Þess vegna verður deilan innan SÁÁ ekki leyst með mannaskiptum. Skýra þarf mörkin á milli félagsins SÁÁ, með sögu þess og batahefð, þar sem sporin tólf, uppgjöf og samband við æðri mátt eru grundvallarþættir og heilbrigðisþjónustunnar, sem samtökin reka nú í samræmi við gæðakröfur heilbrigðisþjónustu. Hér skiptir samsetning stjórnarinnar máli. Reynsla fólks af meðferð eða störfum hjá SÁÁ gerir það ekki vanhæft til stjórnarsetu en það hefur áhrif á hversu einsleitur þekkingar- og reynslugrunnurinn verður. Í stjórninni sitja allavega 9 fyrrverandi ráðgjafar hjá samtökunum og þrír núverandi starfsmenn, Auk þess eiga margir innan félagsins reynslusögu úr meðferð og þeirri batahefð sem SÁÁ hefur byggt á. Reynsluþekking er verðmæt og á sannarlega erindi inn í stjórnun heilbrigðisþjónustu. Vandinn verður þegar nánast öll reynsluþekkingin kemur úr sama kerfinu og sömu hugmyndafræðinni, sem er mjög fastmótuð. Þá getur myndast lokað þekkingarkerfi þar sem fólk fer í meðferð, tileinkar sér skilning kerfisins á vandanum og lausninni, fer jafnvel sjálft að starfa innan kerfisins og tekur síðar þátt í stjórnun þess. Þetta viðheldur hugmyndafræði stofnunarinnar og því getur fráhvarf frá 12 spora módelinu auðveldlega haft í för með sér þá upplifun að gagnrýnin beinist að eigin bata, starfsferli eða sjálfsmynd, fremur en sem eðlileg fagleg umræða um þróun heilbrigðisþjónustu. Þegar stjórnin þarf að taka afstöðu til starfa fagfólks sem hefur það verkefni að færa þjónustuna frá þeirri hugmyndafræði sem stjórnarmenn sjálfir hafa að stórum hluta verið félagsmótaðir inn í, í samræmi við þær faglegu og gæðatengdu kröfur sem fylgja samningi SÁÁ við SÍ. Ekki er um venjulegan ágreining um rekstur að ræða heldur er kerfið, heilbrigðisstarfsfólkið, í raun að reyna að endurskoða eigin forsendur á sama tíma og stjórnin er að vernda þær. Deilan innan SÁÁ er því ekki aðeins árekstur eldri og nýrri aðferða í meðferð. Hún sýnir hversu erfitt er fyrir stofnun að breytast þegar þeir sem fara með æðsta vald innan hennar hafa að stórum hluta sjálfir mótast af því kerfi sem þarf að endurskoða. Höfundur er framkvæmdastýra og talskona Rótarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein SÁÁ Mest lesið Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Sjá meira
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun