Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar 30. september 2026 10:00 Umræða um framtíð hvalveiða er komin á dagskrá að nýju, enn og aftur má segja. Í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir nýhafið þing er boðuð heildarendurskoðun laga um hvalveiðar og þar kemur sérstaklega fram að litið verði til sjónarmiða um bann við hvalveiðum til frambúðar. Þar er jafnframt tekið fram að huga þurfi að stjórnskipulegum álitaefnum, meðal annars með tilliti til atvinnufrelsis og eignarréttar. Undirritaður vill hér koma því á framfæri, út frá sjónarhóli okkar í Hvalfjarðarsveit, að mikilvægt sé að í þeirri umræðu gleymist ekki einn veigamikill þáttur: fólk, störf og samfélag. Hvalveiðar og sú starfsemi sem þeim tengist hafa um langt skeið verið hluti af atvinnulífi í Hvalfirði. Áhrif starfseminnar ná langt út fyrir hlið hvalstöðvarinnar. Þau birtast í störfum við veiðar og vinnslu en einnig í verkefnum þjónustu- og verktakafyrirtækja og í þeirri verðmætasköpun sem atvinnustarfsemi af þessu tagi hefur í för með sér. Þegar rætt er um vægi starfseminnar er jafnframt rétt að horfa lengra en til starfa og beinnar verðmætasköpunar. Hvalur hf. var stofnaður árið 1947 og hóf starfsemi sína í Hvalfirði árið 1948. Í nær átta áratugi hefur starfsemin því verið samofin atvinnu- og samfélagssögu svæðisins. Fyrirtækið hefur ekki aðeins skapað verðmæt störf heldur jafnframt lagt samfélaginu lið með ýmsum hætti og sýnt samfélagslega ábyrgð með aðkomu að menningu, félagsstarfi og mannlífi. Slík tengsl fyrirtækis við nærsamfélagið verða ekki auðveldlega mæld í krónum og aurum, en þau skipta máli og eru hluti af þeirri heildarmynd sem þarf að hafa í huga þegar framtíð starfseminnar er rædd. Áhrifin stöðvast heldur ekki við sveitarfélagamörk Hvalfjarðarsveitar. Atvinnusókn fólks og viðskipti fyrirtækja fylgja ekki slíkum mörkum. Hagsmunirnir snerta því einnig Akranes, Borgarfjörð og önnur samfélög á Vesturlandi. Ábyrg nýting auðlinda Íslendingar hafa byggt stóran hluta lífskjara sinna á nýtingu lifandi auðlinda hafsins. Sú nýting verður að vera ábyrg og sjálfbær. Hún á að byggjast á bestu fáanlegu vísindalegu upplýsingum og skýrum viðmiðum um vernd og viðgang þeirra stofna sem nýttir eru. Þetta grundvallarsjónarmið þarf að mínu mati einnig að gilda þegar fjallað er um hvalveiðar. Um hvalveiðar eru ólík sjónarmið og umræðan snertir meðal annars dýravelferð, náttúruvernd, efnahagslega hagsmuni og nýtingu náttúruauðlinda. Þau sjónarmið eiga öll rétt á sér í lýðræðislegri umræðu. En þegar teknar eru ákvarðanir um framtíð atvinnugreinar þarf jafnframt að liggja skýrt fyrir á hvaða gögnum þær byggjast og hvaða afleiðingar þær hafa. Atvinnufrelsi skiptir máli Það er stór ákvörðun að banna atvinnustarfsemi sem hefur verið lögleg og stunduð hér á landi um langt skeið. Atvinnufrelsi er mikilvægur þáttur í íslensku samfélagi. Það þýðir vitaskuld ekki að atvinnustarfsemi sé undanþegin reglum eða að stjórnvöld geti ekki sett henni skorður. En þegar stjórnvöld íhuga svo íþyngjandi aðgerð að banna tiltekna atvinnustarfsemi verður að gera ríkar kröfur til málefnalegs rökstuðnings, meðalhófs og vandaðs undirbúnings. Þar þarf einnig að horfa á afleiðingarnar. Hvað verður um störfin ? Hver verða áhrifin á starfsfólkið og fjölskyldur þess ? Hvaða áhrif verða á þjónustu- og verktakafyrirtæki sem hafa tekjur af starfseminni ? Hvaða áhrif verða á sveitarfélagið og nærliggjandi samfélög ? Þetta eru ekki aukaatriði sem hægt er að skoða eftir að ákvörðun hefur verið tekin. Þau eiga að vera hluti af ákvörðuninni sjálfri. Nærsamfélagið þarf að eiga rödd Stjórnvöld taka eðli máls samkvæmt ákvarðanir sem hafa mismikil áhrif eftir landshlutum. Þess vegna skiptir miklu máli að þegar stefnt er að breytingum sem geta haft veruleg áhrif á atvinnu og verðmætasköpun á ákveðnu svæði sé rætt við þau samfélög sem breytingarnar snerta. Það væri að mínu mati óeðlilegt að ákvörðun sem gæti leitt til þess að atvinnustarfsemi í Hvalfirði legðist af eða drægist verulega saman yrði tekin án þess að fyrir lægi vandað og gagnsætt mat á áhrifum hennar á atvinnu, efnahag og byggðaþróun í Hvalfjarðarsveit og á Vesturlandi. Slíkt mat þarf að liggja fyrir áður en ákvörðun er tekin – ekki eftir á. Jafnframt þarf raunverulegt samráð að eiga sér stað við sveitarfélögin, fyrirtækin og fólkið sem ákvörðunin snertir. Það er eðlileg krafa þegar ríkisvaldið íhugar ákvörðun sem getur breytt starfsgrundvelli fyrirtækja og haft bein áhrif á atvinnu fólks í einstökum byggðarlögum. Fyrirsjáanleiki er forsenda uppbyggingar Fyrirtæki þurfa, eins og kostur er, að hafa ákveðinn fyrirsjáanleika í starfsumhverfi sínu. Sama á við um starfsfólk þeirra og sveitarfélögin sem skipuleggja uppbyggingu sína til framtíðar. Fjárfestingar, ráðningar og langtímaáætlanir verða ekki byggðar á síbreytilegum forsendum. Við eigum að geta gert þá kröfu til stjórnvalda að breytingar á starfsumhverfi atvinnulífs séu byggðar á traustum gögnum, faglegu mati og vönduðu samráði. Það á ekki síst við þegar breytingarnar geta orðið svo afgerandi að heil atvinnustarfsemi leggist af. Hagsmunir samfélagsins þurfa að vega þungt Afstaða mín snýst fyrst og fremst um hagsmuni þess samfélags sem ég starfa fyrir. Við í Hvalfjarðarsveit viljum öflugt og fjölbreytt atvinnulíf. Við viljum störf, fjárfestingu og verðmætasköpun. Við viljum jafnframt að nýting náttúruauðlinda sé ábyrg, sjálfbær og byggð á bestu fáanlegu þekkingu. Þessi sjónarmið þurfa ekki að vera andstæður. Þess vegna tel ég að stjórnvöld eigi ekki að fara þá leið að banna hvalveiðar án þess að fyrir liggi skýr fagleg rök fyrir slíkri ákvörðun og heildstætt mat á afleiðingum hennar fyrir atvinnulíf og samfélög. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur mótmælt áformum um bann við hvalveiðum. Sú afstaða byggist meðal annars á mikilvægi starfseminnar fyrir atvinnulíf svæðisins, mikilvægi atvinnufrelsis og þeirri grundvallarkröfu að ákvarðanir stjórnvalda sem hafa veruleg áhrif á störf og byggðaþróun séu byggðar á traustum grunni. Þegar störf fólks og framtíð atvinnustarfsemi eru undir eiga sjónarmið nærsamfélagsins að heyrast skýrt. Höfundur er sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Bjarki Þorsteinsson Mest lesið Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun