Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. október 2026 12:07 Hörður Arnarson hefur starfað sem forstjóri Landsvirkjunar í sautján ár. Vísir/Vilhelm Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar hefur óvænt boðað til starfsmannafundar eftir hádegið í dag. Samkvæmt heimildum Vísis hefur Hörður velt stöðu sinni sem forstjóri fyrir sér undanfarið og mun það vera tilefni fundarins. Vísir hefur ekki fengið staðfest hvort Hörður ætli að láta af störfum hjá félaginu en hann mætti á fund í stjórnarráðinu um eittleytið í dag.
Hörður tók við sem forstjóri Landsvirkjunar árið 2009 eftir að hafa starfað sem forstjóri Sjóvár um nokkurra mánaða skeið og leitt endurskipulagningu félagsins. Þar áður starfaði Hörður hjá Marel frá árinu 1985 og þar af sem forstjóri fyrirtækisins í tíu ár, frá 1999 til 2009. Á þeim tæpu sautján árum sem Hörður hefur gegnt stöðu forstjóra hefur rekstur orkufyrirtækis þjóðarinnar verið sterkur og það ítrekað greitt ríkissjóði tugi milljarða í arð. Lítið hefur þó verið um byggingu nýrra stórra virkjana, sem Hörður hefur viðrað áhyggjur af. Þó var Vaðölduver, fyrsta vindorkuver landsins, gangsett í síðasta mánuði. Hörður var til viðtals í Kaffispjallinu á Vísi fyrir tveimur árum. Vísir náði tali af Herði á tólfta tímanum sem sagðist lítið geta tjáð sig um málið. Aðspurður hvort hann væri enn starfandi forstjóri Landsvirkjunar játaði hann því en bað um að fá að ræða málið síðar. Í fundarboði til starfsmanna Landsvirkjunar á tólfta tímanum kemur fram að Hörður vonist til að sjá sem flest á fundinum klukkan 14:30. Fundurinn verður bæði í matsal Landsvirkjunar en aðrir starfsmenn geta fylgst með á Teams. Hörður mætti svo í forsætisráðuneytið til fundar um klukkan eitt í dag. Vísir hefur ekki fengið staðfest með hverjum Hörður fundaði eða hvert tilefnið var. Uppfært klukkan 14:43: Í tilkynningu frá Landsvirkjun kemur fram að Hörður hætti sem forstjóri Landsvirkjunar. Fréttin hefur verið uppfærð eftir heimsókn Harðar í ráðuneytið. Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.
Landsvirkjun Orkumál Starfslok Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun Mest lesið Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Sjá meira