Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar 1. október 2026 12:00 Þegar við í Framsókn komum inn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar árið 2018 lögðum við mikla áherslu á að létta undir með barnafjölskyldum. Eitt af því sem við lögðum sérstaklega upp með var að hækka systkinaafslátt. Árið 2019 var systkinaafslátturinn hækkaður verulega. Afsláttur fyrir annað systkini fór úr 50% í 75% og fyrir þriðja systkini úr 75% í 100%. Þetta er einfaldlega hluti af þeirri sýn okkar að Hafnarfjörður á að vera fjölskylduvænt samfélag. Nú ætlar núverandi meirihluti Samfylkingar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks að fara í hina áttina. Frá 1. nóvember verður systkinaafsláttur fyrir annað systkini lækkaður úr 75% í 50% og fyrir þriðja systkini úr 100% í 75%. Mér finnst þetta röng forgangsröðun. Fyrir fjölskyldur sem breytingin nær til þýðir hún einfaldlega aukin útgjöld í hverjum mánuði. Hjá fjölskyldum með tvö eða þrjú börn geta slíkar fjárhæðir skipt miklu máli. Pólitík snýst um forgangsröðun Þegar kemur að fjármálum sveitarfélags snýst þetta alltaf að lokum um hvaða leiðir við veljum. Hvar við viljum sækja tekjur og hvar við viljum verja fólk fyrir auknum útgjöldum. Við í Framsókn hefðum ekki valið þessa leið. Við hefðum ekki valið að draga úr systkinaafslætti og auka þannig útgjöld barnafjölskyldna. Ég sat hjá við afgreiðslu málsins í bæjarráði. Það var meðvituð afstaða enda er þessi breyting alfarið ákvörðun meirihlutans og á hans ábyrgð. Mér finnst líka umhugsunarvert að flokkar sem hafa talað mikið um jafnaðarmennsku og velferð skuli velja einmitt þessa leið til að afla aukinna tekna. Við í Framsókn höfum lagt áherslu á að Hafnarfjörður eigi að vera góður staður fyrir barnafjölskyldur. Hækkun systkinaafsláttarins var eitt af því sem við gerðum til að fylgja þeirri stefnu eftir þegar við fengum tækifæri til þess. Við lofuðum árið 2018 að auka systkinaafslátt. Við efndum það loforð. Nú er verið að vinda ofan af þeirri breytingu. Það er ekki sú leið sem við hefðum valið og við tökum ekki þátt í þeirri vegferð. Höfundur er bæjarfulltrúi Framsóknar í Hafnarfirði og fyrrverandi bæjarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valdimar Víðisson Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Þegar við í Framsókn komum inn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar árið 2018 lögðum við mikla áherslu á að létta undir með barnafjölskyldum. Eitt af því sem við lögðum sérstaklega upp með var að hækka systkinaafslátt. Árið 2019 var systkinaafslátturinn hækkaður verulega. Afsláttur fyrir annað systkini fór úr 50% í 75% og fyrir þriðja systkini úr 75% í 100%. Þetta er einfaldlega hluti af þeirri sýn okkar að Hafnarfjörður á að vera fjölskylduvænt samfélag. Nú ætlar núverandi meirihluti Samfylkingar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks að fara í hina áttina. Frá 1. nóvember verður systkinaafsláttur fyrir annað systkini lækkaður úr 75% í 50% og fyrir þriðja systkini úr 100% í 75%. Mér finnst þetta röng forgangsröðun. Fyrir fjölskyldur sem breytingin nær til þýðir hún einfaldlega aukin útgjöld í hverjum mánuði. Hjá fjölskyldum með tvö eða þrjú börn geta slíkar fjárhæðir skipt miklu máli. Pólitík snýst um forgangsröðun Þegar kemur að fjármálum sveitarfélags snýst þetta alltaf að lokum um hvaða leiðir við veljum. Hvar við viljum sækja tekjur og hvar við viljum verja fólk fyrir auknum útgjöldum. Við í Framsókn hefðum ekki valið þessa leið. Við hefðum ekki valið að draga úr systkinaafslætti og auka þannig útgjöld barnafjölskyldna. Ég sat hjá við afgreiðslu málsins í bæjarráði. Það var meðvituð afstaða enda er þessi breyting alfarið ákvörðun meirihlutans og á hans ábyrgð. Mér finnst líka umhugsunarvert að flokkar sem hafa talað mikið um jafnaðarmennsku og velferð skuli velja einmitt þessa leið til að afla aukinna tekna. Við í Framsókn höfum lagt áherslu á að Hafnarfjörður eigi að vera góður staður fyrir barnafjölskyldur. Hækkun systkinaafsláttarins var eitt af því sem við gerðum til að fylgja þeirri stefnu eftir þegar við fengum tækifæri til þess. Við lofuðum árið 2018 að auka systkinaafslátt. Við efndum það loforð. Nú er verið að vinda ofan af þeirri breytingu. Það er ekki sú leið sem við hefðum valið og við tökum ekki þátt í þeirri vegferð. Höfundur er bæjarfulltrúi Framsóknar í Hafnarfirði og fyrrverandi bæjarstjóri.
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar