Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Andri Broddason skrifar 1. október 2026 18:46 Emelía Óskarsdóttir kom inn á sem varnarmaður en náði samt að skora sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni. Mynd/HB Köge Emelía Óskarsdóttir þurfti aðeins að spila í hálftíma til að skora með liði sínu HB Koge þegar það vann Servette frá Sviss í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Leikurinn endaði með 5-1 sigri danska liðsins en á sama tíma spilaði Inter Milan við Austria Wien þar sem leikurinn endaði jafn, 1-1.
HB Koge rétt tapaði fyrir Arsenal í fyrsta leik Meistaradeildarinnar og því var mikilvægt fyrir liðið að sækja góð stig. Danska liðið kom gríðarlega sterkt til leiks þar sem Macy Schultz kom danska liðinu yfir strax á níundu mínútu og var markinu fagnað vel. Á 28. mínútu náði Nadia Nadim að tvöfalda forystu HB Koge og var liðið gríðarlega sannfærandi inni á vellinum. Sjö mínútum síðar komst danska liðið í þriggja marka forystu þegar Noemie Carage, leikmaður Servette, skoraði í sitt eigið mark og var staðan 3-0 í hálfleik. Gestirnir frá Sviss ætluðu ekki að deyja ráðalausir og náði Laia Balleste að minnka muninn eftir frábæra fyrirgjöf úr aukaspyrnu. Kyra Carusa náði þó að skora fjórða mark HB Koge og kom liðinu aftur í þriggja marka forystu. View this post on Instagram A post shared by HB Køge Women (@hbkogewomen) Stuttu eftir það kom Emelía Óskarsdóttir inn fyrir danska liðið og var ákveðin í að setja mark sitt á leikinn. Hún náði því og skoraði frábært mark þegar aðeins tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Það reyndist lokamark leiksins og náðu dönsku meistararnir að skora fyrstu stig í sögu félagsins í Meistaradeildinni. Mikilvæg þrjú stig fyrir liðið sem getur tekið reynsluna með sér í næsta leik í Meistaradeildinni sem er gegn stórliði Barcelona. Náðu að bjarja jafntefli Bæði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Cecelía Rán Rúnarsdóttir voru í byrjunarliði Inter þegar liðið fór í heimsókn til Austria Wien. Leikurinn var jafn og erfiður en heimaliðið komst í forystu á 20. mínútu leiksins með marki frá Modesta Uka. Inter náði að halda vel í boltann en liðið átti í erfiðleikum með að skapa sér færi. Þegar Wien vann boltann var liðið fljótt að komast í góða sóknarstöðu en Cecelía Rán var á tánum í markinu og varði nokkur skot vel. View this post on Instagram A post shared by Inter Women (@inter_women) Inter var byrjað að sækja mikið undir lok leiks og voru heimakonur byrjaðar að leggjast í vörn. Í uppbótartíma fékk Inter loks hornspyrnu þar sem boltinn datt fyrir Ivana Andrés sem náði að leggja boltann í markið og jafna þannig metin. Eftir að hafa bjargað jafntefli er Inter með fjögur stig í Meistaradeildinni þegar aðeins tveir leikir eru búnir og er liðið því í góðri stöðu upp á framhaldið.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Fótbolti Íslendingar erlendis Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Fótbolti Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Fleiri fréttir Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Írland - Austurríki | Lykilleikur fyrir Heimi í miðjum stormi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Sjá meira