Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. september 2026 07:14 Svona verður stemningin eflaust víða í miðbæ Reykjavíkur í vikunni. Vísir/Anton Brink Lægð kemur upp að landinu í morgun og henni fylgir vaxandi austanvindur og skýjaþykkni. Síðan gengur í allhvassa eða hvassa austan- og norðaustanátt með rigningu, talsverðri úrkomu á sunnan og suðvestanverðu landinu um tíma í dag en síðan styttir upp á Norðausturlandi. Hægari suðaustlæg átt og rofar til með kvöldinu.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Á morgun miðvikudag er önnur lægð í farvatninu, heldur krappari og dýpri en lægð dagsins en sú kemur einkum við sögu á fimmtudag. Þegar lægðin nálgast nálgast gerir allhvassa eða hvassa austanátt með rigningu, einkum sunnan- og vestantil og má reikna með úrhelli suðaustan til. Vindur nær stormstyrk um tíma í fyrramálið, einkum undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum, sem getur skapað varasamar aðstæður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Dregur síðan úr vindi og styttir upp, en hvessir aftur og rignir annað kvöld. Fremur hlýtt í veðri næstu daga, yfirleitt á bilinu 10 til 15 stig. Á fimmtudag nær seinni lægðin landi og gengur þá í sunnanhvassviðri, jafnvel storm, með talsverðri rigningu á sunnanverðu landinu. Bjart með köflum fyrir norðan og þurrt að mestu og áframhaldandi hlýindi um land allt. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á miðvikudag:Austan og suðaustan 10-15 m/s, en 15-20 syðst á landinu framan af degi. Hvessir aftur sunnanlands um kvöldið. Víða rigning, en talsverð úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 8 til 15 stig.Á fimmtudag:Suðaustlæg átt, 15-23 m/s, en suðlægari átt, 10-18 uppúr hádegi. Rigning með köflum, talsverð eða mikil úrkoma sunnan- og austantil, en lengst af þurrt á Norðausturlandi. Hiti víða 9 til 14 stig.Á föstudag:Suðlæg átt, 8-15 m/s, en hægari seinnipartinn. Víða skúrir, einkum sunnan- og vestantil og hiti 5 til 10 stig.Á laugardag:Sunnanátt með rigningu, en suðvestlægari með skúrum seinnipartinn og styttir upp austanlands. Áfram milt veður.Á sunnudag:Suðvestanátt og skúrir eða dálítil rigning, en þurrt að mestu norðaustanlands. Heldur kólnandi veður.Á mánudag:Útlit fyrir norðanátt með rigningu, jafnvel slyddu á norðanverðu landinu, en suðvestlægari og rigning með köflum syðra og fremur svalt í veðri.
Veður Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira