Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar 22. september 2026 06:00 Ég hef fylgst með íslenskum vinnumarkaði frá ýmsum hliðum í áratugi, m.a. setið í samninganefndum fyrir Vinnuveitendasamband Íslands og síðar Samtök atvinnulífsins, auk þess að hafa tekið þátt í rekstri fyrirtækja og setið í stjórnum félaga og samtaka. Sú reynsla hefur sannfært mig um að eitt stærsta vandamál íslenska vinnumarkaðarins sé ekki vilji launafólks til að bæta kjör sín. Það er bæði eðlilegt og sjálfsagt. Vandamálið er hvernig kerfið sjálft er uppbyggt. Höfrungahlaupið Á Íslandi eru gerðir fjölmargir kjarasamningar og hver hópur hefur eðlilega hvata til að ná að minnsta kosti jafn góðum, og helst betri, samningi en sá sem samdi á undan. Einn hópur fær 5%, sá næsti telur sig eiga rétt á 6% vegna menntunar eða ábyrgðar og sá þriðji gerir þá niðurstöðu að sínu viðmiði. Þegar hringurinn hefur farið nógu langt telja þeir sem sömdu fyrst að þeir hafi setið eftir. Þetta er hið svokallaða höfrungahlaup. OECD hefur bent á þessa sérstöðu Íslands og varað við að slíkt kapphlaup geti veikt tengsl launaþróunar og framleiðni og grafið undan samkeppnishæfni. Vandamálið er ekki kjarasamningar heldur skortur á nægilegri samhæfingu þeirra. Þegar launahækkunin étur sjálfa sig upp Ef laun hækka ítrekað meira en framleiðni eykst hækkar kostnaður fyrirtækja. Hluti þess fer út í verðlag, verðbólga eykst og vextir haldast hærri. Í litlu opnu hagkerfi getur jafnframt skapast þrýstingur á krónuna, sem hækkar verð innfluttrar vöru og eykur verðbólgu enn frekar. Þannig getur myndast vítahringur: Launahækkanir umfram framleiðni → aukinn kostnaður → verðbólga → hærri vextir → þrýstingur á krónuna → meiri verðbólga → nýjar launakröfur. Auðvitað skýra kjarasamningar ekki einir verðbólgu. Ríkisfjármál, húsnæðismarkaður, innflutningsverð og ytri áföll skipta einnig miklu. En við eigum ekki að horfa fram hjá því sem við getum sjálf haft áhrif á. Raunveruleg kjarabót er nefnilega ekki prósentan á launaseðlinum heldur það sem launin standa undir að greiða. Sá sem fær 7% launahækkun við 6% verðbólgu fær aðeins um 0,9% raunlaunahækkun. Sá sem fær 4% hækkun við 2% verðbólgu fær hins vegar um 2% raunlaunahækkun. Minni launahækkun getur því skilað meiri kjarabót og þá eru áhrif hárra vaxta á skuldsett heimili ekki einu sinni komin inn í dæmið. SALEK reyndi að breyta þessu SALEK (Samstarf um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga) var tilraun til að færa íslenska vinnumarkaðinn nær því sem þekkist annars staðar á Norðurlöndum. Grunnhugsunin var einföld: Launahækkanir þurfa að taka mið af því svigrúmi sem hagkerfið og framleiðnin skapa. Leiðandi samningsaðilar setja rammann og aðrir hópar semja innan sama heildarsvigrúms. Þannig átti að draga úr höfrungahlaupinu. SALEK náði ekki að festa sig í sessi. Slíkt kerfi virkar aðeins ef stór hluti vinnumarkaðarins samþykkir sömu leikreglur. Ef einn hópur sýnir hófsemi en annar nær skömmu síðar mun meiri hækkunum hrynur samstaðan. En það þýðir ekki að grunnhugsunin hafi verið röng. Hvað gera Norðurlöndin? Í Noregi byggist launamyndun meðal annars á svokölluðu frontfagsmodellen. Sá hluti atvinnulífsins sem stendur í alþjóðlegri samkeppni myndar mikilvægt viðmið um það svigrúm sem aðrir hlutar vinnumarkaðarins hafa. Svipuð grunnhugsun er í Svíþjóð og Danmörku. Þetta þýðir ekki að allir eigi að fá sömu laun eða sömu hækkun. Spurningin sem menn byrja á er einfaldlega: Hvað getur atvinnulífið í heild staðið undir án þess að verðbólga og samkeppnisstaða fari úr böndunum? Krónan eða undirliggjandi vandinn? Þetta tengist einnig umræðunni um íslensku krónuna og evruna. Evra myndi eyða gengisáhættu gagnvart evrusvæðinu. En hún myndi ekki eyða því vandamáli ef laun og verðlag á Íslandi hækka hraðar en framleiðni og kostnaður hjá samkeppnislöndum okkar. Með krónu getur gengið aðlagast þegar samkeppnisstaðan versnar. Með evru er sú leið ekki til staðar og aðlögunin þarf þá frekar að eiga sér stað í gegnum laun, verð eða atvinnustig. Stöðugur gjaldmiðill og stöðugt hagkerfi eru því ekki alveg sami hluturinn. Einfaldara og samhæfðara kerfi Ég tel tímabært að ræða hvort hægt sé að byggja íslenska kjarasamningakerfið upp með einfaldari og samhæfðari hætti. Ekki til að veikja verkalýðshreyfinguna eða skerða samningsrétt launafólks, heldur til að auka líkurnar á að kjarabæturnar haldist. Hugsanlegt væri að byggja kerfið á þremur meginstoðum: Sameiginlegu mati á svigrúmi til launahækkana út frá framleiðni, verðbólgumarkmiði og samkeppnisstöðu. Sameiginlegum grunni um lágmarkslaun og grundvallarréttindi. Svigrúmi fyrir atvinnugreinar, starfsstéttir og fyrirtæki til að greiða umfram grunninn þegar framleiðni, menntun, ábyrgð, eftirspurn eða afkoma gefur tilefni til. Markmiðið er ekki að allir hafi sömu laun. Launamunur þarf að geta endurspeglað menntun, ábyrgð, reynslu, framleiðni og markaðsaðstæður. En ein regla verður að gilda til lengri tíma: Við getum ekki skipt meiri verðmætum en við sköpum. Stöðugleiki er líka kjarabót Við leggjum stundum of mikla áherslu á prósentuna sem stendur í kjarasamningnum en of litla áherslu á það sem stendur eftir í veski heimilanna. Hvað gagnast 7% launahækkun ef verðbólga étur hana upp og vextir hækka greiðslubyrði heimilanna. Stöðugleiki er líka kjarabót. Lág verðbólga er kjarabót. Lægri vextir eru kjarabót. Kannski var því grunnhugsunin í SALEK réttari en okkur tókst að gera að varanlegum hluta íslenska vinnumarkaðarins. Við þurfum ekki endilega að endurvekja SALEK í sömu mynd. En við ættum að endurvekja þá hugsun að árangur kjarasamninga eigi ekki fyrst og fremst að mælast í því hver fékk hæstu prósentuna við undirritun. Hann á að mælast þegar samningstímabilinu lýkur: Hafa raunlaun hækkað? Er verðbólgan lægri? Eru vextir lægri? Er atvinnuöryggi meira? Getur fjölskyldan keypt meira fyrir ráðstöfunartekjur sínar? Þegar upp er staðið er stærsta kjarabótin ekki hæsta prósentan á undirskriftardegi. Hún er það sem stendur eftir í vasa launamannsins þegar samningstímabilinu lýkur. Höfundur er fyrrverandi varaformaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórir Garðarsson Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun