Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Stefán Árni Pálsson skrifar 25. september 2026 19:47 Manchester City mun áfrýja öllum refsingum. Vísir/Alex Livesey - Danehouse/Getty Images Fjöldi félaga í ensku úrvalsdeildinni undirbýr nú mögulegar málsóknir gegn Manchester City eftir að félagið var fundið sekt um 114 af 115 brotum á fjárhagsreglum deildarinnar.
The Athletic greinir frá því að nokkur félög hafi um nokkurt skeið leitað til þekktra lögfræðinga til að kanna hvort þau geti krafið City um skaðabætur vegna meintra brota félagsins. Viðræður milli félaga hafa nú færst í aukana og sérstaklega eftir tíðindi dagsins. Lögfræðistofur hafa jafnframt haft samband við félög og upplýst þau um að þau kunni að eiga rétt á að sækja bætur ef í ljós kæmi að City hefði brotið reglur úrvalsdeildarinnar. Dæmi er um að félag hafi þurft að greiða öðru félagi háar bætur vegna brota á fjárhagsreglum. Í júní var Everton gert að greiða Burnley 35,1 milljón punda eftir að óháð nefnd komst að þeirri niðurstöðu að brot Everton á reglum um hagnað og sjálfbærni tímabilið 2021-22 hefðu veitt félaginu mikilvægt forskot. Fordæmisgefandi Þá var talið að niðurstaðan gæti skapað fordæmi fyrir sambærileg mál og það fordæmi gæti nú skipt máli fyrir félög sem vilja sækja City til saka. Mögulegar kröfur gætu meðal annars snúist um það að félög hafi misst af þátttöku í Meistaradeild Evrópu vegna meintra brota City. Þá gætu félög einnig haldið því fram að þau hafi misst af tekjum vegna styrktarsamninga og árangurstengdra bónusa. Hafna öllu Samkvæmt The Athletic er jafnvel rætt um að málið gæti orðið að sameiginlegri skaðabótakröfu, þar sem fleiri úrvalsdeildarfélög tækju höndum saman gegn Manchester City. City hefur hafnað ásökunum í málinu og er búist við að félagið muni áfrýja niðurstöðunni.
Enski boltinn Fjármál Manchester City til rannsóknar Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki PSG - Barcelona | Tvö af bestu liðum Evrópu mætast Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Valur - Haukar | Hörkuslagur á Hlíðarenda „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Sjá meira