Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar 30. september 2026 08:00 18 mánuðir – 72 vikur – 504 dagar – 12.096 klst. – 725.760 mín. og telur... Ég er ekki vön að bera mín vandamál á torg. Ég er orðin 72 ára og þetta er minn annar pistill. Sá fyrri birtist hér þann 1. júlí síðastliðinn til að vekja athygli á biðlistum sem bíða okkar sem þurfum á hryggaðgerð að halda. Síðan þá hefur ekkert gerst. Engin svör, engin viðleitni. Og á meðan fjölgar okkur sem erum á biðlistum eftir bak/hryggjaraðgerðum. Ég hlusta á viðtöl við ráðherra í fjölmiðlum og les greinar á samfélagsmiðlum og hvergi er minnst á hópinn sem ég tilheyri. Fjölmiðlar spyrja heilbrigðisráðherra um margt en ekki um þennan hóp, þrátt fyrir að við höfum margoft vakið athygli fjölmiðla á stöðu okkar. Við erum sjúklingar sem þurfum að þola óbærilegar kvalir, bryðja verkjalyf vegna bakverkja og biðla til ráðherra að svara ákalli okkar um lausn. Stundum spyr ég mig hvort ráðherrar fái sjálfir að ráða hvaða spurninga þeir verða spurðir að í útvarpsviðtölum? Ég heiti Rannveig Haraldsdóttir og mér líður eins og ég sé komin í huldufólkshópinn. Ég er orðin eitt af skítugu börnunum hennar Evu. Ég ætla ekki að þegja og sitja hjá. Ég sætti mig ekki við það óréttlæti sem ég og hundruð annarra í sömu stöðu þurfum að þola. Ég spyr mig hvaða aðferðafræði býr að baki því hvaða hópar fá þá meðferð sem þeir þurfa og hverjir ekki. Hvers vegna þykir það ekki tiltökumál að sjúklingar bíði í nokkur ár eftir hryggaðgerð eða augasteinsaðgerð? Við höfum allt sem þarf til að framkvæma þessar aðgerðir, framúrskarandi sérfræðinga, aðstöðu og vilja, en hljótum ekki náð fyrir augum heilbrigðisráðherra. Biðlistar lengjast ár hvert og ekkert er gert. Í 55 ár hef ég greitt í okkar sameiginlegu sjóði. Þegar ég þarf að reiða mig á heilbrigðisþjónustu landsins hef ég þurft að bíða í 18 mánuði og bíð enn. 18 mánuðir. 72 vikur. 504 dagar Ég vil hvetja alla sem eru í sömu stöðu og ég að láta í sér heyra og krefjast svara og viðbragða af hendi heilbrigðisráðherra. Höfundur er grunnskólakennari til 35 ára á eftirlaunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Sjá meira
18 mánuðir – 72 vikur – 504 dagar – 12.096 klst. – 725.760 mín. og telur... Ég er ekki vön að bera mín vandamál á torg. Ég er orðin 72 ára og þetta er minn annar pistill. Sá fyrri birtist hér þann 1. júlí síðastliðinn til að vekja athygli á biðlistum sem bíða okkar sem þurfum á hryggaðgerð að halda. Síðan þá hefur ekkert gerst. Engin svör, engin viðleitni. Og á meðan fjölgar okkur sem erum á biðlistum eftir bak/hryggjaraðgerðum. Ég hlusta á viðtöl við ráðherra í fjölmiðlum og les greinar á samfélagsmiðlum og hvergi er minnst á hópinn sem ég tilheyri. Fjölmiðlar spyrja heilbrigðisráðherra um margt en ekki um þennan hóp, þrátt fyrir að við höfum margoft vakið athygli fjölmiðla á stöðu okkar. Við erum sjúklingar sem þurfum að þola óbærilegar kvalir, bryðja verkjalyf vegna bakverkja og biðla til ráðherra að svara ákalli okkar um lausn. Stundum spyr ég mig hvort ráðherrar fái sjálfir að ráða hvaða spurninga þeir verða spurðir að í útvarpsviðtölum? Ég heiti Rannveig Haraldsdóttir og mér líður eins og ég sé komin í huldufólkshópinn. Ég er orðin eitt af skítugu börnunum hennar Evu. Ég ætla ekki að þegja og sitja hjá. Ég sætti mig ekki við það óréttlæti sem ég og hundruð annarra í sömu stöðu þurfum að þola. Ég spyr mig hvaða aðferðafræði býr að baki því hvaða hópar fá þá meðferð sem þeir þurfa og hverjir ekki. Hvers vegna þykir það ekki tiltökumál að sjúklingar bíði í nokkur ár eftir hryggaðgerð eða augasteinsaðgerð? Við höfum allt sem þarf til að framkvæma þessar aðgerðir, framúrskarandi sérfræðinga, aðstöðu og vilja, en hljótum ekki náð fyrir augum heilbrigðisráðherra. Biðlistar lengjast ár hvert og ekkert er gert. Í 55 ár hef ég greitt í okkar sameiginlegu sjóði. Þegar ég þarf að reiða mig á heilbrigðisþjónustu landsins hef ég þurft að bíða í 18 mánuði og bíð enn. 18 mánuðir. 72 vikur. 504 dagar Ég vil hvetja alla sem eru í sömu stöðu og ég að láta í sér heyra og krefjast svara og viðbragða af hendi heilbrigðisráðherra. Höfundur er grunnskólakennari til 35 ára á eftirlaunum.
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun