Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar 22. september 2026 07:32 Í þrettán ár hefur Kristín Pálsdóttir talskona Rótarinnar nýtt hvert tækifæri sem gefst til að hnýta í SÁÁ. Engan skyldi undra að hún hafi stokkið á vandlætingarvagninn í tilefni af nýjustu sviptivindunum hjá SÁÁ. Til að varpa ljósi á nýjustu gagnrýni Kristínar á SÁÁ er nauðsynlegt að rifja upp sambandssögu hennar og samtakanna. Rótin varð til eftir átök Kristínar og sjö annarra kvenna við stjórn SÁÁ árið 2013. Þær áttu aðild að Kvenfélagi SÁÁ, sem var stofnað 2012 til að rétta hlut kvenna í áfengis- og vímuefnameðferð hjá SÁÁ. Full þörf var á margvíslegum aðgerðum til að mæta konum á þeirra forsendum. En ekki leið á löngu þarf til forystukonur kvenfélagsins voru komnar upp á kant við stjórn og formann SÁÁ. Kvartað var undan samstarfsörðugleikum, hroka, karllægum áherslum og forræðishyggju. Hlaupið frá úrlausnaefnunum Frekar en vinna áfram að úrbótum innan SÁÁ stofnuðu konurnar Rótina, félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda. Þær höfðu því enga aðkomu að þeim úrbótum í fíknimeðferð kvenna sem áfram hélt á starfsstöðvum SÁÁ. En þrátt fyrir að hafa sagt sig frá SÁÁ gekk Rótarkonum erfiðlega að slíta naflastrenginn. Árið 2016 birtu Kristín og fjórar aðrar konur úr Rótinni grein undir fyrirsögninni „Hvað er að hjá SÁÁ?“ Þáverandi formaður SÁÁ var gagnrýndur harðlega og í lok greinarinnar spurðu höfundarnir hvernig stór almannaheillasamtök gætu sætt sig við það sem þær kölluðu „ómálefnalega og ófaglega forystu“. Hljómar kunnuglega, ekki satt? Árið 2020 sendi Rótin formlegt erindi til Ríkisendurskoðunar vegna starfsemi SÁÁ. Kristín undirritaði það fyrir hönd ráðs Rótarinnar. Erindið snerist að þessu sinni ekki um mismunandi hugmyndir um meðferðarfræði. Starfsemi SÁÁ, stjórnun, eftirlit og ábyrgð voru komin undir smásjána. Á þessu ári hefur Rótin undir forystu Kristínar sótt hart að fá afhentan þjónustusamning Sjúkratrygginga Íslands við SÁÁ. Til að fá sitt fram hefur Rótin meðal annars kært Sjúkratryggingar til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Undarleg langrækni Í því fári sem nú gengur yfir SÁÁ notar Kristín tækifærið til þess enn einu sinni að gera stjórn SÁÁ tortryggilega. Í þessum mánuði hefur hún fyrir hönd Rótarinnar sent landlækni ábendingu, birt ályktun, birt áréttingu til landlæknis og birt rætna grein á Vísi. Þessi langrækni Kristínar gagnvart SÁÁ er með nokkrum ólíkindum. Vandséð er hvers vegna aðili sem klauf sig frá samtökunum fyrir 13 árum vill enn þann dag í dag hafa vit fyrir stjórn og faglegum stjórnendum SÁÁ og gerir það einatt með ólund og sjálfsupphafningu. Rótin er nefnilega frábær að öðru leyti Rótin stendur nefnilega fyrir hreint frábærri þjónustu við konur sem glíma við áfengis- og fíkniefnavanda. Mætti ætla að kröftunum væri betur varið í því starfi en að nöldra út í SÁÁ. Meginverkefni Rótarinnar er rekstur Konukots og fær Rótin 137 mkr. styrk frá Reykjavíkurborg til þess, auk margvíslegra annarra styrkja, þar á meðal í evrópusamvinnu. Ennfremur sinnir Rótin umfangsmikilli þekkingarmiðlun á sínu sérsviði og alþjóðlegu samstarfi. Rótin varð til eftir átök innan SÁÁ árið 2013. Síðan hefur SÁÁ, forysta þess, fagleg nálgun, starfsemi, stjórnarhættir og eftirlit með samtökunum ítrekað orðið viðfangsefni Rótarinnar. Skoða ber útspil talskonu þess í því ljósi. Umhyggja er ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann við þann lestur. Því eftir þrettán ár stendur ein staðreynd eftir, alveg óháð því hver hefur rétt fyrir sér í hverju einstöku deilumáli: Tilefnin hafa breyst.Fólkið hjá SÁÁ hefur breyst.Forystan hefur breyst.Árin hafa liðið. En skotmarkið virðist alltaf rata aftur á sama stað. SÁÁ. Það er eiginlega orðið rótgróið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein SÁÁ Mest lesið Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson Skoðun Skoðun Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Skoppandi skrítlandi gervigreindartraust Kristján Logason skrifar Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson skrifar Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Álagsstýring: Burðarþol er meira en tala Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Heita stríðið Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Réttið upp hönd sem eruð á móti Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar
Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar