„Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. október 2026 17:20 Guðni Th. minnti MR-inga á að námið eigi að vera erfitt, annars sé það ekki þess virði. Vísir/Einar Menntaskólinn í Reykjavík fagnaði stórafmæli í gær en þá voru liðin 180 ár frá því hann var fyrst settur í Gamla skóla við Lækjargötu. Af því tilefni var haldin hátíðarmóttaka fyrir framan skólann þar sem rektor skólans flutti ræðu og fjölmargir nafntogaðir fyrrverandi nemendur fögnuðu tímamótunum. Fyrrverandi forsetinn Guðni Th. Jóhannesson hélt stutta tölu og minnti nemendur á að nám eigi að vera erfitt.
Menntaskólinn í Reykjavík varð 180 ára í gær þó saga hans teygi sig aftur til 1056. Fjölbreytt dagskrá var á vegum skólans í vikunni, á þriðjudagskvöld rifjuðu gamlir nemendur upp skemmtilegar sögur á Sögukvöldi, á miðvikudagskvöld héldu sögukennarar skólans erindi um sögu hans og á afmælisdaginn var haldin hátíðarmóttaka. Guðni Th. hélt stutta en góða tölu.Vísir/Einar Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor MR, hélt ræðu á móttökunni auk þess sem bæði Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Guðni Th. Jóhannesson héldu tölur. „Kæru MR-ingar, þetta á að vera erfitt. Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði. En það á ekki að vera of erfitt. Og munið það börnin góð að njóta, leggja hart að ykkur og lesa heima,“ sagði Guðni í tölu sinni áður en hann fékk alla viðstadda til að hrópa húrra fyrir skólanum. Fjöldi fyrrverandi nemenda lagði leið sína í Lækjargötuna til að fagna afmælinu, má þar nefna Miðflokksþingmennina Snorra Másson og Sigríði Á. Andersen, fjölmiðlamanninn Boga Ágústsson, rithöfundinn Þorgrím Þráinsson, Sólveigu Pétursdóttur fyrrverandi ráðherra, Viðreisnarmanninn Pawel Bartoszek og grasafræðinginn Guðríði Helgadóttur. Rektor MR og menntamálaráðherra undirrituðu viljayfirlýsingu um endurreisn Cösu Christi.Trausti Þorgeirsson Ekki nóg með að afmælinu væri fagnað heldur lýstu Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Sólveig rektor yfir sameiginlegum vilja til að undirbúa endurbætur á húsnæði Casa Christi við MR. Markmiðið er að húsið verði kennsluhæft á ný haustið 2030 og að allt skólastarf MR geti þá farið fram á skólareitnum við Lækjargötu. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af hátíðarmóttökunni: Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, hélt ræðu.Trausti Þorgeirsson Örtröð myndaðist við Gamla skóla.Trausti Þorgeirsson Inga og Guðni sátu saman.Vísir/Einar Nemendur fögnuðu tímamótunum.Trausti Þorgeirsson Glatt var á hjalla.Trausti Þorgeirsson Halla Tómasdóttir lét sig ekki vanta.Trausti Þorgeirsson Halla flutti ræðu.Trausti Þorgeirsson Inspector Scholae við fallegan fána skólans.Trausti Þorgeirsson Sólveig Guðrún Hannesdóttir, núverandi rektor MR, og Elísabet Siemsen, fyrrverandi rektor.Trausti Þorgeirsson Jói Helga með mæðgunum Sigríði Andersen og Brynhildi Glúmdsdóttur.Trausti Þorgeirsson Sólveig rektor fékk blóm frá Félagi framhaldsskólakennara sem íslenskukennarinn Jóhannes Helgason færði henni.MR
Tímamót Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira