Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Birgir Olgeirsson skrifar 30. september 2026 13:02 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ætlar að mæla fyrir frumvarpi um innleiðingu bókunar 35 í næstu viku. Visir/Viktor Freyr Allar líkur eru á að ESA falli frá málsókn gegn Íslandi ef Alþingi samþykkir frumvarp um innleiðingu bókunar 35, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Hún hvetur þingmenn til að klára málið.
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur ákveðið að höfða mál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum. Stofnunin telur að Ísland hafi ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt bókun 35 við EES-samninginn. Þorgerður Katrín segir í viðtali við fréttastofu að samþykkt frumvarpsins gæti orðið til þess að ESA félli frá málinu. „Ég tel líkur á því allar að það verði fallið frá málsókninni en eins og ég segi, það er miklu meiri bragur á því að við, við klárum þetta mál hér í Reykjavík og fylgjum leiðsögn Hæstaréttar.“ Hún segir afstöðu ESA ekki nýja. Hún hafi þegar lagt fram frumvarp til að bæta innleiðingu bókunarinnar og ætli að mæla fyrir því í næstu viku. „Ég tel auðvitað tvímælalaust að við eigum að klára málið á eigin forsendum, fylgja leiðsögn Hæstaréttar og á endanum geta staðið fyrir EFTA-dómstólnum og sagt: „Við erum búin að laga þetta og við stöndum við gerða samninga.“ Mér finnst miklu meiri bragur á því.“ Vísar til máls um fæðingarorlof Þorgerður Katrín segir að fólk hafi misst af réttindum vegna þess að bókunin hafi ekki verið innleidd að fullu. Hún nefnir mál læknis sem flutti heim frá Danmörku og fékk að hennar sögn ekki réttar greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Hún segir konuna hafa unnið málið í Hæstarétti eftir sex ára baráttu og fengið bætur vegna þess að Alþingi hefði ekki innleitt bókunina rétt. „Barnið hennar er komið inn í grunnskóla eftir allt þetta,“ segir hún. Hvetur þingmenn til að klára málið Þorgerður Katrín var einnig spurð hvort Ísland gæti tekið til varna í málinu ef frumvarpið yrði ekki samþykkt. „Ég ætla nú bara að leyfa mér að binda vonir við það að Alþingi Íslendinga klári málið,“ segir hún. Hún segir að í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna hafi að hennar mati verið svo gott sem algjör samstaða um mikilvægi EES-samningsins. „Við skulum nú bara sýna það í verki, allir þingmenn, og vona að það hafi ekki bara verið einhver tækifærismennska í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar.“ Hún hvetur þingmenn til að samþykkja frumvarpið og vísar til þess að Norðmenn hafi þegar innleitt bókunina. „Við berum ábyrgð. Við eigum að klára þetta mál, Norðmenn hafa gert það. Þeirra fullveldi hefur með engu verið ógnað í þessu og við eigum að sýna sama manndóm og klára þetta og tryggja fyrst og síðast ákveðið réttlæti fyrir Íslendinga og þeirra daglega líf.“
Bókun 35 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi EES-samningurinn EFTA Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira