Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar 25. september 2026 14:01 Tækni gegnir sífellt stærra hlutverki á vinnustöðum. Hún er m.a. nýtt til að halda utan um laun, vinnutíma, vaktir og verkefni og hefur þannig bein áhrif á daglegt starf og kjör fólks. Með aukinni sjálfvirkni og gervigreind hefur hlutverk tækninnar enn meiri áhrif á stjórnun fyrirtækja. Tæknin er mikilvægt verkfæri en hún er eftir sem áður bara það: verkfæri. Þetta vill þó stundum gleymast þegar eitthvað gerist sem hefur áhrif á starfsfólk. Tækninni er einfaldlega kennt um. Nokkur dæmi sem við í verkalýðshreyfingunni höfum heyrt þegar gerðar eru kröfur eða athugasemdir um laun og kjör okkar félagsfólks, eða birst hafa okkur í fjölmiðlum nýverið: „Kerfið tók þessa ákvörðun, mistök urðu við útreikning launa, kerfisuppfærsla leiddi til lakari launa“ o.fl. En þetta er ekki svo einfalt að hægt sé að kenna tækninni um mistök, yfirsýn eða vondar ákvarðanir í rekstri. Launafólk getur ekki greitt leiguna sína eða aðrar skuldir með slíkum eftiráskýringum. Tækni er alltaf mannanna verk. Kerfi eru hönnuð, keypt, innleidd og stillt af fólki og fyrirtæki ákveða hvernig þau eru notuð. Atvinnurekandi losnar ekki undan ábyrgð gagnvart starfsfólki vegna þess að tölvukerfi kom við sögu. Atvinnurekandinn er ávallt í sterkari stöðu gagnvart launafólki. Hann ber fjárhagslega og stjórnunarlega ábyrgð á rekstri sínum og í því felst m.a. að tryggja að starfsfólk fái notið allra þeirra réttinda og launa sem því ber. Gagnsæi tækninnar Þetta skiptir enn meira máli eftir því sem tæknikerfi verða færari um að vinna úr upplýsingum, greina gögn og koma að ákvörðunum. Með aukinni sjálfvirkni og notkun gervigreindar geta kerfi metið frammistöðu, greint hegðun og vinnumynstur, forgangsraðað verkefnum og haft áhrif á vinnutíma, vinnuálag og önnur grundvallarstarfskjör. Eftir því sem geta kerfanna eykst verður mikilvægara að launafólk viti hvernig þau eru notuð, hvaða upplýsingar liggja til grundvallar og geti fengið skýringar á niðurstöðum sem hafa áhrif á störf þess. Tryggja þarf aðkomu launafólks að innleiðingu tækni sem hefur bein áhrif á það, kjör þess og vinnuvernd á vinnustöðum. Framtíð vinnunnar ræðst ekki af tækninni, heldur hvernig við innleiðum hana Umræðan um gervigreind á vinnumarkaði hefur helst snúist um hvaða störf tæknin muni breyta eða jafnvel leysa af hólmi. Minna hefur farið fyrir spurningum um hvað gerist þegar ákvarðanir eða breytingar sem byggja á tækninni hafa bein áhrif á kjör og réttindi starfsfólks. Eftir því sem tæknin fær stærra hlutverk á vinnustöðum verður mikilvægara að ábyrgð á notkun hennar sé skýr. Tæknin getur breytt því hvernig ákvarðanir eru teknar og hvernig samskiptum við starfsfólk er háttað, en hún breytir ekki þeirri ábyrgð sem fylgir því að hafa fólk í vinnu. Höfundur er lögfræðingur hjá Alþýðusambandi íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar