Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar 23. september 2026 08:03 Það skýtur skökku við að lesa umfjöllun Morgunblaðsins og Viðskiptablaðsins að undanförnu um meintan niðurskurð í samgöngumálum. Stökum staðreyndum er slitið úr samhengi með tilheyrandi fyrirsögnum en lítið hefur verið minnst á heildarmyndina. Hið rétta er að stjórnvöld eru að stórauka framlög til málaflokksins, ekki draga úr þeim. Þegar við tókum við keflinu af fyrri ríkisstjórn voru undir 40% vegakerfisins metin í góðu ástandi af Vegagerðinni. Uppsafnaður vandi eftir áralanga undirfjármögnun var gríðarlegur enda hefur fjárfesting í samgönguinnviðum hér á landi undanfarin ár verið einna minnst meðal OECD-ríkja. Við þessu var brugðist með því að stórauka framlög til samgöngumála í fyrra – bæði á fjárlögum fyrir yfirstandandi ár og í fjármálaáætlun til næstu ára. Framlög til viðhalds vega og vetrarþjónustu hafa í kjölfarið hækkað verulega. Tölurnar tala sínu máli Til að átta sig á raunverulegu umfangi er best að skoða tölurnar. Fyrri ríkisstjórn áætlaði 261 milljarð króna í framkvæmdir á fyrstu fimm árum samgönguáætlunar árið 2023, áætlun sem að lokum dagaði uppi. Núverandi ríkisstjórn áætlar hins vegar 361 milljarð í framkvæmdir á fyrstu fimm árum nýsamþykktrar samgönguáætlunar. Sama á við um almennt viðhald vega, sem fór úr 12-13 milljörðum króna á ári upp í 16 milljarða í fyrra og í 17,5 milljarða í ár. Til viðbótar við þessa sögulegu fjármagnsaukningu höfum við: Fullfjármagnað vetrarþjónustu um allt land og þar með eytt krónískum halla fyrri ára. Rofið fimm ára kyrrstöðu í jarðgangagerð. Fljótagöng fara í framkvæmd á næsta ári og fleiri göng eru í fullum undirbúningi. Stofnað innviðafélagið Göng og brú ohf. Í stað þess að stilla upp ófjármögnuðum óskalistum erum við að tryggja raunverulega framtíðarfjármögnun stórframkvæmda. Félagið hlaut frábærar undirtektir yfir 200 innlendra og erlendra fjárfesta á nýlegum markaðsdegi, sem mun hraða stórframkvæmdum verulega og losa um leið gríðarlegt fjármagn til annarra framkvæmda. Staðreyndirnar tala sínu máli. Þrátt fyrir aukið aðhald í ríkisfjármálum höldum við áfram að stórauka framlög til samgöngumála frá því sem var í tíð síðustu ríkisstjórna. Höfundur er innviðaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyjólfur Ármannsson Samgöngumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Það skýtur skökku við að lesa umfjöllun Morgunblaðsins og Viðskiptablaðsins að undanförnu um meintan niðurskurð í samgöngumálum. Stökum staðreyndum er slitið úr samhengi með tilheyrandi fyrirsögnum en lítið hefur verið minnst á heildarmyndina. Hið rétta er að stjórnvöld eru að stórauka framlög til málaflokksins, ekki draga úr þeim. Þegar við tókum við keflinu af fyrri ríkisstjórn voru undir 40% vegakerfisins metin í góðu ástandi af Vegagerðinni. Uppsafnaður vandi eftir áralanga undirfjármögnun var gríðarlegur enda hefur fjárfesting í samgönguinnviðum hér á landi undanfarin ár verið einna minnst meðal OECD-ríkja. Við þessu var brugðist með því að stórauka framlög til samgöngumála í fyrra – bæði á fjárlögum fyrir yfirstandandi ár og í fjármálaáætlun til næstu ára. Framlög til viðhalds vega og vetrarþjónustu hafa í kjölfarið hækkað verulega. Tölurnar tala sínu máli Til að átta sig á raunverulegu umfangi er best að skoða tölurnar. Fyrri ríkisstjórn áætlaði 261 milljarð króna í framkvæmdir á fyrstu fimm árum samgönguáætlunar árið 2023, áætlun sem að lokum dagaði uppi. Núverandi ríkisstjórn áætlar hins vegar 361 milljarð í framkvæmdir á fyrstu fimm árum nýsamþykktrar samgönguáætlunar. Sama á við um almennt viðhald vega, sem fór úr 12-13 milljörðum króna á ári upp í 16 milljarða í fyrra og í 17,5 milljarða í ár. Til viðbótar við þessa sögulegu fjármagnsaukningu höfum við: Fullfjármagnað vetrarþjónustu um allt land og þar með eytt krónískum halla fyrri ára. Rofið fimm ára kyrrstöðu í jarðgangagerð. Fljótagöng fara í framkvæmd á næsta ári og fleiri göng eru í fullum undirbúningi. Stofnað innviðafélagið Göng og brú ohf. Í stað þess að stilla upp ófjármögnuðum óskalistum erum við að tryggja raunverulega framtíðarfjármögnun stórframkvæmda. Félagið hlaut frábærar undirtektir yfir 200 innlendra og erlendra fjárfesta á nýlegum markaðsdegi, sem mun hraða stórframkvæmdum verulega og losa um leið gríðarlegt fjármagn til annarra framkvæmda. Staðreyndirnar tala sínu máli. Þrátt fyrir aukið aðhald í ríkisfjármálum höldum við áfram að stórauka framlög til samgöngumála frá því sem var í tíð síðustu ríkisstjórna. Höfundur er innviðaráðherra.
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar