Körfubolti

Stólarnir unnu fyrsta leik sann­færandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Badmus spilaði vel í leiknum og gerði 15 stig. 
Badmus spilaði vel í leiknum og gerði 15 stig.  Vísir / Guðmundur

Tindastóll valtaði í dag yfir Liepaja frá Lettlandi í ENBL-Evrópukeppninni en um var að ræða fyrsta leik liðsins í riðlakeppninni.

Lokatölur 92-69 og var sigur Stólanna sjaldan í hættu. Nýi Bandaríkjamaður Tindastóls Ade Murkey var þeirra stigahæsti leikmaður með 25 stig en Murkey þekkja körfuboltaáhugamenn hér á landi en hann lék með Álftnesingum á síðasta tímabili. 

Annar nýr leikmaður, Dee Bost, var einnig stórkostlegur en hann skoraði 9 stig og gaf 9 stoðsendingar.

Tindastóll varð á síðasta tímabili fyrsta íslenska félagið til að taka þátt í Norður-Evrópudeildinni. Liðinu gekk vel og Tindastóll komst í sextán liða úrslit keppninnar.

Norður-Evrópudeildin er að hefja sitt sjötta tímabil en keppnin er, þrátt fyrir nafn sitt, ekki bundin við Norðurlönd Evrópu. Lið frá Eystrasaltsríkjunum, Bretlandi, Búlgaríu, Rúmeníu og Kýpur eru meðal annars einnig skráð til leiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×