Sjöfalt fleiri útköll en sami fjöldi sérsveitarmanna Samúel Karl Ólason skrifar 24. september 2026 08:00 Útköllum sérsveitarmanna og hefur fjölgað umtalsvert á undanförnum árum og álag á þá aukist. Sérsveitarmönnum hefur þó fjölgað lítið sem ekkert. Vísir/Vilhelm Vopnaútköllum sérsveitar ríkislögreglustjóra hefur fjölgað mikið og álag aukist á undanförnum árum en mönnun sveitarinnar hefur lítið sem ekkert breyst. Auka þarf fjárveitingar til sérsveitarinnar en í fyrra voru einungis 46 sérsveitarmenn starfandi, þótt heimild væri fyrir tíu fleiri. Fjárveitingar skorti til að fylla stöðugildin.
Áætlaður kostnaður við að fylla upp í þessi tíu stöðugildi yrði þrjú til fjögur hundruð milljónir króna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri greiningu Vörðu, íslenskrar hugveitu um þjóðaröryggi og viðnámsþrótt. Finna má skýrsluna hér á vef hugveitunnar. Í skýrslunni er bent á að í fyrra sinnti sérsveitin 424 vopnaútköllum, sem samsvarar fleiri en einu slíku útkalli á dag. Frá árinu 2014 hafa þessi útköll rúmlega sjöfaldast í tíðni en það ár voru þau 56. Varða Flest þessara útkalla eru vegna hnífa- og eggvopna. Tíðni þeirra hefur áttfaldast á tímabilinu en einnig hefur orðið fjölgun í útköllum vegna skotvopna. Þau voru nærri því þrefalt fleiri árið 2025, borið saman við 2014. Mönnun hefur ekki fylgt þessari þróun eftir og hefur fjöldi starfandi sérsveitarmanna lítið breyst frá árinu 2008. Árið 2008 var 41 sérsveitarmaður starfandi hjá ríkislögreglustjóra. Árið 2018 voru þeir 46 og voru þeir enn 46 talsins í fyrra, þó fjöldinn hafi breyst milli ára á tímabilinu. „Þótt opinberar heimildir noti ekki með öllu sama orðalag, benda birtar tölur til þess að heildarmönnun hafi lítið breyst í sautján ár.“ Vorið 2025 stóð til að halda nýliðanámskeið fyrir sérsveitina en því var aflýst vegna fjárskorts. Þá höfðu um fimmtíu lögregluþjónar tekið þátt í undirbúningsferli sem stóð yfir í tæpt ár og var helmingur þeirra metinn hæfur til að taka þátt í námskeiðinu. Varða Dómsmálaráðherra boðaði viðbrögð og samþykkti Alþingi í júlí áttatíu milljóna króna fjárveitingu til nýliðamenntunarinnar. Námskeiðið var haldið og voru tveir ráðnir í sérsveitina, samkvæmt skýrslu Vörðu. Þar segir einnig að við það hafi heildarfjöldi sérsveitarmanna þó ekki aukist. Breytt öryggisumhverfi eykur álag Sérsveitarmenn sinna ekki eingöngu vopnaútköllum heldur taka þeir einnig þátt í handtökum sem eru metnar hættulegar og er þeim einnig ætlað að bregðast við gíslatökum, sprengjuárásum og öðrum slíkum bráðaatvikum. Ekki er hægt að meta álag á sérsveitina eingöngu út frá fjölda vopnaútkalla. Breytt öryggisumhverfi Íslands og heimsins alls eykur álagið á sveitina. „Á meginlandi Evrópu hafa skemmdarverk á landi og hafi, tilraunir til manndráps, netárásir og önnur refsiverð háttsemi verið tengd við erlend ríki og leyniþjónustur þeirra og margfaldast á milli ára. Samhliða hefur skipulögð brotastarfsemi orðið umfangsmeiri og ofbeldisfyllri. Viðbragð við báðum þessum nýju hættum mun vera að miklu leyti á herðum sérþjálfaðra sveita eins og sérsveitar ríkislögreglustjóra.“ Vísir/Vilhelm Þá eru nefnd tvö dæmi í skýrslunni sem sýna hvernig landfræðileg stærð starfssvæðis sérsveitarinnar eykur áhrif einstakra verkefna á mannafla sveitarinnar. Annað dæmið er frá 2017 þegar sérsveitarmenn voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar um borð í togarann Polar Nanoq, sem var þá um 170 kílómetra frá landi, þar sem þeir handtóku tvo skipsverja. Hitt dæmið er nýlegra og er þegar sérsveitarmenn voru í sumar fluttir um borð í Bandero, þar sem þeir handtóku skipstjórann og tóku yfir stjórn skipsins. Sjá einnig: Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar „Breytt öryggisumhverfi krefst þess að sveitin ráði við langvinnar og fjarlægar aðgerðir án þess að viðbúnaður annars staðar gefi eftir. Mönnun, vaktaskipulag og flutningsgeta þurfa að taka mið af því.“ Þörf á nýju heildarmati Fyrsta skrefið sem taka þarf til að bæta stöðuna, samkvæmt skýrslu Vörðu, er að manna áðurnefnd tíu stöðugildi sem eru heimiluð. Við það myndi starfandi sérsveitarmönnum fjölga um tæp 22 prósent og er hægt að grípa til þessa mjög fljótt. Samhliða því þarf að vinna nýtt heildarmat á hlutverki, verkefnum, viðbúnaði, mannafla og fjárfestingarþörf sérsveitarinnar. Slíkar greiningar eru gerðar og birtar reglulega og jafnvel árlega í nágrannalöndum Íslands. Ekkert mat hefur verið birt hér á Íslandi. Þetta mat þarf að sýna hversu marga sérsveitarmenn þarf til að halda uppi sólarhringsviðbúnaði, sinna þjálfun og ráða við dagleg útköll, svo eitthvað sé nefnt. Í kjölfarið þarf að vinna og birta áætlun um mönnun og uppbyggingu sérsveitarinnar og annars vopnaðs viðbragðs lögreglunnar. „Uppbyggingin sem bíður krefst fyrirsjáanlegrar fjármögnunar til framtíðar. Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins hafa skuldbundið sig til að verja allt að 1,5 prósentum af vergri landsframleiðslu árlega til öryggistengdra útgjalda fram til 2035, meðal annars til verndar mikilvægum innviðum, borgaralegs viðbúnaðar og viðnámsþróttar,“ segir í skýrslunni. Þá segir þar að stjórnvöld þurfi að meta hvaða hlutar þessarar uppbyggingar falli undir þær skuldbindingar sem Ísland hafi þegar undirgengist. „Engin teikn eru á lofti um að álagið á sérsveitina minnki, þvert á móti. Þeim mun brýnna er að nægur sérhæfður mannafli sé tiltækur þegar dagleg útköll, viðbúnaður og umfangsmikil verkefni skarast. Til þess þarf að manna sveitina og efla búnað og þjálfun.“
Lögreglan Öryggis- og varnarmál Mest lesið Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Fleiri fréttir Sjöfalt fleiri útköll en sami fjöldi sérsveitarmanna Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Segja upp tveimur sérfræðingum Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Sjá meira