Enski boltinn

Manchester City dæmt í 114 af 115 á­kæru­liðum

Sindri Sverrisson skrifar
Manchester City er í vanda
Manchester City er í vanda Vísir/Getty

Manchester City verður dæmt sekt í öllum nema einum af 115 ákæruliðum, fyrir brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvernig félaginu verður refsað en til greina koma sektir, stigafrádráttur eða jafnvel brottrekstur úr deildinni.

City hlaut ákærurnar fyrir brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar í febrúar árið 2023, eða fyrir þremur og hálfu ári. 

Óháð nefnd hefur nú komist að niðurstöðu, samkvæmt The Athletic, um að City-menn hafi gerst brotlegir í 114 tilvikum.

Tilvikunum má í raun skipta í þrennt. Í fyrsta lagi skortur á samstarfsvilja við rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar frá desember 2018 til febrúar 2023. Í öðru lagi með því að dulbúa tekjur sem í raun voru gjafir frá eigendum félagsins sem auglýsingatekjur. Í þriðja lagi með því að greiða starfsfólki, til dæmis leikmönnum eða þjálfurum, laun í gegnum þriðja aðila. Þannig gat félagið virst standast reglur um fjárhagslegt aðhald sem öll félög deildarinnar verða að lúta.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×